Einar Einarsson (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Einar Einarsson (Presthúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Einar Einarsson bóndi fæddist 1796 og lést af slysförum 16. september 1833.

Einar var tómthúsmaður í Kastala 1821, varð bóndi á Steinsstöðum á sama ári, í Ólafshúsum 1822 og í Presthúsum 1823, d. 15. september 1833 af slysförum.

Kona hans, (8. október 1820), var Anna Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 1798, d. 11. mars 1849.
Börn þeirra hér:
1. Þorbjörn Einarsson, f. 9. október 1819 á Gjábakka, d. 15. október 1819.
2. Þorbjörg Einarsdóttir, f. 2. júlí 1821 í Kastala, d. 17. júlí 1821.
3. Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 4. október 1822, d. 1860.
4. Guðmundur Einarsson, f. 1. desember 1823 í Presthúsum, d. 7. desember 1823.
5. Páll Einarsson, f. 27. mars 1825 í Presthúsum, d. 1. apríl 1825.


Heimildir