Blik 1974/Vornæturkyrrð, ljóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. október 2009 kl. 08:35 eftir Elinbjork (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. október 2009 kl. 08:35 eftir Elinbjork (spjall | framlög) (Ný síða: SERA ÞORSTEINN L. JÓNSSON, SÓKNARPRESTUR Vornæturkyrrð Jónsmessunótt Fjalladalur ilmi andai, æðasláttur lífsins hljóðnar, fjöll og jöklar fögru skauta, fald sinn...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

SERA ÞORSTEINN L. JÓNSSON, SÓKNARPRESTUR

Vornæturkyrrð

Jónsmessunótt


Fjalladalur ilmi andai, æðasláttur lífsins hljóðnar, fjöll og jöklar fögru skauta, fald sinn baða í vatni skyggndu, röðull blóðgum brennur loga, býst til hvíldar dagur liðinn.

Fjallavatnsins báru-blikið bifast mjúkt sem móðurfaðmur, kynjadjúpur að sér allan alheim rúmar himindjúpan, gjálpar stilltu, ljúfu lagi af lífsfögnuði um bjartar nætur.

Sælt og kyrrlátt byggðin blundar, burstaþil á verði standa, féð sig bælir mjúkt í móa, mosa-þúfa, grænu í flosi, mýrisnípa ei heyrist hneggja, hvergi vella nokkur spói.

Daginn, þegar röðull roðar, rísa af blundi annir dagsins, bæjarþila burstir gneipar búralegar úr sér teygja, reykir upp í leti-lygnu liða fyrir engum blænum.

Lækjarniður lífsóð kveður, lækinn kljúfa sporðar kvikir. ærnar lembdar lóna um grundir, lömbin sjúga, dyndli skvetta, hneggjar loft af hrossagauki. heyrist spóinn líka vella.

í friðsæld byrjar bjartur dagur, blítt hann fer á ný að skína, bóndi rís til lofts að líta um leið og sinnir þörfum brýnum. Þannig byrja bændur daginn, brauðs og neyta í andlits-sveita.

Friður lifi, - friðar-vaki, -fullnustunnar orkugjafi, allar götur út til stranda, innst til fjalla, vítt um byggðir, vaxi farsæld innst sem utast, andann veki himin-tungur. Pá mun dagsins þjóðin njóta, þjónustunni trúnað sverja. Hér á lyngbrekkan laufskógar-rjóður, sem er laugað í Jónsmessudögg. Sjá, hve blóminn mót lífinu brosir, finndu bjarkanna ilmandi rögg búna töfrum frá sumri