Blik 1976/Bréf til vinar míns og frænda, VI. hluti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. desember 2009 kl. 13:25 eftir Birna (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. desember 2009 kl. 13:25 eftir Birna (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sér grefur gröf, þótt grafi''' Eftir að greinargerðin, sem ég sendi þér hér með í þessu vina og frændabréfi mínu, tók að birtast í blaðinu, sem ég nefndi, hófus...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sér grefur gröf, þótt grafi

Eftir að greinargerðin, sem ég sendi þér hér með í þessu vina og frændabréfi mínu, tók að birtast í blaðinu, sem ég nefndi, hófust umræður í bænum um þessi viðskiptamál þingmannsins og fyrirtækja hans i höfuðstaðnum. „Háttvirtir kjósendur“ stefnanda, þingmannsins, ræddu þau líka, en þó mest í „hálfum hljóðum“. Þeir stungu nánast saman nefjum um þau innan veggja heimilanna eða í saumaklúbbum og svo yfir ölskutlum innan veggja Samkomuhússins og á „leynifundum“ broddborgaranna í samkomuhúsi þeirra neðst við Heimagötuna, þar sem fundarmenn komu til móts og skeggræðna í „sjakket“ með gljáandi silkipípuhatta. Flestum fór búningurinn vel nema þeim, sem voru of þrýstnir um þjóhnappana eins og Siggi bonn og Guffi gossi!
Ekki fór þessi andi hinna lágrödduðu viðræðna fram hjá „upplesara“ skattsvikabréfsins. Sá hann sér ekki slag á borði? -Til þess að leikurinn sá mætti takast, þurfti að tryggja sér vináttu og fylgispekt vissra manna í fulltrúaráði Flokksins. Sjálfsagt hlaut það að taka nokkurn tíma. Fyrst og fremst þurfti að geta gert einlægum fylgifiskum sínum vel til og hamla því á sama tíma, að ýmsir aðrir næðu tangarhaldi eða valdaaðstöðu í metorðastiganum.
Og allt tókst þetta smám saman. Og vinátta þingmannsins var nýtt út í yztu æsar, þó að honum sjálfum væri það algjörlega hulið að hverju var stefnt og hvað skrafað var að tjaldabaki. Og í fyllingu tímans birtist árangurinn af starfi þessu.
Meistararnir Þórbergur Þórðarson og Einar ríki Sigurðsson segja svo frá í 2. bindi af ævisögu athafnamannsins, Fagur fiskur í sjó, bls. 283-284:
„Þegar Guðlaugur komst í framboð til alþingis í fyrsta sinn, hafði hann undirbúið framboð sitt í fulltrúaráði flokksins í Eyjum á bak við þáverandi þingmann Jóhann Þ. Jósefsson. En þessu var haldið svo vandlega leyndu, að J. Þ. J. hafði engar njósnir af. Þingmaðurinn var kominn til Vestmannaeyja með konu sinni til þess að sitja þar árshátíð Flokksins. Þá var alþingismanninum fært bréf þangað, þar sem hjónin voru að búa sig til hátíðarhaldanna. Bréfið var frá fulltrúaráðinu. Í bréfinu stóð skýrum stöfum, að þess væri ekki óskað, að hann yrði áfram þingmaður Vestmannaeyinga.
Þegar hjónin höfðu lesið bréfið, var þeim ríkast i huga að hætta við að taka þátt í skemmtuninni. Þó gerðu þau það og létu sem ekkert væri.“
Svo mörg eru þau orð meistaranna og miklu fleiri.
Fulltrúaráð Flokksins hafði afráðið, að „upplesari skattsvikabréfsins“ skyldi erfa þingsætið. Og það gerði hann.

Hvers vegna svo að halda þessari sögu við lýði?

Ég hneykslast ekki á þessari spurningu. Hvað er okkur dýrmætara en óskert mannorð? Ég hef fundið mig knúðan til að hnekkja þessum lygum og óskað þess, að svör mín geymist í Bliki ,þar sem ég hef birt nokkra smákafla úr ævi og starfssögu minni á undanförnum árum.
Og viltu svara mér, vinur minn? Hvers vegna erum við að láta söguna geyma nöfn þeirra manna, sem beittu sér fyrir galdrabrennunum á 17. öldinni hér á landi? Hvort kysir þú heldur að verða brenndur lifandi með óskert mannorð en að látast á sóttarsæng ærulaus, stimplaður svikari, lygari og þjófur?
Í hvert sinn, sem trúarjátningin er lesin, minnir hin kristna kirkja á þátt Pontíusar heitins í píslarsögu Krists. Enginn álasar kristinni kirkju það.
Það tók mig um það bil tvo áratugi að uppræta úr sálarlífinu beiskju þá, sem allar þessar mannskemmdir ollu mér. Nú brosi ég að þessu öllu saman og vildi ekki hafa verið án þessara átaka fyrir nokkurn mun. Sending hinna duldu afla hugsjónamálum mínum til framdráttar!
Ég finn þó til. Ég finn til með þjóð minni, þegar trúnaðarmenn hennar og þjónar bregðast henni, verða sér og henni til minnkunar eða jafnvel svívirðingar sökum þroskaleysis eða skorts á manndómi, svo að ekki sé grófara til orða tekið.
Þegar ég er hingað kominn í þessum skrifum mínum, heyri ég, að biskupinn er að flytja ræðu í Útvarpið um séra Hallgrím Pétursson í tilefni þrjú hundruð ára ártíðar hans. Ég hætti að skrifa og hlusta af áhuga, eins og ávallt, þegar ég á þess kost að heyra hann flytja ræðu. Hann er líka embættismaður ríkisins.
Þegar biskupinn hefur flutt ræðu sína og lagt Guðríði húsfreyju gott orð, farið um nafn hennar hlýjum viðurkennandi orðum, kemst ég við og setzt á ný við skrifborðið. Ég er hrærður. Og hvers vegna það? Af því að þjóð mín hefur níðzt á nafni þessarar blessaðrar konu um aldir. Hún hefur í ræðu og riti verið dregin í svaðið sem hvert annað úrþvætti. Og enn eru sum skáld okkar „að slá sig til riddara“ með þeirri kenningu, að hún hafi verið lauslætiskvendi. Það er skepnunum óvirðing og níð að kalla slíkan skáldskap skepnuskap. Þar hæfir grófara orð um það andans sorp.
Já, ég hrærist af gleði, þegar níðingslundin er kveðin í kútinn.

Önnur lota


Kaup kaups

Þegar Flokksforustan uppgötvaði, hversu auðvelt var að fá mig sektaðan, þar sem ég var dæmdur til AÐ GREIÐA RÍKISSJÓÐI SEKTIR fyrir persónulegar ærumeiðingar í minn garð þrátt fyrir upptök ráðherrans og skattstjórans að deilum þessum, þá afréð Flokksforustan, að fram skyldi haldið í sama anda í trausti á dómsvaldið í kaupstaðnum. Nokkra svölun gætu þær málsóknir og sektir veitt þeim vegna kosningaósigursins 29. janúar.
Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar hafði ég skrifað langa grein í Framsóknarblaðið í Eyjum um forustulið Flokksins, eiginhagsmunabaráttu þess og vanstjórn, meðan þeir höfðu þar völdin, mennirnir sem skipuðu forustuna. Grein þessa kallaði ég Óhappamenn -niðurrifsmenn. Án efa átti hún nokkurn þátt i kosningasigri okkar Framsóknarmanna við bæjarstjórnarkosningarnar. Nú sá