„Blik 1976/Brjóstmyndin í Gagnfræðaskólanum“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
(Ný síða: thumb|250px| thumb|250px|)

Ekkert breytingarágrip

(12 millibreytingar ekki sýndar frá 3 notendum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Blik1976 brjostmynd bls207.jpg|thumb|250px|]]
[[Blik 1976|Efnisyfirlit 1976]]
[[Mynd:Blik1976 brjostmynd bls208.jpg|thumb|250px|]]

[[Vigfús Ólafsson]] skólastjóri:

Brjóstmynd af Þ.Þ.V.

1. okt. 1974 að aflokinni skólasetningu Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum var að viðstöddum kennurum skólans, gagnfræðingum 1958-1963 og nokkrum gestum, afhjúpuð brjóstmynd af [[Þorsteinn Þ. Víglundsson|Þorsteini Þ. Víglundssyni]] skólastjóra, gerð af Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara.

Gamlir nemendur Þorsteins höfðu bundizt samtökum og kusu þessar konur í nefnd til að annast framkvæmdir: [[Birgit Sigurðardóttir|Birgit Sigurðardóttur]], [[Klöru Bergsdóttir|Klöru Bergsdóttur]] og [[Sigrún Þorsteinsdóttir|Sigrúnu Þorsteinsdóttur]].

[[Mynd:1976 b 208.jpg|thumb|400px|''Brjóstmynd. Þorsteinn Þ. Víglundsson''.]]Fyrir hönd gefenda afhenti Sigrún Þorsteinsdóttir myndina skólanum að gjöf, en síðan afhjúpaði kona Þorsteins, [[Ingigerður Jóhannsdóttir]], myndina, sem hafði verið komið fyrir á stigapalli gegnt aðaldyrum.

Skólastjóri þakkaði gjöfina og þá ræktarsemi sem nemendur sýndu skólanum og þann hlýhug og virðingu, sem þeir sýndu gömlum kennara sínum.

Undirritaður rakti síðan í stuttu máli störf Þorsteins hér í bænum.

Á silfurskjöld á fótstalli myndarinnar er letrað:

'''ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON'''

'''skólastjóri''' '''G.Í.V.''' '''1927-1963'''

'''Með þakklæti og virðingu.'''

'''Gagnfræðingar'''

'''1958-59-60-61-62-63'''

Þorsteinn hélt síðan skemmtilega ræðu. Rifjaði hann upp minningar úr starfinu með nemendum og kvað útlit sitt og heilsu bera þess bezt vitni, hve þau viðskipti hefðu gengið vel.

Má þetta til sanns vegar færa, því að á Þorsteini sést lítt 76 ára aldur, áhugi og starfsþrek óbugað. Var hann lengi vel einhamur eins og segir um afreksmenn í fornum sögum.

Mun, er tímar líða, starf hans í Eyjum talið hið merkasta
brautryðjandastarf.

Gefendur afhentu skólanum einnig sparisjóðsbók með því fé, sem afgangs varð, og óskuðu að vöxtum yrði varið til verðlauna í íslenzku, en Þorsteinn kenndi hana alla tíð og stuðlaði að auknum þroska nemenda í því fagi með þáttum þeirra í riti sínu, Bliki.
::::::::::::::''[[Vigfús Ólafsson]], skólastjóri''

{{Blik}}

Leiðsagnarval