„Blik 1980/Andstæðingar Stalinismans í Vestmannaeyjum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Blik 1980/Andstæðingar Stalinismans í Vestmannaeyjum“ [edit=sysop:move=sysop])
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 6. maí 2008 kl. 13:58

Þessi mynd er um það bil 50 ára gömul. Hún er af virkum andstæðingum Stalinismans í Eyjum og „Félaga Stalins“. - Aftari röð frá vinstri: Þ.Þ.V., Árni J. Johnsen, Guðmundur Helgason, Heiðardal. - Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson, verkstjóri, Heiðardal, Guðlaugur Hansson, verkamaður, Fögruvöllum, og Eiríkur Ögmundsson, útgerðarmaður, Dvergasteini.

Guðmundur Sigurðsson, Guðlaugur og Eiríkur áttu merkan þátt í sögu verkalýðsbaráttunnar í Vestmannaeyjum. Þeir voru forgöngumenn um stofnun Verkamannafélagsins Drífanda árið 1917. Og árið 1920 beittu þeir sér fyrir stofnun kaupfélags til hagsbóta verkalýðs heimilunum í kaupstaðnum. Það var Kaupfélagið Drífandi.

Fram undir árið 1930 voru þessir menn í fararbroddi í þessum félagasamtökum verkalýðsins til sjós og lands í Eyjum.

Um 1930 mynduðu nokkrir menn í Eyjum með sér pólitísk samtök innan Verkamannafélagsins Drífanda. Þeir kölluðu sig „Félaga Stalins“ og kenndu sig þannig við einvaldann í Rússlandi, sem síðar reyndist ,„morðinginn mikli“.

„Félagar Stalins“ náðu um tíma því bolmagni í Verkamannafélaginu Drífanda, að þeir megnuðu að fá þar samþykkt fyrir því á skyndifundi félagsins að reka þessa sex andstæðinga sína úr Verkamannafélaginu. Sú samþykkt leiddi til dauða Verkamannafélagsins Drífanda.

(Sjá grein mína í Bliki 1976, bls.13-44, og grein mína í Morgunblaðinu 13. maí 1977. Þ.Þ.V.)