Dvergasteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:51 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:51 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Dvergasteinn (áður Brandshús) stóð við Heimagötu 7a. Það hýsti Barnaskóla Vestmannaeyja á árunum 1884-1904 og var því jafnan kallað Gamla Skólahúsið.

Dvergasteinn var hlaðinn úr móbergi úr Heimakletti árið 1883 og voru steinarnir límdir saman með kalki. Húsið fór undir hraun í gosinu, líklega þann 26. mars, en þá fóru húsin Godthaab, Brydehus og gamla sundlaugin undir hraunflæðið.