Blik 1980/„Hvanneyrarstrákarnir“

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Efnisyfirlit


„Hvanneyrarstrákarnir“


ctr


Mig langar til að biðja Blik mitt að geyma fyrir mig þessa mynd af okkur Hvanneyrarstrákunum, sem stunduðu nám í fyrsta bekk bændaskólans veturinn 1917-1918.
Bændaskólinn á Hvanneyri minntist 90 ára starfs síns hinn 24. júní á s. l. ári. Þá gat ég um leið minnzt þess, að 60 ár voru liðin, síðan ég lauk þar búfræðiprófi.
Aftasta röð frá vinstri:
1. Ólafur Gíslason frá Miðhvammi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Kraunastöðum í s.s. Dáinn; 2. Þorsteinn Davíðsson frá Fjósatungu í Fnjóskadal. Hann var verksmiðjustjóri Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar á Akureyri um árabil og skógarvörður Vaglaskógar; 3. Arngrímur Kristjánsson frá Sigríðarstöðum í S.-Þingeyjarsýslu. Hann var kunnur skólastjóri í Reykjavík um árabil. Dáinn; 4. Stefán Ólafsson frá Kalmanstungu í Borgarfirði. Síðar bóndi þar. Dáinn; 5. Kristófer Ólafsson frá Kalmannstungu, bróðir Stefáns. Síðar bóndi þar. Dvelst nú í Rvk; 6. Sigfús Elíasson frá Uppsölum í Barðastrandarsýslu. Síðar rakarameistari og rithöfundur. Dáinn; 7. Björn Ólafsson frá Spákonufelli í A.-Húnavatnssýslu. Dáinn; 8. Gunnar Sveinsson frá Hamri í Dalasýslu. Dáinn; 9. Þorlákur Björnsson frá Björk í Árnessýslu. Hann hefur dvalizt mörg ár í Kanada. Dvelst þar nú á elliheimili.
Miðröð frá vinstri:
1. Þrándur Indriðason frá Ytra-Fjalli í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Aðalbóli í s.s. Dáinn; 2. Magnús Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Var bóndi á Ósi í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn; 3. Jón Friðriksson frá Kraunastöðum í S.- Þingeyjarsýslu. Bóndi á Hömrum í s.s.; 4. Þ.Þ. V.; 5. Sigmundur Halldórsson frá Gröf á Snæfellsnesi. Síðar húsasmíðameistari í Reykjavík. Dáinn.
Fremsta röð frá vinstri:
1. Jón Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Síðar verkamaður í Reykjavík. Dáinn; 2. Þorlákur Guðmundsson frá Gufudal í Barðastrandarsýslu. Síðar skipstjóri í Ameríku; 3. Þórður Hafliðason frá Bakka í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn; 4. Ísak Jónsson frá Gilsárteigi í S.-Múlasýslu. Síðar kunnur skólastjóri í Reykjavík. Dáinn; 5. Áskell Sigurjónsson frá Sandi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Litlu-Laugum í s.s.; 6. Jóhannes Guðjónsson frá Arnarstöðum á Snæfellsnesi. Síðar bóndi á Saurum í s.s. Dáinn.

Þ.Þ.V.