Einar Einarsson (Frydendal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2014 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2014 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Einar Einarsson''' vinnumaður í Frydendal og víðar fæddist 28. ágúst 1853 og lést 9. ágúst 1888.<br> Foreldrar hans voru [[Geirdís Þórðardóttir (París)|Geirdís...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Einarsson vinnumaður í Frydendal og víðar fæddist 28. ágúst 1853 og lést 9. ágúst 1888.
Foreldrar hans voru Geirdís Þórðardóttir vinnukona, f. 1821, d. 1. febrúar 1893, og Einar Guðmundsson á Steinsstöðum, f. 26. mars 1834, hrapaði til bana 27. maí 1858.

Einar var með móður sinni í Götu 1853 og enn í Þorlaugargerði 1860. Hann var með þeim Þórði í Kastala 1863 og í Þórðarhjalli 1864, í Háagarði 1866 og 1867, í Ólafshúsahjalli 1868.
Einar var léttadrengur í Frydendal 1870. Hann veiktist af holdsveiki og mun hafa verið öryrki eftir það, dó úr þeim sjúkdómi í Elínarhúsi 1888, 34 ára gamall, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir