Blik 1976/Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja, þar sem getið er um 320 Vestmannaeyinga, IV. hluti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2009 kl. 11:32 eftir Birna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2009 kl. 11:32 eftir Birna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


12. kafli


Húsgögn, hurðir og ýmsir fleiri


hús og heimilismunir
  • 880. Dragkista (kommóða). Sannanlegt er, að þessi dragkista er meira en 200 ára gömul. Dragkistu þessa smíðaði „kóngssmiðurinn" í Þórlaugargerði, Guðmundur bóndi þar Eyjólfsson. Kóngssmiðir voru þeir einir titlaðir í Eyjum, sem lært höfðu smíðar í Danmörku, voru „snikkarar", og höfðu það að atvinnu öðrum

þræði að stunda smíðar á vegum konungsvaldsins í Eyjum, byggja hús fyrir kónginn og gera við hin opnu fiskiskip hans, en konungsvaldið danska rak hér alla útgerð um tveggja alda skeið. Guðmundur Eyjólfsson setti t. d. þakið á Landakirkju, sem byggð var á árunum 1774-1778.

Þegar hjónin Lárus Jónsson og frú Kristín Gísladóttir fengu ábúð á Vestri-Búastöðum eftir Sigurð Torfason hreppstjóra árið 1870, þá lét hreppstjórinn hina nýju ábúendur „erfa“ dragkistuna.

Dragkistu þessa gaf frú Júlíana Sigurðardóttir, fyrrv. húsfreyja á Búastöðum, Byggðarsafninu. en hún var gift Pétri Lárussyni bónda, syni Búastaðahjónanna frú Kristínar og Lárusar.

  • 881. Dragkista (kommóða). Þessa dragkistu áttu prestshjónin að Ofanleiti, séra Jón Jónsson Austmann og mad. Þórdís Magnúsdóttir. Þau voru búandi að Ofanleiti 1827-1958. Kommóða þessi kvað vera dönsk að uppruna, og eignuðust prestshjónin hana árið 1817, er þau fengu prestakallið að Þykkvabæjarklaustri og settust að á Mýrum. Eftir fráfall séra Jóns J. Austmanns árið 1858 eignaðist Magnús J. Austmann, bóndi. stúdent og alþingismaður að Nýjabækommóðuna, en hann var elzta barn þeirra hjóna. Hann lézt árið 1859. Frú Kristín Einarsdóttir, ekkja hans. átti síðan húsgagn þetta alla sína búskapartíð í Nýjabæ eða til dauðadags árið 1899.

Við fráfall frú Kristínar Einarsdóttur eignaðist Þórarinn bóndi Árnason á Oddstöðum kommóðuna og síðan Oddgeir bifreiðarstjóri sonur hans. Oddgeir Þórarinsson gaf hana Byggðarsafninu árið 1958 eða á 100 ára ártíð séra Jóns Austmanns, hins gagnmerka sóknarprests.

  • 882. Dragkista. Þessa litlu dragkistu átti frú Fríður Lárusdóttir bónda og hreppstjóra Jónssonar á Búastöðum. Lárus bóndi smíðaði sjálfur dragkistuna og gaf hana þessari dóttur sinni í fermingargjöf, en frú Fríður var fermd 26. maí 1894. Frú Fríður Lárusdóttir var gift Sturlu Indriðasyni frá Vattarnesi.

Dóttir þeirra hjóna, frú Lára Sturludóttir, gaf Byggðarsafninu dragkistuna.

  • 883. Dragkista, sem er smíðuð úr mahoní. Hún á þessa sögu: Árið 1880 rak langt og gildvaxið mahoní tré í Gunnarsurð, sem er í krikanum milli Kervíkurfjalls og Sæfells. Þarna átti þá rekaréttindi Jóhann J. Johnsen, veitingamaður og bóndi í Frydendal, en hann hafði byggingu fyrir einni Kirkjubæjajörðinni (Bænhújörðinni á Kirkjubæjum).

Tré þetta var þurrkað vandlega og síðan rist í borð með stórviðarsög Ingimundar bónda Jónssonar á Gjábakka (sjá nr. 489). Hjá hjónunum í Frydendal dvaldist þá Árni trésmiður Árnason, sem stundaði sjó í Eyjum á útvegi Frydendalshjónanna, þegar hann vann ekki að smíðum. Árni Árnason hafði fyrir skömmu lokið við að smíða þessa dragkistu, þegar hann drukknaði, en það var árið 1887.

Til fyrirmyndar um smíði þessa hafði Árni smiður dragkistu hjónanna í Nýjabæ, sem prestshjónin á Ofanleiti höfðu átt. (Sjá nr. 881). Síðast átti þessa dragkistu Árni verzlunarmaður Jónsson í Odda (nr. 63 A) við Vestmannabraut. sem var starfsmaður Gunnars Ólafssonar og Co. um langt árabil. Hann var frá Helgusöndum í Landeyjum, f. 12. apríl 1889 og dáinn 21. júní 1963. Hann gaf Byggðarsafninu dragkistuna.

  • 884. Fatakista. Kistu þessa áttu hreppstjórahjónin á Búastöðum hinum vestari, Lárus Jónsson og frú Kristín Gísladóttir. Hann smíðaði sjálfur kistuna um 1880.
  • 885. Fatakista. Þessa kistu gaf Karl Guðmundsson skipstjóri Byggðarsafninu.
  • 886. Fatakista.
  • 887. Fótskör, fótskemill með sama sniði og sjóferðakista.
  • 888. Hægindastóll eða vinnustóll frú Rósu Eyjólfsdóttur húsfr. í Þórlaugargerði. Jón bóndi Pétursson, maður hennar, smíðaði stólinn. Jón Guðjónsson, bóndi og smiður í Þórlaugargerði, fóstursonur þeirra hjóna, gaf Byggðarsafninu stólinn.
  • 889. Kistill. Á hann er málað nafnið Una. Frú Una Jónsdóttir, skáldkona að Sólbrekku (nr. 21) við Faxastíg, átti þennan kistil og gaf hann Byggðarsafninu.
  • 890. Skrifborð. Þetta skrifborð átti og notaði í skrifstofu sinni í Landlyst, Þorsteinn héraðslæknir Jónsson (1865-1905), „Eyjakarl“.

eins og hann var stundum nefndur sökum opinberra starfa og valda í byggðarlagi Eyjamanna. Borðið gáfu Byggðarsafninu frú Matthildur Ágústsdóttir, dótturdóttir héraðslæknisins, og maður hennar Sigurður skrifstofustjóri Bogason, hjón í Eystra-Stakkagerði. Frú Matthildur erfði skrifborðið eftir afa sinn, sem lézt árið 1908.

  • 891. Skrifborð. Þetta skrifborð átti Jón bóndi Guðmundsson í Suðurgarði.
  • 892. Skatthol. Skatthol þetta átti Ólafur útgerðarmaður Auðunsson í Þinghól (nr. 19 við Kirkjuveg). Frú Solveig Ólafsdóttir, dóttir hjónanna í Þinghól, frú Margrétar Sigurðardóttur og Ó. A., gaf Byggðarsafninu skattholið.
  • 893. Spegill. Stofuspegill hjónanna á Vilborgarstöðum, frú Guðfinnu J. Austmann og Árna Einarssonar, bónda og meðhjálpara. Haft var á orði, að naumast ætti sjálfur einokunarkaupmaðurinn eða „factorinn" í Danska-Garði íburðarmeiri stofuspegil en þessi er. Spegillinn mun vera um það bil aldar gamall. Sigfús M. Johnsen, fyrrv. bæjarfógeti, gaf Byggðarsafninu spegilinn. Hann var sonarsonur frú Guðfinnu húsfreyju á Vilborgarstöðum.
  • 894. Stofuborð. Þetta stofuborð er smíðað úr maghoní (ekki spónlagt). Það áttu hreppstjórahjónin í Stakkagerði, frú Ásdís Jónsdóttir og Árni bóndi og hreppstjóri Diðriksson. Þau hjón áttu hér í Eyjum markverða sögu. Árni bóndi var fyrst formaður á áttæringnum Gideon, þar til Hannes Jónsson gerðist formaður á honum, þá innan við tvítugt. Árni var myndarbóndi í Stakkagerði og hreppstjóri um árabil. Þá ruddi hann brautir um lundaveiðar í Eyjum með því að flytja inn fyrsta lundaháfinn og nota hann. Það var árið 1875. Árið eftir notuðu allir lundaveiðimenn í Eyjum háfinn. Frú Ásdís lézt 1892 og Árni bóndi 1903. Þau voru tengdaforeldrar Gísla gullsmiðs Lárussonar í Stakkagerði.
  • 895. Stofuhurð. Stofuhurð þessi var fyrst notuð í íbúðarhúsi því á Ofanleiti, sem séra Brynjólfur Jónsson sóknarprestur byggði þar árið 1863. Þá hafði séra Brynjólfur verið þar prestur í 3 ár. Þetta íbúðarhús að Ofanleiti var rifið um eða eftir síðustu aldamót. Séra Oddgeir Þórðarson Guðmundsen, sóknarprestur að Ofanleiti frá 1889-1924, lét byggja nýtt prestssetur að Ofanleiti um eða eftir síðustu aldamót. Þá var þessi hurð notuð þar. Þegar svo steinhúsið að Ofanleiti var byggt árið 1927, í tíð prestshjónanna séra Sigurjóns Þ. Árnasonar og frú Þórunnar Kolbeins, var þessi hurð ekki notuð lengur. Hreppti hana þá húsameistarinn Kristján Jónsson á Heiðarbrún (nr. 59) við Vestmannabraut. Síðar eignaðist Magnús Eyjólfsson á Grundarbrekku (nr. 11) við Skólaveg hurðina. Þar var hún notuð í kjallara hússins á árunum 1946-1966. Gestir Byggðarsafnsins undrast, hvernig hægt var að nota svo lága stofuhurð, sem þessi er. At