Bryngeir Torfason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2011 kl. 08:26 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2011 kl. 08:26 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bryngeir Torfason, Búastöðum, fæddist að Söndu á Stokkseyri 26. september 1895 og lést 9. maí 1939.

Börn Bryngeirs og Lovísu

Bryngeir var formaður á m/b Unni ÁR og kom seinni hluta vertíðar 1919 til Eyja og kláraði vertíðina þar. Flutti árið eftir og þá með m/b Hjálpara með sér. Var með hann þá vertíð. 1921 er hann með m/b Njál, 1922-1925 með Hjálpara, er síðan með; Guðrúnu, Sæbjörgu, Tvist og Þór ½ vertíð 1930, þegar hann veikist og fer á Vífilstaðahælið. Bryngeir var kvæntur Lovísu Gísladóttur, dóttur Gísla Eyjólfssonar á Búastöðum.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.