Einar Valur Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:13 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:13 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Valur Bjarnason var sjúkrahúslæknir. Fæddur í Vestmannaeyjum 25. mars 1932. Foreldrar Bjarni Bjarnason, verkamaður þar og kona hans Sigurbjörg Einarsdóttir bónda að Búðarhóli í Austur-Landeyjum, Nikulássonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952. Cand. med frá Háskóla Íslands 1961. Starfaði sem aðstoðarlæknir á Landspítalanum 1961 til 1962 og við Sjúkrahús Vestmannaeyja 1962 til 1963 og síðar við lyflækningadeild Amts og Bys. Sgh. í Kolding í Danmörku og víðar erlendis. Alm. lækningaleyfi 1972. Vk. sérfræðingur í lyflækningum 1974 og er starfandi yfirlæknir við lyflækningadeild Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. K. 1 Jakobína Hjálmarsdóttur rafveitust. í Vestmannaeyjum og konu hans og áttu þau tvær dætur. K. 2 Else Madsen og eiga þau einn son.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.