Blik 1976/Bréf til vinar míns og frænda, III. hluti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. september 2009 kl. 13:09 eftir ZindriF (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. september 2009 kl. 13:09 eftir ZindriF (spjall | framlög) (Ný síða: == '''Fyrsta lota''' == '''Önnur stefna''' Nú þurfti af greindum ástæðum að hefja nýja málsókn eða leggja að fullu niður rófuna. Þeim „var aldrei list sú léð“. B...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Fyrsta lota

Önnur stefna

Nú þurfti af greindum ástæðum að hefja nýja málsókn eða leggja að fullu niður rófuna. Þeim „var aldrei list sú léð“.

Bráðlega tók kona mín á móti nýrri stefnu. Héraðsdómslögmaðurinn í klæðum skattstjórans var bara furðu vígreifur og mér var ekkert að vanbúnaði. Töluvert hafði ég þegar lært í málarekstri, þó að sókn mín og vörn bæri meiri keim af blaðamennsku en lögfræðilegri snilld í málflutningi, sagði héraðsdómslögmaðurinn.

Eins og fyrri daginn mætti ég ekki á sáttanefndarfundinum. Ég ákvað að nýju að til stáls skyldi sverfa í máli þessu.

Ég skrifaði þegar sakadómaranum í Reykjavík og bað um að fá keyptar útskriftir úr bókum embættisins, þar sem fjallað hafði verið um fyrirtæki stefnanda, sem flutti inn á sínum tíma „Faktúruna í tunnunni“, eins og hneykslismál þau voru kölluð manna á milli á sínum tíma.

Afrit þessi fékk ég bráðlega, heilmikla doðranta.

Ég vann úr þessum gögnum eftir mætti og bjó mig undir réttarhald, sem fram skyldi fara 11. maí eða á lokadaginn (1950).

Þá lagði ég fram þessi skilríki i bæjarþingi Vestmannaeyja:

1. Staðfest afrit af ýmsum köflum úr lögregluþingbók og Dómabók Reykjavíkur.

2. 29. og 30. tölublað Skutuls á Ísafirði, 21. júní 1945, 33. árg.

3. 48. tölubl. Tímans, 29. júní 1945, 29. árg.

4. Afrit af grein í Tímanum, 1. febr. 1947, 22. tbl.

5. 61. tbl. Þjóðviljans, 14. árg., 18. marz 1949.

6. Greinargerð þá, sem hér fer á eftir orðrétt, eins og ég afhenti hana dómaranum:

„Á framboðsfundi til bæjarstjórnarkjörs, sem haldinn var í Samkomuhúsi Vestmannaeyja 27. jan. s.l., las Guðlaugur Gíslason, kaupmaður, Skólavegi 21 hér i bæ, upp bréf, sem hann fullyrti, að væri frá „ráðuneytinu“. Efni bréfs þessa var framtal mitt fyrir árið 1947. Í bréfi þessu var greinilega og umbúðarlaust dróttað að mér skattsvikum eða tilraun til skattsvika, - að ég hefði sýnt í því verulega viðleitni að draga tekjur mínar og eignir undan skatti.

Þessu til sönnunar og staðfestu vísa ég til vitnanna, sem sóru í máli þessu málstað stefnanda til þóknanlegs framdráttar.

Efni umrædds bréfs og upplestur vakti því í fleira en einu tilliti almenna furðu og undur á nefndum framboðsfundi.

Nú leyfi ég mér hér með að skrá í vörn þessa afrit að bréfi fjármálaráðuneytisins til mín, þar sem því er lýst yfir, að afrit af bréfi varðandi framtal mitt og skattamál hafi ekki verið sent frá ráðuneytinu.

Bréfið er svohljóðandi:

„Fjármálaráðuneytið

Reykjavík, 11. marz 1950.

Ráðuneytið hefur móttekið bréf yðar dags. 6. marz 1950 varðandi afrit af bréfi, er þér nefnið og á að hafa verið um skattamál yðar. Ekki verður séð í skjalasafni ráðuneytisins eða bréfaskrám þess, að neitt bréf hafi verið ritað héðan um skattamál yðar.

F. h.r.
Magnús Gíslason (sign),
Kristján Thorlacius (sign).“

Staðfest afrit af bréfi þessu legg ég fram í rétt, ef ég sé ástæðu til þess eða það verður véfengt.

Böndin virðast því óneitanlega berast að stefnanda sjálfum, að hann, fjármálaráðherrann og alþingismaðurinn, hafi skrifað umrætt bréf og sent það nefndum Guðlaugi Gíslasyni, formanni Flokksins hér, til að lesa upp á opinberum framboðsfundi til þess að ærumeiða mig og mannskemma.

Ég krefst þess, að háttvirtur dómari rannsaki þegar þetta bréfmál, því að upplestur þess í eyru almennings veldur þessu málaþrasi, og láta stefnanda, ef hann reynist höfundur bréfsins, sæta þyngstu refsingu, eins og lög frekast leyfa, fyrir ærumeiðingar þær og álitshnekki, er stefnandi hefur þannig valdið mér. Enda er slikt athæfi algjört brot á trúnaðarstarfi fjármálaráðherra, æðsta valdsmanni skattalaganna og verndara þeirra. Sé stefnandi valdur að umræddu bréfi, sem lítill vafi virðist leika á, er hann valdur að meiðyrðamáli þessu og á því upptökin að deilum okkar. Ella hefði nafn hans naumast spunnizt inn í umræðurnar á umræddum framboðsfundi. Sá veldur miklu, sem upphafinu veldur, stendur þar.

í svarræðu minni á framboðsfundinum lét ég í ljós undrun mína yfir margnefndu bréfi og tók það sérstaklega fram, að ég undraðist mest, ef alþingismaður og ráðherra í einu og sömu persónu, eins og stefnandi var þá, gæti lagzt svo lágt að skrifa slíkt bréf til óviðkomandi einstaklings til þess að hann læsi það í eyru almennings. Í þeirri undran minni lét ég þá þau orð falla um stefnanda, að hann sjálfur hefði verið sakaður um að vera einhver stœrsti faktúrufalsari og gjaldeyrisþjófur, sem þjóðin hefði alið. Vil ég nú finna þeim orðum mínum nokkurn stað:

Þeir höfðu samráð

„Árið 1942, 2. sept., voru þessir menn skráðir eigendur heildsöluverzlunarinnar .... og smásöluverzlunarinnar .... í Reykjavík: 1. Stefnandi. 2 .... og 3 .... Ekki fleiri. Þessir þrír einstaklingar kölluðu nefndar verzlanir sameignarfélag sitt.

Í 77. grein laga um hlutafélög, 21. júní 1921, stendur skrifað til eftirbreytni:

„Félagsstjórn fer með málefni félagsins milli hluthafafunda. Hún ræður framkvæmdastjóra einn eða fleiri, hefur umsjón með rekstri atvinnunnar, gerir reikningsskil og skuldbindur félagið, allt samkvæmt lögum og samþykktum félagsins.“

Nú skal það viðurkennt hér, að sameignarfélag þriggja manna, getur ekki verið hlutafélag samkv. nefndum hlutafélagslögum. En því meir er vald hvers eiganda fyrirtækisins, því færri sem þeir eru. Og löggjafinn ætlast auðvitað til þess, því að það er fjárhagsleg þjóðfélagsnauðsyn, að umsjón með rekstri sameignarfélags sé engu minni en hlutafélags, enda munur á, hvort eigendur fyrirtækis eru þrír eða til dæmis fimm (hlutafélög).

Nú er það alkunnugt, að stefnandi er hinn mesti áhugamaður um fjáröflun og glöggur fjármálamaður, sem lætur ekki fyrirtæki sín rekin eða reka afskiptalaus og í óhirðu. Hann fylgist í hvívetna með öllum rekstri þeirra og afkomu. Það er stefnanda klár sómi.

Slíks eftirlits hins fjárglögga hirðumanns með ríkan fjáraflahug mun hafa verið full þörf í umræddum sameignafélögum þeirra þremenninganna. Þau rök eru fyrir þeirri ályktun, að í lögreglurétti Reykjavíkur 11. janúar 1945 lýsir skrifstofustjóri fyrirtækis stefnanda yfir því, að „reyndar allt s.l. ár (1944-1945) hafi framkvæmdastjóri og meðeigandi félagsins fylgzt mjög illa með því, sem gerðist í rekstri fyrirtækisins, og í mörgum tilvikum ekkert vitað um það, sem þar var að gerast“, - allt af ástæðum, sem vitnið færist undan að skýra frá að svo stöddu. Í sama réttarhaldi eða sama dag lætur annar aðaleigandi fyrirtækisins bóka eftir sér þetta: „Að gefnu tilefni frá dómara kveður vitnið (einn af þrem eigendum fyrirtækisins) það sannast sagna, að framkvæmdastjórinn hafi s.l. ár vanrækt mjög starf sitt við verzlanirnar vegna drykkjuskaparóreglu.“

Hér var því mikil þörf á, að stefnandi væri árvakur um allan rekstur nefndra fyrirtækja sinna. Enda viðurkennir stefnandi í lögreglurétti Reykjavíkur, „að hann hafi undirritað verzlunarbréf fyrir firmað sitt“. Í sama lögreglurétti 7. jan. 1948 viðurkennir stefnandi ,að eigendur kærðu fyrirtækjanna, sem nefnd eru hér að ofan, hittist einstaka sinnum til skrafs og ráðagerða um rekstur félaganna.

Í lögreglurétti Reykjavíkur fimmtudaginn 30. jan. 1947 lýsir framkvæmdastjóri þessara fyrirtækja þremenninganna yfir því og lætur bóka þetta:

„Engin stjórn hefur verið kosin i félaginu og hafa félagsmenn (eigendur) samráð sín á milli um allar meiri háttar ráðstafanir félagsins . . . Allt ber þetta að sama brunni. Stefnandi virðist hafa árvakurt eftirlit með umræddum fyrirtækjum sínum og samráð við meðeigendur sína um allar meiri háttar ráðstafanir. Enda er stefnandi hvergi grunaður um að segja annað en hreinan og kláran sannleikann!

Með bréfi dagsettu 6. sept. 1944 kærði verðlagsstjóri fyrirtæki stefnanda fyrir innflutning á 2000 tylftum af bollapörum (í 130 tunnum) frá Ameríku með skipinu Eastern Guide, 7. apríl 1944.

Þessi pollapör seldi fyrirtæki stefnanda á kr. 56,20 bverja tylft, en rétt verð skyldi vera kr. 46,04. Ólöglegur hagnaður var talinn vera af þessari sölu samtals kr. 20.320,00. Við frekari rannsókn kom einnig í ljós, að vátryggingarupphæð sú, sem tilgreind var í verðlagsreikningi fyrirtækis stefnanda var sett of há, eftir því sem vátryggingar voru þá.

Nú verður mér á að spyrja: stafaði hið ólöglega verð á bollapörunum af fölsuðum eða sviknum faktúrum eða fölsuðum reikningum? Hvað olli svikna verðinu? Hvers vegna var vátryggingarupphæðin reiknuð of há?

Með bréfi dagsettu 16. des. 1944, kærði verðlagsstjóri fyrirtæki stefnanda í annað sinn fyrir ólöglegan innflutning og gjaldeyrismeðferð. Þá hafði þetta firma flutt inn vörur með m/s Braga, sem kom frá New York í nóv. s. á., fyrir 13.900 dollara án innflutnings- og gjaldeyrisleyfa. Þar voru í leikföng, pelsar, spil, púðurdósir, púður, leðurhandtöskur og ýmsar „gjafavörur“. - Ég minnist þess, að áður einhvern tíma hefur stefnandi látið í ljós í verki ríka náttúru til þess að verzla með leikföng! Það mun hafa verið hér í Eyjum fyrir allmörgum árum. Og vitum við, sem þekkjum stefnanda bezt, að slík verzlunarnáttúra stafar af einskæru eðallyndi stefnanda og meðfæddri barngæzku!

Með bréfi til viðskiptaráðs dags. 11. og 17. des. 1944 lýsir firma stefnanda yfir því, að alls hafi það átt vörur með M/s Braga fyrir 54.238,17 dollara eða nær krónur 350.000,00.

Hvað eru meiri háttar ráðstafanir í rekstri íslenzks fyrirtækis, ef ekki þær, þegar fastráðin er pöntun á vörum eða vörukaup, sem nema yfir þriðjung úr milljón. (Þetta gerðist 1944).

Mál þessi, sem nú hafa verið rakin í fáum dráttum, fengu þann endi, að stefnandi var dæmdur til að greiða persónulega kr. 5000,00 í sektir til ríkissjóðs og svo meðeigandi hans og hinn ólöglega hagnað kr. 30.000,00, samtals kr. 40.000,00. Já, þetta greiddi stefnandi persónulega!

Ég hef aldrei sagt, að stefnandi sé talinn vera o. s. frv. En óneitanlega virðist hann hafa verið sekur fundinn um einhverja þátttöku í þessum óleyfilegu verzlunarháttum fyrirtækja sinna, fyrst hann var dæmdur til að greiða sektir, persónulegar sektir, vegna þeirra. Eða greiddi stefnandi sektina fyrir oflítið samráð við meðeigendur sína um þessi stórkostlegu og ólöglegu vörukaup? - Ég kem aftur að þeim til þess að sanna mál mitt um þá fullyrðingu mína, að stefnandi hafi verið sakaður um að vera einhver stœrsti o. s. frv.

Þegar hér er komið þessum málum, var framkvæmdastjóri fyrirtækisins látinn.

Hinn 1. nóv. 1945 ræðst nýr framkvæmdastjóri að fyrirtækjum stefnanda. Skyldi maður ætla, að þetta fyrirtæki stefnanda hefði nú gætt sín eftirleiðis og ekki lent aftur í lögbrotum um innflutningsleyfi og gjaldeyrismeðferð. En náttúran er löngum náminu ríkari.

Hinn 30. jan. 1947 kærði verðlagsstjóri fyrirtæki stefnanda enn á ný fyrir meint brot gegn verðlags- og gjaldeyrislöggjöfinni. Tilefni kærunnar voru bréf til fyrirtækis stefnanda frá brezkum firmum. Í öðru bréfinu stóð þetta skrifað í íslenzkri þýðingu eftir löggiltan skjalaþýðara: „Við athugum, að fyrir upphæð umboðslaunanna óskið þér að ávísun verði send Hambros Bank Ltd. til greiðslu inn á reikning yðar, eftir að okkur hefur verið greitt að fullu.“

Í öðru brezku bréfi til fyrirtækis stefnanda dags. 24. sept. 1946 segir svo orðrétt: „Eins og þér sjáið, höfum við ekki dregið frá neinn afslátt á reikningi þessum, og eins og um var beðið, verður hinn veitti afsláttur greiddur inn á reikning yðar við Hambros Bank Ltd. í London, þegar sendingin hefur verið borguð.“

Þetta er tekið orðrétt upp úr Dómabók Reykjavíkur, en öll leturbreyting er mín.

Enn segir í Dómabókinni: Bendir verðlagsstjóri á í kærunni, að greinilega virðist koma fram í hinum umgetnu bréfum, að fyrirtœki stefnanda (hér sleppi ég nafni þess) hafi óskað þess, að hinar pöntuðu vörur væru færðar til reiknings á hœrra verði en raunverulega þyrfti að greiða fyrir þær með því að draga ekki frá þeim afslátt, sem fengist af andvirði þeirra, heldur greiða hann inn á reikning fyrirtækisins í Hambros Bank Ltd. Þetta bendir verðlagsstjóri á. Þetta voru hans orð. Það er engum blöðum um það að fletta, að hér gerir fyrirtæki stefnanda tilraun til að afla gjaldeyris á ólöglegan hátt, þar sem óskað er eftir, að varan sé raunverulega reiknuð erlendis hærra verði en hún kostar og mismunurinn lagður inn á reikning fyrirtækisins í Hambros Bank Ltd. í London, sterlingspundainnstæða auðvitað.

Ég óska að taka dæmi dómaranum til skilningsauka: Setjum svo, að ég semji við enskan kaupmann um það að kaupa af honum bifreið, sem kostar 200 sterlingspund. Jafnframt fæ ég hann til að lofa mér því, að hann sendi mér reikning yfir verð bifreiðarinnar og skuli hann hljóða á 400 sterlingspund. Mismuninn, 200 sterlingspund, skuldbindur enski kaupmaðurinn sig til að leggja inn á reikning minn í Hambros Bank. Síðan kný ég út gjaldeyrisleyfi hjá íslenzkum gjaldeyrisyfirvöldum fyrir hinu logna verði bifreiðarinnar og fæ 400 sterlingspund til þess að greiða hana með. Á þessu þéna ég 200 sterlingspund, sem ég gæti svo að tjaldabaki notað til þess að kaupa fyrir t. d. púður, pelsa, leikföng, nælonsokka o. s. frv. Svo gæti ég e. t. v. selt þessar vörur með allt að 200% álagningu bakdyramegin. Stal ég raunar ekki gjaldeyri fyrir vörum þessum? Hvað er þá gjaldeyrisþjófnaður? Og svo verð ég auðvitað að láta falsa faktúru fyrir bifreiðinni, svo að allt sé í réttri afstöðu hvað við annað.

Hver lagði á ráðin hjá fyrirtæki stefnanda, að það reyndi þannig að klófesta með umboðslaunum og fölsuðu vöruverði enskan gjaldeyri bak við gjaldeyrisyfirvöld þjóðarinnar og gegn lögum og rétti?

Í lögregluþingbók Reykjavíkur 31. janúar 1947 stendur bókað eftir framkvæmdastjóra fyrirtækis stefnanda: „Engin stjórn hefur verið kosin í félaginu, og hafa félagsmenn (þ. e. eigendurnir) samráð sín á milli um allar meiriháttar ráðstafanir félagsins.“ Eru það ekki meiri háttar ráðstafanir firma að hnupla gjaldeyri eða afla sér hans gegn lögum og rétti? Hvað segir meðlimur sjálfs löggjafans, sjálfs alþingis, háttvirtur stefnandi, um það mál? Og hvað eru meiri háttar ráðstafanir hjá eigendum firma eða fyrirtækis, ef ekki þær, þegar tekin er ákvörðun um að plægja af almenningi tugi þúsunda gegn lögum og rétti með ofháu vöruverði? Nei, fjárplógsmenn eru þetta ekki!

Nú höfðu umboðslaunin með álagningunni hækkað vöruverð hjá fyrirtækjum stefnanda umfram leyfilega álagningu um samtals krónur 17.397,40.

Eigi var farið fram á leyfi viðskiptaráðs til að taka þessi umboðslaun, segir í áðurnefndri Dómabók. Og ennfremur stendur þar: „... síðan hafa hin ensku firmu yfirleitt að beiðni „fyrirtœkis stefnanda“ lagt umboðslaunin inn á reikning þess firma í Hambros Bank. Allar þær vörur, sem umboðslaunin voru reiknuð af, voru fluttar hingað til lands og verðlagðar eftir að verðlagningarreglur frá 11. marz 1943, síðar frá 6. okt. s. á., gengu í gildi.“ Svona segir orðrétt í Dómabókinni. - Sem sé: Umrædd fyrirtæki stefnanda brutu hér allar verðlagningarreglur. - Er það nú trúlegt, að stefnandi, sem er einn aðaleigandi umræddra fyrirtækja, hafi ekkert vitað um þessi umboðslaun, sem hér um ræðir og lögð voru inn í Hambros Bank? Þó gerir framkvæmdastjóri fyrirtækisins ráð fyrir því í lögreglurétti Reykjavíkur, að í skjalasafni fyrirtækis stefnanda finnist sannanir fyrir því, að firmað hafi fengið umboðslaun frá erlendum firmum allt frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1933. Í lögreglurétti Reykjavíkur er bókað eftir framkvæmdastjóranum: Vitnið (þ. e. framkvæmdastjórinn) „telur víst að meðeigendur sínir í félaginu (m. a. stefnandi) hafi, eins og allir, sem við viðskipti fást, vitað, að félagið fékk umboðslaun frá firmum, sem það hafði umboð fyrir, bæði af umboðssöluvörum og vörum, sem félagið sjálft keypti“. Þetta sagði framkvæmdastjóri fyrirtækis stefnanda. Stefnandi vissi þvi auðvitað um umboðslaunin og sterlingspundatekjur fyrirtækisins af umboðunum. Er það líklegt, að hann hafi ekki jafnframt vitað, að þessi umboðslaun voru ávallt lögð inn í Hambros Bank Ltd. og engin grein fyrir þeim gjörð hjá gjaldeyrisyfirvöldum þjóðarinnar? Í lögreglurétti Reykjavíkur 6. jan. 1948 segir framkvæmdastjóri stefnanda, að umboðslaunin hafi „gengið til greiðslu sýnishorna og upp í andvirði keyptra vara frá viðkomandi löndum. Félögin hafa ekki leitað leyfis gjaldeyrisyfirvalda til þessara ráðstafana“. - Mundi stefnandi ekki fást til þess að skilgreina hugtakið gjaldeyrisþjófnaður?

Þá segir enn í Dómabók Reykjavíkur: „Vörur þœr, sem firmun (þ. e. firmu stefnanda) fengu hin ólöglegu umboðslaun af, greiddu þau með erlendum gjaldeyri samkv. leyjum gjaldeyrisyfirvalda hér, þar á meðal umboðslaunin, sem lögðust fyrir sem gjaldeyriseign erlendis. Þurftu firmun (þ. e. fyrirtæki stefnanda) því eigi að nota til greiðslu hins raunverulega vöruverðs allan þann gjaldeyri, sem þau sendu seljendum varanna.“

Þá er tekið fram, að fyrirtækjum stefnanda hafi borið að skila sölubanka gjaldeyrisins hér þeim hluta gjaldeyrisins, sem eigi þurfti að nota til greiðslu á andvirði hinna keyptu vara. Þetta gerðu fyrirtæki stefnanda ekki.

Er hér ekki gefið fyllilega í skyn, að firmun hafi stolið nokkrum hluta þessa gjaldeyris, sem þau töldu sig hafa fengið frá íslenzku gjaldeyrisyfirvöldunum?

Árið 1948, 7. janúar, mætti stefnandi í lögreglurétti Reykjavíkur og var áminntur um sannsögli. Fyrir réttinum fullyrti stefnandi (höfundur skattsvikabréfsins), að þýzkur ríkisborgari, frk. Meinert, sem lengi hefur starfað í þjónustu fyrirtækis hans, hafi „fengið leyfi hjá gjaldeyrisyfir-völdunum hér til þess að geyma 200 sterlingspund, sem hún átti“, á þessum reikningi fyrirtækja stefnanda í Hambros Bank Ltd.

Þessum fullyrðingum stefnanda svarar verðlagsstjóri þannig:

„Hvað viðvíkur leyfi frk. Meinert til þess að eiga erlenda innstæðu á bankareikningi fyrirtækis stefnanda í Englandi, þá hef ég spurzt fyrir um það atriði hjá viðskiptanefnd, og verður þar eigi séð, að slíkt leyfi hafi verið veitt, enda mundi ungfrúin þá hafa fengið skilríki um það.“ Þetta voru orð verðlagsstjóra.

Þegar mér var send útskrift úr lögregluþingbók Reykjavíkur og Dómabók varðandi þessi mál, fylgdi þessi vísa með á lausu blaði frá skrifstofu sakadómara:

Yfir sakadómstól datt, dómarinn komst í þvingu, þegar Jóhann sagði ei satt samkvæmt áminningu.

Skyldi vísa þessi hafa verið ort, þegar sannleikurinn kom í ljós um innstæðu frk. Meinert í Hambros Bank Ltd.? Finnst dómaranum sjálfum það fjarstæða?

Þannig reyndist stefnandi hafa farið með ósannindi í réttinum þrátt fyrir áminninguna! Honum mun það fyrirgefið, þar sem um sjálfsvörn og sjálfsbjargarviðleitni var að ræða og ein syndin virðist alltaf bjóða annarri heim.

Þessi mál entu þannig, að eigendur fyrirtækjanna (firma stefnanda), sem sakirnar skullu á, greiddu samtals kr. 13000,00 - þrettán þúsundir - í sektir fyrir gjaldeyrisþjófnaðinn eða þjófnaðarviðleitnina, og jafnframt voru firmu stefnanda látin skila aftur samtals kr. 18.254,45 í ríkissjóð samkv. 69. grein 3. málsgreinar hegningarlaganna. Sú grein fjallar um muni eða ávinning, sem aflað hefur verið með broti. Þessar þúsundir voru hinn ólöglegi ágóði af verðlagsbrotunum í sambandi við gjaldeyrisáætlunina eða gjaldeyrisþjófnaðinn.

Eins og áður segir er skjalfest og skráð í lögregluþingbók Reykjavíkur, að eigendur fyrirtækis þess, sem sakað er hér um misnotkun á einu og öðru í viðskiptalífinu, hafi samráð sín á milli um allar meiri háttar ráðstafanir í verzlunarrekstrinum. Og hvað eru svo meiri háttar ráðstafanir í þessum efnum, ef ekki þær, sem geta kostað eigendurna og fyrirtækin æruskerðingu og tugi þúsunda í sektir, ef illa tekst til eða samráðin geiga? Mundi stefnandi ekki hafa hirt sinn hlut af hinum ólöglega gróða, ef hann hefði ekki verið dæmdur i ríkissjóð? Einn eigandinn skýrir svo frá í lögreglurétti: „Félögin (þ. e. fyrirtæki stefnanda) eru sameignarfélög án sérstakrar stjórnar og koma eigendurnir saman við og við til ráðagerða en fundargerðir hafa aldrei verið skrifaðar“. Þetta er ein sönnunin enn um samráð eigendanna um rekstur nefndra fyrirtækja og ég undirstrika það, að stefnandi er þar hvergi undan skilinn. Hinir eigendurnir virðast ekki vilja vera án hans ráða, enda er stefnandi kunnur að því að vera bæði ráðhollur og ráðslyngur og hvergi grunaður um græsku! Þess vegna hef ég aldrei sagt eða haldið því fram, að stefnandi hafi nokkru sinni lagt á ráð um faktúrusvik eða gjaldeyrisþjófnað! Ekki heldur hef og nokkru sinni talað það, að stefnandi væri talinn stærsti eða mesti faktúrufalsari og gjaldeyrisþjófur landsins. Ég mótmæli því einbeittlega og eindregið. Hitt hef ég sagt, að stefnandi hafi verið sakaður um að vera o. s. frv. Vil ég nú færa fyrir þvi nokkrar sannanir.

Í blaðinu Skutli, sem út kom á Ísafirði 21. júní 1945, er birt grein um fyrirtæki stefnanda, verðlagsbrot firmans og óleyfilegan innflutning. Þar segir: „Vörur fyrir 280 þúsundir króna fluttar inn í leyfisleysi. Á að fela J. Þ. J. allan innflutning til landsins? Skutull skýrði frá því fyrir nokkru, að komizt hefði upp um stórfelld verðlagsbrot firmans (þ. e. fyrirtækis stefnanda) og óleyfilegan innflutning ...
Þegar að því kom, að viðskiptaráð skyldi ráðstafa vörunum, kemur það allt í einu í ljós, að andvirði vörunnar, sem flutt hafði verið inn í algjöru heimildarleysi, er ekki 13.000 dollarar heldur 43000 dollarar eða 280 þúsund íslenzkra króna að innkaupsverði ...“ Og svo kom ég þá loks að aðalsönnununum.

Það, sem fannst í tunnunum

Blaðið Skutull heldur áfram og segir frá: „Þegar tollyfirvöldin voru að athuga vörur þessar, kom í ljós. að í umbúðunum var ekki einungis spil, leikföng, samkvæmistöskur og ráptuðrur. heldur einnig álitlegur skjalabúnki. Við nánari athugun á honum kom í ljós. að þar voru ekki aðeins „faktúrur“ til hins íslenzka fyrirtækis. heldur höfðu einnig slæðzt þar með nokkrir reikningar frá amerískum verzlunarfyrirtækjum til þess fyrirtækis, sem seldi vörurnar hingað fyrirtæki stefnanda. Fyrirtækið ameríska hafði leyft sér að leggja á vörurnar allt að l00% af hinu eiginlega innkaupsverði hennar ...“

Blandast nokkrum hugur um það, sem les þessa framanrituðu kafla úr Skutulsgreininni, að ritstjóri blaðsins sveigir mjög að stefnanda, þáverandi formanni Nýbyggingarráðs, um það, að eiga sinn þátt í verðlagsbrotum fyrirtækis stefnanda? Hvers vegna spyr ritstjórinn, hvort fela eigi stefnanda innflutning til landsins? Um leið skýrir ritstjórinn frá hinum stórkostlegu innflutnings- og verðlagsbrotum fyrirtækis stefnanda og blaðið leggur á það mikla áherzlu, að stefnandi sé annar aðaleigandi fyrirtækisins. Leikur það á tveim tungum, að í spurningu ritstjóra Skutuls felst ásökun til stefnanda um þátttöku í þeim ráðum og samráðum, sem leitt hafa til hins ólöglega verknaðar? Hvað var annars til fyrirstöðu að fela stefnanda allan innflutning til landsins? ... Mundi ekki stefnandi vilja gera grein fyrir því, hversvegna umrædda „ameriska“ fyrirtækið sendi fyrirtæki stefnanda reikningana í tunnu innan um andlitspúðrið, pelsana, töskurnar og tuðrurnar, en valdi ekki hina venjulegu, viðurkenndu, heiðarlegu leið, sem sé póstinn?

Hversu langt er það fjarri sannleikanum, að faktúran í tunnunni hafi verið sönnunargagn fyrir hinu raunverulega innkaupsverði varanna? Hefði vara þessi verið greidd á eðlilegu verði þar vestur frá, hefði ekki þurft til þess nema 140 þúsundir króna í stað 280 þúsunda. Eru svikin og blekkingarnar ekki þjófnaður á íslenzkum gjaldeyri? í 48. tbl. Tímans 1945 er birt grein um þetta sama innflutnings- og gjaldeyrishneyksli fyrirtækis stefnanda. Þar er stefnandi ásakaður og gefið fyllilega í skyn, að hann sé meðsekur. Stefnandi höfðaði meiðyrðamál og fékk Tímann dæmdan í sektir fyrir að segja sannleikann, en samkvæmt refsilöggjöf þjóðarinnar er það líka sektarsök að segja sannleikann, ef hann er ljótur og kemur illa við, ekki sízt mikilsmegandi einstaklinga!

Þetta meiðyrðamál sannar þá fullyrðingu mína, að stefnandi hefur verið sakaður um þátttöku í hneykslismálum þessum um gjaldeyrisþjófnað og faktúrufölsun. Það sannar okkur sýknudómurinn, sem ég gat um. Fyrst ásökun. síðan sýknun. - í þessari grein Tímans standa þessi orð: „Fyrirtækið (þ. e. fyrirtæki stefnanda) hafði áður lagt fram falsaða reikninga til þess að ná hærra innflutningsverði og meiri álagningu á vörur sínar. Það sannaðist einnig, að það hafði flutt inn allt aðrar vörur, en því hafði verið veitt leyfi til af gjaldeyrisyfirvöldum."

„Faktúrufalsarinn“

Í þjóðviljanum 1. febrúar 1949 birtist grein, sem heitir „Faktúrufalsarinn“. Þar segir beinum orðum, að stefnandi hafi látið fyrirtæki sitt stela undan erlendum gjaldeyri kerfisbundið, eins og það er orðað. og leggja inn á erlendan banka án vitundar íslenzkra stjórnvalda. Svo lýsir blaðið lögbrotum fyrirtækja stefnanda. Þá stendur það skrifað: „Réttarhöldum lauk, þegar stefnandi varð ráðherra.“ Í umræddri grein er umbúðalaust og blátt áfram fullyrt, að stefnandi hafi látið eitt fyrirtæki sitt stela undan erlendum gjaldeyri. Er þetta ekki skýr sönnun þess, sem ég fullyrti á umræddum bæjarmálafundi, að stefnandi hafi verið sakaður um að vera gjaldeyrisþjófur eða sé sakaður um að vera það? í sömu blaðagrein er stefnandi kallaður faktúrufalsari eða faktúrusvikari. Ég legg áherzlu á þetta.

Vill svo stefnandi eða umboðsmaður hans mótmæla því, að hann sjálfur sé þessi margnefndi með fullu nafni. sem í umræddri Þjóðviljagrein er sakaður um að vera bæði gjaldeyrisþjófur og faktúrusvikari. Mér er það ráðgáta, hvers vegna stefnandi er að höfða mál út af slíkum staðreyndum sem þessum. Ætlast hann til þess, að hann fái svart dæmt hvítt? Hvernig getur hann ætlazt til þess, að hann fái sannleikann dæmdan lygi?

Ein af helztu forsendum stefnanda fyrir málshöfðan þessari er sú, að ég hafi talið hann stærsta gjaldeyrisþjóf og faktúrufalsara landsins, eins og honum þóknast að orða það eða láta orða það í sáttakærunni. Ég óska að taka það fram og legg á það áherzlu, að stœrð stefnanda í þeim efnum liggur mér í léttu rúmi. Ef stefnandi getur eða vill t. d. benda á annan. sem sakaður hefur verið um að vera stœrri en hann í umræddum lagabrotum, væri mér mikil þökk á þeim upplýsingum, því að þær myndu óneitanlega vera ný sönnun fyrir þeirri hyldýpisspillingu, sem margir þykjast hafa pata af að eigi sér stað eða sé látin viðgangast í viðskiptalífi þjóðarinnar og lifi þar sem fúi í lifandi trjám.

Á réttarskjali nr. 6 fullyrðir umboðsmaður stefnanda, að óvægustu andstæðingar umbjóðenda hans, stefnanda, hafi ýmist kallað hann faktúrufalsara eða faktúrusvikara. Þannig fullyrðir umboðsmaður stefnanda, að einn dómur hafi þegar gengið í þá átt að dæma refsingu fyrir slík ummæli, og „munu tveir vera rétt ókomnir“, segir þar ennfremur. Með þessum orðum sínum viðurkennir umboðsmaður stefnanda, Jón Eiríksson, skattstjóri og héraðsdómslögmaður, að stefnandi hafi verið sakaður um faktúrufölsun eða faktúrusvik. Ég er umboðsmanninum þakklátur fyrir játninguna. Það er laukrétt ályktað eða hugsað hjá umboðsmanni stefnanda, héraðsdómslögmanninum, að sýknudómur er bein afleiðing af tilefnislausu sakfelli. Mundi þá stefnandi eða umboðsmaður hans vilja eða geta neitað því, að sá hefur ver-ið sakaður, sem sýknaður er. Þetta er óhrekjandi röksemd, sem umboðsmaður stefnanda hefur nú viðurkennt. Umboðsmaður stefnanda er því farinn að bera mínu máli og mínum málstað vitni. Fyrir það er ég þakklátur og leyfi mér að vekja athygli dómarans á þeirri staðreynd.

Á sama réttarskjali segir umhoðsmaður stefnanda, að hann leggi á það áherzlu mér til sakfellis, að umdeild ummæli séu borin fram af embættismanni, skólastjóra gagnfræðaskólans hér. Þetta er býsna athyglisverð áherzla, því að umboðsmaður stefnanda, skattstjórinn sjálfur. virðist ekkert hafa við það að athuga, og gerist þar málssvari, þótt sjálfur fjármálaráðherra þjóðarinnar, æðsti gæzlumaður og verndari skattalaganna, alþingismaður og formaður Nýbyggingarráðs, væni alsaklausan skattþegn um skattsvik og þjófnað og láti útvarpa slíkum sakargiftum í eyru almennings á opinberum framboðsfundi. Og svo er órannsakað enn, hvern þátt skattstjórinn sjálfur, umboðsmaður stefnanda í máli þessu, á í þessu svívirðilega mannskemmdarmáli. Getur slíkt verið hneykslunarhella, þótt opinber embætismaður og skólamaður undrist slíkt hátterni ráðherra og alþingismanns og reyni að bera hönd fyrir höfuð sér? Og ekki er síður ástæða til að undrast slíka árás opinbers embættismanns á mannorð mitt. þegar sami ráðherra hefur verið sakaður um gjaldeyrisþjófnað og faktúrufalsanir. Sá er eldurinn heitastur, er á sjálfum brennur.

Í sáttakæru. málskjali nr. 10, kemur fram, að umboðsmaður stefnanda, eða stefnandi sjálfur. virðist algjörlega fallinn frá því, að framburður vitna hans standist lengur. Þannig eru þá hin upphaflegu málsrök stefnanda að engu orðin, grundvöllurinn brostinn og vitni hans dæmd ljúgvitni og meinsærisfólk. Stefnandi hefur því hafið nýtt mál á hendur mér samkvæmt nýrri stefnu og sáttarkæru til sóknar í framhaldssök, og byggist sú málsókn á þeim orðum mínum, sem ég viðurkenni að hafa sagt um stefnanda á margnefndum framboðsfundi og vitni mín hafa staðfest.

Ég hef áður í greinargerð þessari fært að því óyggjandi rök, og umboðsmaður stefnanda greitt þeim rökum óbeint atkvæði sitt á málskjali nr. 6, eins og áður segir, að orð min eru sannleikanum samkvæm og verða ekki hrakin. Síðast virðist réttarskjal 11, greinargerð umboðsmanns stefnanda, bera það með sér, að umboðsmaður stefnanda sé fallin frá öllum sínum fyrri málsrökum og horfinn af málsóknargrundvelli þeim, sem báðar sáttarkærurnar, málsskjal nr. 2 og nr. 10. byggjast á. Það eitt virðist aðeins eftir hjá umboðsmanni stefnanda, að fá mig dæmdan fyrir það að „bera út orðróm, sem almenningi þó var ekki kunnur“, eins og hann orðar það. Mér skilst, að umboðsmaður eigi hér við faktúrufalsanir og gjaldeyrisþjófnað, sem stefnandi hefur verið sakaður um. Ég mótmæli þessari firru umboðsmannsins harðlega. Dirfist umboðsmaðurinn að fullyrða þann orðróm ókunnan almenningi, sem skrifaðar hafa verið um margar blaðagreinar og birtar almenningi, svo sem í Skutli á ísafirði, Tímanum og Þjóðviljanum í Reykjavík og Eyjablaðinu hér í Eyjum. Slík bíræfni mun fátíð í málflutningi og hlýtur að vera sprottin af rökþrotum og úrræðaleysi í málsókn.

Ég hirði ekki um að telja upp allt það, sem ég hef sannað í þessari greinargerð, en ég undirstrika það, að ég hef sannað margfaldlega, að stefnandi hefur verið sakaður um gjaldeyrisþjófnað og faktúrusvik eða faktúrufalsanir, eins og það hefur verið orðað og ég fullyrti á margnefndum framboðsfundi.

Ég endurtek þá kröfu mína, að dómarinn rannsaki af alúð og með gaumgæfni, hver skrifaði umrætt bréf, sem deila þessi raunverulega reis út af,- hvort það muni satt vera, að umboðsmaður stefnanda, skattstjórinn sjálfur, hafi lánað það bréflesaranum, Guðlaugi Gíslasyni, til mannskemmdar mér á framboðsfundinum og ærumeiðingar, eða stefnandi sjálfur skrifað Guðlaugi bréfið í sama tilgangi. í öðru lagi krefst ég þess að dómarinn rannsaki, hvort þetta bréf sé e. t. v. svar við bréfi, sem skattstjórinn skrifaði stefnanda eða fjármálaráðuneytinu á sínum tíma og óskaði þar eftir því að þurfa ekki að eiga mig yfir höfði sér í yfirskattanefnd Vestmannaeyja, hvort skattstjórinn rægir mig í því bréfi og ærumeiði og í hvaða sambandi. Alls þessa krefst ég.

Ég mótmæli harðlega öllum málflutningi og öllum málsrökum stefnanda og umboðsmanns hans grein fyrir grein, lið fyrir lið og orði til orðs að því leyti sem það fer í bága við málstað minn, málsrök mín og málflutning. Ég krefst þess, að dómarinn sýkni mig af öllum sakargiftum þeirra, sektarkröfum og málskostnaði. Þá krefst ég þess, að dómarinn dæmi mér hæfilega þóknun fyrir umstang það og amstur, sem þessi tilefnislausa bekkingartilraun eða árás hefur valdið mér. Ég legg svo málið í dóm með fyrirvara.

Þorsteinn Þ. Víglundsson.“

Að sjálfsögðu mótmælti héraðsdómslögmaðurinn, skattstjórinn, málflutningi mínum, greinargerð þeirri, sem hér er birt. Hann fann henni það helzt til foráttu, að ekkert lögfræðilegt bragð væri að henni, heldur væri hún skrifuð eins og blaðagrein! Það þótti mér fyndin og brosleg málsvörn. - Auðvitað gat hann ekkert sagt, þar sem greinargerðin var tekin svo að segja orðrétt upp úr Lögregluþingbók og Dómabók Reykjavíkur, var afrit af bókun þar, sem sjálfur sakadómari ríkisins hafði sent mér. - Nú varð héraðsdómslögmaðurinn og ráðherrann að treysta á dómarann. Að öðrum kosti var málið tapað. Á þessum árum voru skattsjórarnir að hundelta alla þá, sem unnu sjálfir að þvi baki brotnu að byggja sér og sínum íbúðarhús af litlum efnum en atorku og dugnaði. Þeir skyldu vissulega fá að greiða ríflega skatta af þeirri vinnu sinni og sinna, ef þeir gátu notið hjálpar heimilis eða fjölskyldufólks síns. Sumir skattstjórar kölluðu það íllrætna eiginhagsmunahneigð, ef þessir húsbyggjendur, en megin þorri þeirra voru eignarlausir menn, gerðu ekki fyllilega grein fyrir svo að segja hverri vinnustund, sem þeir og heimilisfólk þeirra bjástraði við að koma upp húskofanum og notaði til þess svo að segja hverja tómstund, sem gafst. Þannig var þetta með skattstjórann í Vestmannaeyjum. Bréf, sem ég læt fljóta hér með, sannar þetta og veitir þér eilitla sýn inn í sálarlífið og hugsunarháttinn. Þess vegna eru bréf þessi söguleg plögg. Og þau sanna meira. En þær sannanir læt ég þig finna sjálfan út úr efni bréfanna. Beittu þar sálfræðilegri kunnáttu þinni.

Meðan dómarinn var að hugleiða, hvaða hefnd hæfði mér bezt fyrir þá bíræfni að taka ekki þegjandi við skattsvika- og þjófsstimplinum úr hendi fjármálaráðherra, heldur reyna að verja æru mína og mannorð, þá skrifaði ég fjármálaráðuneytinu og krafðist þess enn á ný, að ég fengi afdráttarlaust svar við því, hvort ekkert bréf lægi í fórum þess frá skattstjóranum í Vestmannaeyjum varðandi framtöl mín og skattamál. Þeir háu herrar höfðu til þessa skirrzt við að svara þeirri spurningu afdráttarlaust, - aðeins sagt. að ekkert bréf hefði verið sent frá ráðuneytinu varðandi þessi mál mín. Nú var nýr fjármálaráðherra setztur í ráðherrastólinn, og e. t. v. hefði þá fundvísi hinna virðulegu embættismanna ríkisins glæðzt og viljinn vaknað. Aldrei að vita!

Og svo liðu tveir mánuðir. Mikið hlaut að vera djúpt á þessum bréfum! Já, ég endurtek: Ég reyndi af fremsta megni að kría út afrit af skattstjórabréfunum hjá ráðuneytinu, meðan dómarinn í Vestmannaeyjarkaupstað var að íhuga, hvað mér bæri að greiða íslenzka ríkinu í sektir fyrir þá veittu þjónustu sjálfs ráðherrans að ærumeiða mig og svívirða og vinna til að brjóta gildandi landslög til þess að koma þeirri ósk sinni og þjónustu i framkvæmd. Og sjá: Fundvísi hinna háu herra þar syðra fór greinilega vaxandi með nýjum fjármálaráðherra. Bréfin fundust og afritin fékk ég. Ég vil gjarnan eiga afritin á prenti. Þú færð þau hér með:

Eftirrit

„Skattstjórinn í Vestmannaeyjum.“

Fjármálaráðuneytið Reykjavík

(Stimpill)

Vestmannaeyjum, 29. júlí 1948.

Herra fjármálaráðherra Jóhann Þ. Jósefsson. Þar sem þér hafið óskað eftir því, að ég gerði fyllri grein fyrir óhæfni Þorsteins Víglundssonar í yfirskattanefnd, er mér ljúft að verða við þeim tilmælum, enda þótt ég telji, að formanni yfirskattanefndar, Freymóði Þorsteinssyni, bæjarfógeta, beri að eiga frumkvæðið að því, sbr. 36. gr. reglug. um tekjuskatt og eignaskatt. Ég vil þó taka fram, að ég tel mál þetta mér á engan hátt óviðkomandi, þar sem ég sætti mig illa við það, að gjörðir mínar sæti gagnrýni, sem byggð er á eiginhagsmunum. Sem kunnugt er hefur Þorsteinn átt hús í byggingu, og er alkunnugt, að bæði hann og hans fólk hefur unnið verulega að þeirri húsbyggingu. Þegar hús hans var metið í vetur. kom fram verulegur mismunur þannig, að matið reyndist hærra en húsverð eftir framtali. Eftir þeim upplýsingum, er ég hefi aflað mér. mun matið sízt of hátt. Ég sá mér ekki annað fært en að bæta við tekjur hans eigin vinnu. Aðrir ágallar voru á framtali hans. Þorsteinn hefur kært skatt sinn til mín í löngu bréfi. Heldur hann því þar fram mjög eindregið, að þessi liður heyri undir 17. gr. laga um eignakönnun og beri því ekki að skattleggja hana sem tekjuauka. Það er kannski ekkert að því að finna, þótt Þorsteinn hafi sínar skoðanir á 17. grein. En annað er það, að þessar skoðanir hans byggjast tvímælalaust á eiginhagsmunum. Hinsvegar er 17. gr. eitt af þýðingarmestu ákvæðum um skatta í ár og leiðir því óhæfni hans í eigin máli til þess, að hann er óhæfur í málum annarra, sennilega flestra. Annað skal ég nefna, sem bendir til þess, að hann láti eiginhagsmuni ráða gjörðum sínum. Á framtali hans vantaði laun fyrir aukakennslu og var því bætt við framtaldar tekjur. í kærubréfi sínu segir hann, að sér beri ekki að greiða skatt af þessum launum vegna þess, að hann hafi gefið Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja kvikmyndavél fyrir andvirðið og hafi hann ekki talið það fram þessvegna, sem sagt viðurkennir að hafa dregið undan skatti af ásettu ráði, og er það blindaður af eigin hagsmunum, að hann heldur því enn fram. að slíkt sé leyfilegt. Ég tel nær að ætla að skilningur hans á 17. grein sé af sama toga spunninn. Ég hefi snúið mér til Freymóðs Þorsteinssonar, bæjarfógeta, og bent honum á þessi atriði, en mér er ókunnug fyrirætlan hans í því efni, en yfirskattanefnd er nú þegar farin að starfa. Hinsvegar mun Sigfús Scheving vera mér sammála í þessu. Sveinn Guðmundsson er nú forfallaður og er engin von til þess, að hann í sumar komi svo til heilsu, að hann geti starfað í nefndinni. Ég tel því réttast, að aðalmaður væri settur í sumar í stað Sveins, enda væri þá fullkomlega tryggt, að Þorsteinn kæmi þar hvergi nærri. Ég vil taka það fram, að ég hefi augastað á manni hér. þ. e. Jónasi Jónssyni í Fagurlyst. Hann er í fyrsta lagi öllum þeim kostum búinn hvað hæfni og manngildi snertir, sem slíkir menn þurfa að hafa. Auk þess eru þau framtöl, sem hann hefur staðið að, þannig úr garði gerð, að það er algerlega útilokað, að nokkur ágreiningur geti orðið um þau. en til minna gagns væri að setja mann í starfið, sem meira og minna yrði forfallaður.

Virðingarfyllst

Jón Eiríksson“ (sign).

„Hans fólk“

Ég undirstrika sjálfur orð skattstjórans í bréfinu: hans fólk. Hversu mikla vinnu mátti af því vænta eftir aldri þess og aðstöðu allri? Ég hóf að byggja íbúðarhúsið okkar Goðastein (nr. 11) við Kirkjubæjarbraut vorið 1945, fljótlega eftir að skólastarfi mínu lauk það vor. Síðan vann ég við það allar stundir næstu fimm sumrin nema þær, þegar ég innti af hendi skyldustörf mín í Sparisjóði Vestmannaeyja. Oft tók ég daginn snemma. Hversu miklar líkur voru til þess, að þetta fólk mitt hefði innt af hendi vinnu við húsbygginguna svo að einhverju munaði um byggingarframkvæmdirnar og -kostnaðinn?

Konan mín hafði 6-7 manns í heimili og barn í vöggu, svo að lítil likindi voru til þess, að hún afkastaði miklum húsbyggingarstörfum. Þar á ofan höfðum við búskap, höfðum kýr að hirða, því að við vorum bóndahjón öðrum þræði. Við bjuggum á einni Vilborgarstaðajörðinni, Háagarði.

Þá voru það börnin okkar hin, sem komin voru á legg. Eldri sonur okkar hvarf frá okkur sumarið 1946 og hóf rafvirkjanám í Hafnarfirði. Þá hafði hann stundað síldveiðar fyrri hluta sumarsins. Vinna hans heima 1947 var því engin.

Eldri dóttir okkar var 16-17 ára og dvaldist þá í sveit á sumrum, eftir að námi lauk að vorinu. Var mikils starfs að vænta af henni við húsbygginguna? Yngri sonur okkar var innan við fermingu. Mundi taka því að telja afköst barna á þeim aldri við húsbyggingar fram til skatts?

Þá er enn ótíundaður „vinnukraftur“ á heimili okkar hjóna. Það var tengdamóðir mín á níræðisaldri. Skyldi það „vinnuafl“ hafa komið mér að miklu liði við húsbygginguna?

Þetta var þá hans fólk, sem tveir háttsettir embættismenn íslenzka ríkisins voru að velta fyrir sér, hversu mjög það hlyti að hafa aukið tekjur mínar og eignir og svo afköst við byggingarframkvæmdirnar að eiga þess kost að njóta þar þessa vinnuafls. - Ég blygðast mín, ég skammast mín, þegar ég eftir 2-3 áratugi hvarfla huga að þessu máli, af því ég er viðkvæmur fyrir virðingu og sóma þjóðar minnar. Ég fyrirverð mig vegna þeirrar sneypu, sem slíkir og þvílíkir embættismenn eða opinberir starfsmenn valda þjóð minni, og hversu litlar kröfur eru gerðar til manngerðanna, þegar skipað er í hin valdamiklu og virðulegu embætti. Þar ræður annar mælikvarði, annað sjónarmið gjörðum en ... Mundu slíkir embættismenn vera líklegir til að fremja lagabrot og stunda þjófnað á ríkismerktum bifreiðum á heiðum uppi? Nei, fjarri fer því! Þannig beita þeir aldrei orku sinni.

Og nú þurfti svo sannarlega á léttri lund að halda og eiginleikanum þeim að sjá hið skoplega í tilverunni í kringum sig. Þá minntist ég Björns bónda í Mörk, Björns að baki Kára, litlu munnhetjunnar í Njálu, og ég sagði við konuna mína, sem í fjarveru minni við skyldustörfin hafði gegnt því hlutverki að kvitta fyrir stefnurnar með nafninu sínu, þegar stefnuvottana bar að garði: „Aukizt hafa nú heldur vandræðin, kerling, en glögglega máttu sjá, hvílíkan afreksmann þú átt til allra verka við húsbyggingar, þar sem afköst mín við verkið eru svo mikil, að mismunur á tilkostnaði, efni og vinnu, og svo mati hinna sannsýnustu manna nemur tugum þúsunda, enda fórstu ekki ein, þegar þeir fundu út, hversu miklu við afköstuðum saman við byggingarframkvæmdirnar. Við vorum þrjú við afköstin. Sú litla, sem þú gekkst með, hefur skilað drjúgum afköstum! Nei, það blekkir enginn auðveldlega svona menn, ráðherra, þingmenn og skattstjóra!“

Sannleikurinn er sá, að ég varð aldrei var við þessa matsmenn, þeir komu a. m. k. aldrei að byggingunni meðan ég var þar staddur. Þeir hafa þá framkvæmt mat þetta sem eins konar myrkraverk. Það er vitað, að sé embættismaður sannur að lygi um eitt, þá getur hann logið öðru og er ekki ólíklegur til þess. Um það leyti sem þetta málastapp hófst, hafði yfirskattanefndin í Vestmannaeyjakaupstað sannfærzt um, að þessi hundelting skattstjórans var í alla staði heimskuleg. Yfirskattanefndin gerði samþykkt varðandi þessa skattgreiðslu og fylgdi henni fram í starfi sínu. Þá var Sigfús M. Johnsen bæjarfógeti í Vestmannaeyjum. Hann skýrir svo frá í bók sinni Yfir fold og flæði: „Við urðum á eitt sáttir að fella niður skatt af vinnu manna við að koma upp eigin húsnæði, en að því unnu Vestmannaeyingar af sínum alkunna dugnaði. Með skattfrelsi þessu var gefið mikilsvert fordæmi. - Lög voru síðan samþykkt að slík vinna skyldi skattfrjáls.“

Þessa málsvörn mína, sem ég hef skráð hér að framan, birti ég síðar í einu af bæjarblöðunum í Vestmannaeyjum til þess að „háttvirtum kjósendum“ þingmannsins gæfist kostur á að kynnast eilítið einkarekstri hans og fjármálastússi. Afleiðingarnar urðu meiri og afdrifaríkari en ég hafði gert mér í hugarlund. - Dragðu þínar ályktanir, þegar þú hefur lokið því að lesa þetta bréf og páraðu mér síðan línu við tækifæri.

Og við trúum báðir, þú og ég, frændi minn góður, á gildi góðs uppeldis, sérstaklega hins kristilega uppeldis. Og teljum það veigamikið atriði, að heimilin séu vel vaxin því þjóðheillastarfi. - Skattstjórinn ólst upp á einu kunnasta prestsetri í Borgarfirði, þar sem faðirinn, sóknarpresturinn, bar hinn háa fræðatitil í kristilegum vísindum:

Þjónn fjármálaráðherra skyldi m. a. fjalla um framtöl fyrirtækja hans í kaupstaðnum.

Og hver var svo þessi Jónas Jónsson, sem skattstjórinn benti fjármálaráðherranum á til þess að taka sæti mitt í yfirskattanefndinni, þegar ráðherrann hafði rekið mig úr henni fyrir „skattsvikin“? Hann var enginn annar en verzlunarþjónn sjálfs ráðherrans! Það munaði ekki um það! Þjóni ráðherrans átti að veita úrskurðarvaldið, og hann átti m. a. að fjalla um framtöl fyrirtækja sjálfs ráðherrans í Vestmannaeyjum. Þessi Jónas Jónsson var vissulega fyrir margra hluta sakir nýtur maður og heiðarlegur. En þjónn er þjónn og skylda þjónsins er tillitssemi og hlýðni gagnvart húsbónda sínum. Annars er hann enginn þjónn.

Þó að ráðherrann ræki mig úr yfirskattanefndinni fyrir „skattsvikin“ að tillögu skattstjóra og einlægri ósk hans sjálfs, þá var Jónas Jónsson aldrei skipaður í hana. Þar komu öfl til, sem ráðherrann óttaðist. Eigi að síður var það ákaflega vinsamlegt af skattstjóranum að leggja þetta til! Það bar vott um mikla þjónslund, auðmýkt og undirgefni. Og mér er tjáð, að þá eiginleika kunni flestir valdamenn að virða!

Annað bréf skattstjórans

Annað bréf skrifaði skattstjórinn í Vestmannaeyjum fjármálaráðherranum haustið 1948. Það fjallaði um störf mín í yfirskattanefndinni, þar sem ég var fleinn í holdi stórgróðamannanna í bænum. Ég vek athygli þína á því, að skattstjórinn vill hafa samráð við sjálfan fjármálaráðherrann um sparkið í mig en ekki fjármálaráðuneytið sjálft. Bolabrögðin máttu ekki komast í hámæli, en þjóð veit, þá þrír vita, stendur þar. Hér birti ég þér svo annað bréfið, þar sem flokksbróðir minn skal víkja fyrir verzlunarþjóni ráðherrans, þar sem bæjarfógeti dró það við sig að leggja til, að mér yrði sparkað.

„Skattstofan í Vestmannaeyjum.

Vestmannaeyjum, 9. nóv. 1948.

Með tilvísun til símtals yðar við mig, hr. fjármálaráðherra, leyfi ég mér hér með að senda yður afrit af bréfi mínu til yðar dags. 29. júlí s.l. Til frekari skýringar vil ég taka fram:

Yfirskattanefnd hefur nú lokið störfum, og vék Þorsteinn Víglundsson sæti, er úrskurðaðar voru kærur um eigin vinnu við húsbyggingu. Sæti hans tók Halldór Guðjónsson, skólastjóri. Ég hafði áður en ég sendi yður fyrra bréf mitt leitað mér upplýsinga á skrifstofu bæjarfógetaembættisins, hvort nokkur væri til að taka sæti Þorsteins, og var mér tjáð, að svo væri ekki. Eins og kemur fram í bréfi mínu, taldi ég æskilegt, að Þorsteinn kæmi hvergi nærri, eins og á stóð, en úr því sem komið var, tel ég engu verði um þokað. Ég hef hins vegar gjört mínar athugasemdir við ákvarðanir yfirskattanefndar til ríkisskattanefndar. Ef ég man rétt, mun tími Sveins Guðmundssonar brátt útrunninn. Ég leyfi mér því að gera það að tillögu minni, að í hans stað verði tilnefndur Jónas Jónsson, Fagurlyst, sem aðalmaður, en Stefán Árnason sem varamaður.

Virðingarfyllst.

Jón Eiríksson, skattstjóri“ (sign)

Þessi bréf skattstjórans til fjármálaráðherra birti ég síðan almenningi í einu af blöðunum í Vestmannaeyjakaupstað, svo að Eyjabúum gæfist kostur á að vega og meta starfið hans að tjaldabaki, viðleitni hans til að níða og mannskemma, - kynnast bróðurlegri samstöðu tveggja virðulegra embættismanna íslenzka lýðveldisins til þess að hnekkja æru andstæðings síns, sem þeir töldu, að þeim gæti stafað hætta af í vissum skilningi, manns, sem ekki fékkst til þess að sjá „í gegnum fingur“ um eitt eða neitt, - og ekki heldur framtöl stórtekjumanna og fjáraflafursta. Þess vegna óstarfhæfur! í deilum þessum reyndi skattstjórinn eftir mætti að bera hönd fyrir höfuð sér eins og vænta mátti. Eyjabúar hlógu, hristu höfuðið og hlógu. Þeir skemmtu sér konunglega.

í skrifum skattstjórans sér til varnar eða yfirklórs gaf að lesa þessa athyglisverðu klausu: ..í greinargerð sinni segir Þ. Þ. V., að ég hafi sagt ósatt í bréfi mínu til ráðherrans um, eigin vinnu hans og hans fólks. Setjum svo ...“ Taktu vel eftir siðustu orðunum: Setjum svo, þ. e.: Gerum ráð fyrir því, að ég hafi logið á hann honum til mannskemmda og æruhnekkis. Þarna fékk ég loks því til leiðar komið með skrifum mínum, að skattstjórinn bjargaði mannorði mínu með því að neyðast til að viðurkenna ósannindi sín. (Sjá Vestmannaeyjablaðið Fylki, 14. tbl. 20. apríl 1951, bls. 21. Öðrum þræði óska ég að sanna þér, vinur minn og frændi, hversu mannréttindi vissra manna í Vestmannaeyjum voru óendanlega lítil og mannorð þeirra í mikilli hættu fyrir svo sem aldarfjórðungi og þá undanfarin síðustu 40 árin, eftir að stétt peningamanna, kaupmanna og konsúla, náðu þar algjöru tangarhaldi á atvinnulífinu, fjármagninu og stöðum öllum í trúnaðarstörf, eftir að einokunarverzlunin danska leið undir lok (1910).

Skattstjórinn tekur það fram í svari sínu við skrifum mínum, að bréf þessi um framtal mitt og „skattsvik“ hafi aldrei verið œtluð almenningi til lesturs. Þessu trúði ég og trúi enn. Það er engin ástæða til að rengja þessa fullyrðingu hans. Slíkar æruskerðingar áttu auðvitað ekki að verða almenningi kunnar. Þeim var ætlað að liggja í fórum fjármálaráðuneytisins, en hins vegar skyldu afleiðingarnar verða lýðum kunnar. Og mér fannst þetta allt ganga með afbrigðum vel. Ég þóttist af því að hafa skotið skattstjóranum ref fyrir rass, svo að hann varð uppvís að ósóma, sem illa hæfði embættismanni ríkisins. Og svo drógum við dár að þessu öllu saman, hlógum og skemmtum okkur konunglega. Þó fundum við til með þjóð okkar, íslenzka lýðveldinu. Sú tilfinning endurtók sig hjá mér, þegar ég á dögunum frétti um fjallavatnsþjófana á merktu ríkisbifreiðinni.

Dómsmálaráðuneytið hylmar yfir nafn bréfritarans

En nú, þegar hér var komið máli, knúði ég afdráttarlaust á, að ég fengi skýlausa yfirlýsingu um það, hver hefði skrifað „skattsvikabréfið“ og sent það Guðlaugi Gíslasyni til upplesturs á fundinum. Ég skrifaði þess vegna dómsmálaráðuneytinu bréf og beiddist rannsóknar í máli þessu.

Í einskonar andvaraleysi, að mér fannst, fyrirskipaði dómsmálaráðherra rannsóknina.

Fulltrúi bæjarfógeta, dómarinn, tjáði mér og viðurkenndi, að hann hefði framkvæmt þessa rannsókn af gaumgæfni, og lægju niðurstöður fyrir. Hins vegar væri það algjört bann dómsmálaráðuneytisins, að ég fengi að vita hið sanna í þessu máli, svo að það væri staðfest. Nafn bréfritarans fengi ég aldrei skjallega i hendur, fullyrti dómarinn. Það væri af og frá. - Þarna fékk ég þá enn að reyna íslenzkt réttarfar, - lítilsvirðinguna fyrir lagalegum rétti hins óbreytta þegns, þegar háttsettur embættismaður og „flokksbróðir“ á hlut að máli.

Kveikjan

Þessi tvö bréf skattstjórans til fjármálaráðherra íslenzku þjóðarinnar, alþingismanns kjördæmisins, voru auðvitað skrifuð i samráði við hann sjálfan, enda vitnar skattstjórinn i samtöl, sem hann átti við sjálfan ráðherrann um málin. Bréfin urðu þess valdandi, að fjármálaráðherrann skrifaði „skattsvikabréfið“ og sendi það Guðlaugi Gíslasyni, formanni Flokksins, til upplesturs. Honum bar að lesa það í eyru almennings á framboðsfundinum og það gerði hann rækilega mér til mannskemmda og æruhnekkis. En allt snérist þetta við. Árásin virtist auka fylgi „skattsvikarans“. Dómgreind Eyjafólks brást mér ekki eins og ég lagði áherzlu á í bréfi mínu til þín, frændi minn og vinur, árið 1974.

Og nú átti Sveinn Guðmundsson að víkja úr yfirskattanefndinni fyrir verzlunarþjóni ráðherrans, Jónasi Jónssyni. En þá brást ráðherra kjark sökum hræðslu við viss öfl í þjóðfélaginu, m. a. viss dagblöð. Sveinn Guðmundsson sat því áfram í yfirskattanefndinni. Ekki fékk skattstjórinn heldur því framgegnt, að formaður fulltrúaráðs Flokksins, yfirlögregluþjónninn, yrði skipaður varamaður í yfirskattanefndina. Ráðherra mun hafa brostið kjark til þess sökum afstöðu bæjarbúa og svo blaðamanna líka heima í kaupstaðnum. Áróðurinn gat þá orðið bitur og sár og kostað töluvert.

Dómurinn fellur

Fulltrúi bæjarfógeta, sem hafði einskonar „prókúru“ eða umboð frá dómsmálaráðuneytinu til þess að fella dóma í ýmsum málum í kaupstaðnum án afskipta bæjarfógeta, lauk nú loks við að fella dóm í meiðyrðamáli fjármálaráðherra gegn Þ. Þ. V. Þá kom í ljós, að afla mátti ríkissjóði tekna með því að háttsettir embættismenn ríkisins gerðu sér það til dægrastyttingar að ærumeiða þegnana af tilefnislausu og gegn gildandi landslögum. Ég var dæmdur til að greiða ríkissjóði kr. 1000,00 fyrir þá bíræfni eða ósvífni að svara ráðherranum fullum hálsi, þó að hann gerði sér það til gamans að reyna að svipta mig ærunni. Jafnframt var ég dæmdur til að greiða honum sjálfum kr. 400,00 í málskostnað. Samtals nam þessi greiðsla tæpum hálfsmánaðarlaunum mínum, eins og föst laun mín voru þá.

Og hvað hafði ég svo til saka unnið? Ég hafði fórnað eigin fjármunum í vandræðum mínum til þess að gagnfræðaskólinn gæti eignast nauðsynlegt tæki til að efla félagsstörfin í skólanum, sem áttu að auka áhrif hans í uppeldisstarfi stofnunarinnar. Í öðru lagi leitaðist ég við af fremsta megni að ná valdaaðstöðu, svo að ég gæti hindrað það, að byggingarframkvæmdirnar við gagnfræðaskólahúsið yrðu stöðvaðar í miðjum klíðum.

Ég hrósaði happi að hafa ekki ráðið mér málafærslumann. Ég vissi deili á kerfinu og þekkti allt mitt heimafólk, vissi fyrirfram, hvernig dómurinn myndi falla.

Ég sendi þér, frændi minn, afrit af bréfum mínum til dómsmálaráðuneytisins, þegar ég reyndi eftir megni að sækja rétt minn í skaut þess:

Vestmannaeyjum, 12. des. 1950.

Með bréfi dags. 25. júlí s.l. til yðar, tjáði ég yður, að formaður Sjálfstæðisflokksins hér, Guðlaugur Gíslason, kaupmaður, Skólavegi 21 hér í bæ, hefði á almennum framboðsfundi 27. jan. s.l. lesið upp bréf, sem hann sagði vera frá „ráðuneytinu“ og fjallaði um skattamál mín.

Í þessu bréfi mínu til yðar beiddist ég þess, að þér létuð fram fara réttarrannsókn í máli þessu, hver væri höfundur bréfsins, hvernig hann hafði fengið efnið í bréfið, hvort bréfið var upphaflega sent nefndum Guðlaugi til upplesturs á fundinum eða hvort annar maður hefði lánað honum það, t. d. skattstjórinn hér, til upplesturs í eyru almennings.

Bæjarfógetinn hér hefur tjáð mér, að þér hafið fyrirskipað rannsókn í máli þessu og að rannsókn hafi farið fram. Hinsvegar hefur bæjarfógetinn neitað mér afdráttarlaust um að fá að kynnast þvi, sem fram fór í þessum réttarhöldum og að fá lesið yfir það, sem skráð kann að hafa verið í þeim. Mánuðir munu liðnir, síðan þessi réttarhöld fóru fram, og enn hef ég ekkert frá yður heyrzt heldur um þau.

Ég þykist eiga þegnlegan rétt á að fá ýtarlega greinargerð um þessi réttarhöld og leyfi mér því hér með að biðja yður með fullkominni virðingu að láta mér í té leyfi til þess að lesa réttarbækur fógeta þar um og að þér tjáið mér jafnframt, hvað þér ætlizt fyrir í málinu. Ég sætti mig ekki við að verða að trúa því, að réttarfarið i landinu sé svo rotið og máttvana, að hægt sé að lesa meiðyrðabréf í eyru almennings, án þess að sjálft dómsmálaráðuneytið sé því vaxið með öllu undirliði sínu að fá upplýst, hver er höfundur bréfsins eða hvaðan efni þess er fengið. Ég krefst þess, að þér gerið skyldu yðar í þessu máli og sýnið myndugleik yðar.

Í Tímanum 15. apríl 1950 er fullyrt, að skattstjórinn hér hafi lánað þetta umrædda bréf til upplesturs á umræddum fundi. Ég leyfi mér hér með að benda yður á þetta og krefjast enn rannsóknar.

Virðingarfyllst.

Þorsteinn Þ. Víglundsson.

Dómsmálaráðuneytið,
Reykjavík.

Og enn barst mér ekkert bréf frá dómsmálaráðuneytinu. Hins vegar tjáði fulltrúi bæjarfógeta mér, dómarinn, að dómsmálaráðuneytið bannaði sér enn afdráttarlaust að segja mér niðurstöðu rannsóknarinnar. Nafnið á höfundi „skattsvikabréfsins“ fengi ég aldrei skjalfast í hendur. Og þetta tjáði dómarinn mér brosandi. Ég skyldi ofur vel hvað klukkan sló. Hæstiréttur var kunnur að því að dæma að lögum.

Í aðra röndina fannst mér þetta orðið broslegt fyrirbrigði. Hræðslan við þennan sektaða þegn, sem greitt hafði ríkissjóði þó nokkurt fé, nær hálf mánaðarlaun sín, fyrir þá þjónustu eins af ráðherrunum, að æruskerða þegninn alsaklausan. Það gat orðið dýrt spaug ráðherranum, ef t. d. Hæstiréttur fengi mál þetta til meðferðar. Það óttuðust hinir háu herrar í embættismannaklíkunni. Vika leið af næsta ári (1951). Þá skrifaði ég dómsmálaráðuneytinu þriðja bréfið. Það fer hér á eftir:

Vestmannaeyjum, 7. jan. 1951.

Þar sem ég hef ekki enn fengið nein svör frá yður eða greinargerð varðandi erindi mitt í bréfum mínum dags. 25. júlí og 12. des. f. á., þá leyfi ég mér enn á ný að biðja yður eða krefjast þess, að þér svarið erindi mínu um rannsókn í því máli, er þar um er fjallað og sendið mér ítarlega greinargerð um rannsókn þess, hafi hún farið fram, sem bæjarfógetinn hér fullyrðir, þó að hann jafnframt neiti mér um að kynnast rannsóknarskjölunum eða bókunum þar um, að mér skilst samkvæmt boði yðar. Jón Eiríksson skattstjóri, sem rak meiðyrðamál á hendur mér s.l. ár fyrir hönd upplesara umrædds „skattsvikabréfs“, lýsti því yfir í bæjarþingi Vestmannaeyja í september s.l. haust, að þetta umdeilda bréf væri víst. Hann neitaði því jafnframt ekki, að það mundi finnast á vegum Jóhanns Þ. Jósefssonar, þá krefst ég þess, að framhaldsrannsókn verði látin fara fram í þessu máli og mér gefinn kostur að vera áheyrandi þeirra réttarhalda.

Ef þér enn ætlið yður að hunza þetta erindi mitt og leyfa mér ekki að fylgjast með þessum rannsóknum eða ganga úr skugga um, að þær nokkru sinni hafi fram farið, hlýt ég að álykta, að réttarfarið í landinu undir yðar valdi sé meira en lítið rotið og görótt og vilhalt flokksbræðrum yðar, þ. e. dómsmálaráðherra.

Hafi ég ekki fengið fullnægjandi svör frá yður fyrir lok þessa mánaðar, mun ég endurtaka þessa beiðni mína til yðar opinberlega og birta almenningi þessi bréf mín. Afrit af bréfi þessu er sent sjálfum dómsmálaráðherranum.

Virðingarfyllst.

Þorsteinn Þ. Víglundsson.

Til Dómsmálaráðuneytisins, Rvík.

Tók því fyrir þessa valdamenn íslenzka lýðveldisins að fordæma réttarfarið „austantjalds“?

Og sjá: Nú loks var mér anzað!

- Bjarni Benediktsson var orðinn dómsmálaráðherra. Hann fól einum af strfsmönnum sínum að eiga símtal við mig.

Erindið var þríþætt.

Í fyrsta lagi tilkynnti þessi starfsmaður dómsmálaráðuneytisins mér, að sannazt hefði, að höfundur þessa svokallaða skattsvikabréfs, var enginn annar en fyrrverandi fjármálaráðherra, þingmaður Vestmannaeyinga, sem þá hafði skipt um hlutverk og var nú orðinn sjávarútvegsmálaráðherra, þegar hér var komið sögu.

Í öðru lagi hafði það sannast, að efni bréfsins voru bréf skattstjórans í Vestmannaeyjum til fyrrv. fjármálaráðherra varðandi framtöl mín og samspil þeirra í þessu máli.

Í þriðja lagi færði starfsmaðurinn mér þá einlægu ósk dómsmálaráðherrans, sem jafnframt var kennslumálaráðherra og þannig húsbóndi minn að vissu marki, að gera það fyrir sín orð, að láta þetta mál falla niður, því að afleiðingarnar af þessum skrifum fyrrverandi fjármálaráðherra gætu orðið óhugnanlegar einum og öðrum aðila, ef málið yrði t. d. dæmt að lokum í Hæstarétti.

Jafnframt þessari málaleitan kennslumálaráðherrans æskti hann þess, að takast mætti góð samvinna á milli okkar í fræðslumálum Vestmannaeyinga.

Ég fór að orðum Bjarna Benediktssonar, dóms- og kennslumálaráðherra, og lét málið falla niður. Ég þekkti hann af afspurn og treysti honum, treysti á manndóm hans og góðvild í framfaramálum. Ég viðurkenni það fúslega, að hér réði eigingirni mín gjörðum mínum. Ég sá hugsjónamálum mínum hag í því að eiga kennslumálaráðherrann að í þeim málum. Enda get ég fullyrt það, að enginn kennslumálaráðherra reyndist mér betri, meðan ég var skólastjóri í Vestmannaeyjum, en Bjarni Benediktsson að öllum hinum ólöstuðum. Ráðherrann kom til Eyja árið eftir að við sömdum frið. Fyrstu gjörðir hans í kaupstaðnum var að koma í skólann til mín. Þá vorum við flutt i kjallara nýbyggingarinnar með skólann. Erindi ráðherrans var að ráðgast við mig um frekari framkvæmdir við bygginguna og útvega peningalán til þeirra hluta. Ég hafði þá á hendi til veðsetningar fyrir byggingarláni flestar eignir kaupstaðarins við höfnina. Og ráðherrann gerði sitt bezta til að útvega bæjarsjóði Vestmannaeyinga lán út á eignir þessar. Það fé skyldi síðan notað til þess að fullgera gagnfræðaskólabygginguna. Ráðherranum varð vissulega minna ágengt í þessum efnum hjá tryggingarfélögum en hann ætlaði í fyrstu. Kom þar margt til. En mörg ráð hafði hann í hendi sér. Og ég mat og dáðist að vilja hans og þjónslund við þessa byggingarhugsjón mína.

Þannig sneru hin duldu öfl þessari ofsókn mér til góðs í þessu starfi, hugsjón minni til eflingar og framdráttar.

Og líklega átti „skattsvikabréfið“ drýgstan þáttinn í því mikla fylgi, sem við Helgi Benediktsson hlutum við bæjarstjórnarkosningarnar 1950. Dómgreind Eyjafólks brást mér ekki, þegar á reyndi fremur en fyrri daginn. Og vísa ég þá til Bréfsins til þín í Bliki 1974.

Og svo leið blessaður tíminn með nýjum málsóknum, stefnum, vitnaleiðslum, meinsærum og dómum. Ég varðist af fremsta megni og skemmti mér konunglega.

Eins og ég hef tjáð þér, þá lét ég Framsóknarblaðið í kaupstaðnum birta almenningi alla greinargerð mína, sem hér er birt, sókn og vörn í deilunni við fjármálaráðherrann og skattstjórann. Það fannst mér borgaraleg skylda eins og komið var.

Þau skrif voru mikið lesin í bænum og rædd manna á milli. Þau vöktu býsna mikla athygli, og ekki síður ofstækislausra og skynugra Flokksmanna.

Helgi Benediktsson var þá ritstjóri Framsóknarblaðsins. Hann sendi blaðið út um allt land og í hina óliklegustu króka og kima þjóðfélagsins, líka í öll skot dómsmálaráðuneytisins. Þess vegna var þeim allt þetta mál þar kunnugt. Blaðið var lesið þar sökum þess, að ráðherra átti hlut að máli.

Sér grefur gröf, þótt grafi