„Blik 1978/Lundaveiðar (kvæði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Efnisyfirlit 1978 ==ÁRNI ÁRNASON, símritari==
(Ágrip af ævi þessa mœta Vestmannaeyings var birt í Bliki árið 1965.) <b...)

m (Verndaði „Blik 1978/Lundaveiðar (kvæði)“ [edit=sysop:move=sysop])

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 4: Lína 4:

==[[Árni Árnason|ÁRNI ÁRNASON]], símritari==
: [[Árni Árnason|ÁRNI ÁRNASON]],

::símritari:

(Ágrip af ævi þessa mœta Vestmannaeyings var birt í Bliki árið 1965.)

:Lundaveiðar

==Lundaveiðar==

:Er lagt skal upp til „Lunda“

:Er lagt skal upp til „Lunda“

:í langa veiðiför

:í langa veiðiför

Lína 35: Lína 33:
:er haf og himinn skarta

:er haf og himinn skarta

:í hljóðum næturfrið.

:í hljóðum næturfrið.

:Hér valdi virta „staði“

:Hér valdi virta „staði“

Lína 44: Lína 43:
:unz fiskinn silfur fríða

:unz fiskinn silfur fríða

:þeir fá í morgunverð.
:þeir fá í morgunverð.

:Þó lognið riti rúnir

:Þó lognið riti rúnir

Lína 61: Lína 61:

:(Ágrip af ævi þessa mœta Vestmannaeyings

:var birt í Bliki árið 1965.)

Núverandi breyting frá og með 13. október 2010 kl. 20:29

Efnisyfirlit 1978

ÁRNI ÁRNASON,
símritari:

Lundaveiðar
Er lagt skal upp til „Lunda“
í langa veiðiför
og fögnuð frelsisstunda
er fleyi ýtt úr vör.
Því úti-lífið lokkar
þá ljómar ey og bær
en innst í hugum okkar
er endurminning kær.

Háfur til handar
hafinn er fljótt.
Árgolan andar,
útrunnin nótt.

En kátt er oft í kofa
um kvöld við sólarlag
og senn er mál að sofa
unz sól rís næsta dag.
Þá streymir hlýja um hjarta
við hægan öldunið,
er haf og himinn skarta
í hljóðum næturfrið.

Hér valdi virta „staði“
hin vaska fjalla sveit
er fuglinn ferðaglaði
hóf för í sílisleit.
Tveir hnoðrar heima bíða
í holu af fornri gerð
unz fiskinn silfur fríða
þeir fá í morgunverð.

Þó lognið riti rúnir
á reidda mararsæng
er blær við efstu brúnir,
sem betur lyftir væng.
Hér finnst þeim létt að fljúga
— en frelsis vonin sveik —
Þeir kurra dátt sem dúfa
við dauða í næsta leik.

Vindbára vék sér
vestur um land.
Lognaldan lék sér
við Landeyjasand.

(Ágrip af ævi þessa mœta Vestmannaeyings
var birt í Bliki árið 1965.)