Dagmar Helgadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 09:40 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 09:40 eftir Daniel (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|220px|Dagmar '''Dagmar Helgadóttir''' fæddist 15. júní 1914 í Vík í Mýrdal og lést 10. október 1980. Hún fæddist hjónunum Helga Dagbj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Dagmar

Dagmar Helgadóttir fæddist 15. júní 1914 í Vík í Mýrdal og lést 10. október 1980. Hún fæddist hjónunum Helga Dagbjartssyni og Ágústu Guðmundsdóttur ásamt tvíburasystur sinni Laufeyju Hún ólst upp í stórum hópi samhentra systkina.

Leið hennar lá til Vestmannaeyja er hún flutti að heiman. Lengst af vann hún í Apóteki Vestmannaeyja. Hún giftist ung Tómasi Snorrasyni og þar fæddist sonurinn Helgi, sem var um tíma einn frægasti ballettdansari í heiminum. Þau hjón slitu samvistum og Dagmar flytur til Reykjavíkur með soninn og vann lengst af í Ingólfsapóteki.

Þann 28. febrúar 1953 giftist hún Jóni Hauki Guðjónssyni húsasmíðameistara, frá Ási í Ásahreppi. Þau hjónin áttu framúrskarandi smekklegt heimili þar sem listrænir hæfileikar hennar fengu að njóta sín. Þau Dagmar og Jón Haukur eignuðust einn son, Guðjón Inga. Hann er lærður auglýsingateiknari og sagnfræðingur.

Myndir



Heimildir