Breiðibakki

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2006 kl. 09:45 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2006 kl. 09:45 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bærinn Breiðibakki stóð utan byggðar, sunnarlega á Heimaey, rétt norðan við Klaufina. Breiðibakki var svonefnt nýræktarland en Páll Oddgeirsson, kaupmaður og útgerðarmaður ræktaði upp jörðina og fékk ábúð fyrir henni á fjórða áratug síðustu aldar. Stærð jarðarinnar var 7,18 hektarar. Búskapur var stundaður á Breiðabakka fram yfir 1960 en síðasti ábúandi þar var Trausti Bjarnason, síðar ráðsmaður á bændaskólanum Hvanneyri. Hin síðari ár hafa tómstundabændur haft aðstöðu á Breiðabakka með sauðfé og hesta.

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var haldin á Breiðabakka tvö ár eftir gos, eða þar til vikur hafði verið hreinsaður úr Herjólfsdal.