Edinborgarsteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2013 kl. 20:38 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2013 kl. 20:38 eftir Þórunn (spjall | framlög) (Bætt við byggingarári húss)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Edinborgarsteinn var kró með gafl út að Formannasundi og hlið að Strandvegi. Króin var byggð á árunum 1912-1920 og var steinsteypt. Flestar krær voru aðeins járnklæddir timburkofar og því ánægjuleg nýmæli verið þar á ferð. Kemur nafnið steinn einmitt frá því að króin var steinsteypt. Edinborgarsteinn stóð á króarstæðum Ofanleitis.

Seinna árið 1958 var byggt nýtt hús á sama stað og stóð þar fram að eldgosinu 1973. Það hús var stórt, tvílyft steinhús. Það hús var kallað Steinninn og var lengi í eigu Ármótsfeðga, Jóns, Þórarins og Markúsar. Seinna var það í eigu bræðranna í Háagarði og var það notað undir veiðarfærageymslu fyrir útgerðina af Báru. Síðast var Edinborgarsteinn viðgerðarverkstæði fyrir fyrirtæki Einars Sigurðssonar.



Heimildir

  • Karl Guðmundsson. Ég man þá tíð... Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975.