Einar Ólafsson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. mars 2014 kl. 12:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. mars 2014 kl. 12:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Einar Ólafsson''' frá Stóra-Gerði, bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum, síðar í Fuglavík á Reykjanesi, fæddist 5. október 1810 á Kirkjulæk í Fljóts...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Ólafsson frá Stóra-Gerði, bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum, síðar í Fuglavík á Reykjanesi, fæddist 5. október 1810 á Kirkjulæk í Fljótshlíð og lést 20. desember 1839 í Fuglavík á Reykjanesi.
Foreldrar hans voru Ólafur Stefánsson bóndi í Stóra-Gerði, f. 11. apríl 1786 á Kirkjubæ, d. 13. mars 1838 á Suðurnesjum, og Guðný Auðunsdóttir húsfreyja, f. 1770, d. 2. júlí 1839 í Fuglavík.

Einar var ekki með með foreldrum sínum í Gerði 1812, en var kominn til þeirra 1816.
Hann fluttist með foreldrum sínum að Tjörnum 1818 og bjó þar 1835 með Drisjönu, barni sínu Þórunni 6 ára, Ólafi og Guðnýju foreldrum sínum og Vilborgu Erlendsdóttur föðurmóður sinni.
Þau Einar, Drisjana, Ólafur og Guðný fluttust ásamt Þórunni barni Einars að Fuglavík á Rosmhvalsnesi 1837.
Ólafur faðir hans varð úti 13. mars 1838. Þau Drisjana dóu bæði í bólunni 1839 með tveggja daga bili.

I. Barnsmóðir Einars var Hólmfríður Bjarnadóttir vinnukona, f. um 1803.
Barn þeirra var
1. Þórunn Einarsdóttir, f. 11. júní 1829.

II. Kona Einars, (20. júlí 1833), var Drisjana Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 1799, d. 18. desember 1839. Hún var dóttir Þórarins Jónssonar bónda í Krókatúni u. Eyjafjöllum 1801 og 1816, f. 1760, d. 2. september 1819, og konu hans Aldísar Hjörleifsdóttur húsfreyju, f. 18. mars 1766, d. 19. júní 1840.


Heimildir