„Blik 1967/Aagaardshjónin í Vestmannaeyjum“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(3 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
[[Blik 1967|Efnisyfirlit Bliks 1967]]
[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON]]:
Aagaardshjónin í Vestmannaeyjum
Fullu nafni hét hann [[Michael Marius Ludvig Aagaard|Michael Marius Ludvico Aagaard]]. Hann var sýslumaður í Vestmannaeyjum á árunum 1872-1891 eða 19 ár samfleytt.

Þó ekki væri nema einu einasta atriði í ævi þessa Dana til að dreifa, þá á hann það vissulega skilið, að Blik geymi nokkur orð til minningar um hann. Þar á ég við ást hans á íslenzkri tungu og þá þekkingu, sem hann aflaði sér í íslenzku, leikni hans í að tala hana og skrifa.

Lína 5: Lína 14:
Sýslumaðurinn var lágur maður vexti og grannvaxinn, bjarthærður með ljósrautt alskegg. Þessi Dani var ljóngáfaður og átti kímnigáfu í ríkum mæli, léttlyndur, góðviljaður og alþýðlegur valdsmaður. Dugnaðar- eða afkastamaður til vinnu mun hann ekki hafa verið, en sparsamur í meðferð opinbers fjár og svo eigin og heiðarlegur í hvívetna.

Einhverntíma rakst sá, sem þetta skrifar, á það í fundargjörð sýslunefndar Vestmannaeyjasýslu, að borinn var upp til samþykktar reikningur frá Aagaard sýslumanni. Reikningurinn fjallaði um kostnað sýslumanns af skrifstofurekstri hans umliðið ár. Nam upphæðin nákvæmlega 1 krónu, segi og skrifa einni krónu. Þar er tekið fram, að reikningurinn hafi verið samþykktur einróma og mótatkvæðalaust! Mig minnir þetta vera árið 1875. Oftar nam ársreikningur sýslumanns yfir kostnaðinn við rekstur sýslumannsskrifstofunnar 1-2 kr. Þó þótti sýslumaðurinn ekki hagsýnn og tómlátur nokkuð og daufgerður. Og hann virðist gjörsamlega hafa skort skilning á gildi sögulegra gagna og nauðsyn á því að vernda skjalasafn sýslunnar eða sýslumannsembættisins. Því til sönnunar er geymsla hans á skjölum embættisins á barnaskólaloftinu í [[Dvergasteinn|Dvergasteini]], þar sem þau lágu um hans daga út um allt loftið, og börnin léku sér að því að rifa þau og rjátla við þau. Þar tróðu þau líka ofaná þeim og mýsnar gerðu sér gott af þeim og hreiðruðu um sig í skjalahaugnum. Ýmis sýsluskjöl héðan frá þessum árum bera þess vitni, svo sem sum þeirra, er geymd eru í Þjóðskjalasafni og Byggðarsafni Vestmannaeyja. En drengskaparmaður var Aagaard sýslumaður og góður fátækri alþýðu í Eyjum, skilningsríkur á basl hennar og bágindi.

[[Mynd:Blik 1967 138 1.jpg|thumb|250px|''M. Aagaard, sýslumaður í Eyjum
[[Mynd: 1967 b 138 A.jpg|thumb|250px|''M. Aagaard, sýslumaður í Eyjum
1872-1891''.]]
1872-1891''.]]
[[Mynd:Blik 1967 138 2.jpg|thumb|250px|''Frú Agnes Aagaard'']]
[[Mynd: 1967 b 138 B.jpg|thumb|250px|''Frú Agnes Aagaard.'']]
Ef eitthvert sérstakt áhugamál tók Aagaard sýslumann föstum tökum, gat hann fórnað því tíma og starfi, - óþreytandi í elju sinni við það. Svo var það t.d. um íslenzkunámið. Hann varð brátt hrifinn af móðurmálinu íslenzka, er hann tók að kynna sér það, eftir að hann var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum.

Áður en hann fór til Íslands til þess að taka við embættinu 1872, lærði sýslumaðurinn íslenzku hjá Eiríki Jónssyni varaprófasti á „Garði“ í Kaupmannahöfn.<nowiki>*</nowiki>

:<nowiki>*</nowiki> Eiríkur Jónsson var fæddur 1822 að Hoffelli í Hornafirði, sonur séra Jóns Bergssonar, sem síðar var prestur að Einholti á Mýrum, og fyrri konu hans, Sigríðar Eiríksdóttur bónda að Hoffelli. Eiríkur Jónsson innritaðist í Hafnarháskóla 1846. Þar las hann fyrst guðfræði, en hvarf frá því námi og tók að leggja stund á málfræði. Hann samdi „Oldnordisk Ordbog“. Eiríkur var styrkþegi Árnasafns frá 1872 og vara-umsjónarmaður á „Garði“, stúdentaheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn, frá 1874 til dauðadags 30. apríl 1899.

<nowiki>*</nowiki> Eiríkur Jónsson var fæddur 1822 að Hoffelli í Hornafirði, sonur séra Jóns Bergssonar, sem síðar var prestur að Einholti á Mýrum, og fyrri konu hans, Sigríðar Eiríksdóttur bónda að Hoffelli. Eiríkur Jónsson innritaðist í Hafnarháskóla 1846. Þar las hann fyrst guðfræði, en hvarf frá því námi og tók að leggja stund á málfræði. Hann samdi „Oldnordisk Ordbog“. Eiríkur var styrkþegi Árnasafns frá 1872 og vara-umsjónarmaður á „Garði“, stúdentaheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn, frá 1874 til dauðadags 30. apríl 1899.

:Eiríkur Jónsson var einn þekktasti Íslendingur í Kaupmannahöfn í sínum tíma. (Hafnarstúdentar).
Eiríkur Jónsson var einn þekktasti Íslendingur í Kaupmannahöfn í sínum tíma. (Hafnarstúdentar).

M.M.L. Aagaard sýslumaður settist að í Vestmannaeyjum vorið 1872, ókvæntur og á lausum kili. Hann fékk þá inni í Nöjsomhed.

Þegar hann hafði verið sýslumaður í Eyjum í 2 ár, fékk hann slæma ígerð í hægri hönd. [[Þorsteinn Jónsson (héraðslæknir)|Þorsteinn Jónsson]], héraðslæknir, ráðlagði sýslumanni að sigla um vorið (1874) og leita sér fullkominnar lækningar við handarmeininu. Sýslumaður dvaldist í Kaupmannahöfn fram á sumarið 1874 undir læknishendi og fékk bót meinsemdarinnar, en þó með þeim hætti, að þrír fingurnir beygðust inn í höndina. Hann varð þannig varanlega bæklaður á henni.

Í ágústmánuði um sumarið fór sýslumaður heim til Íslands með póstskipinu Diönu, sem átti að koma við í Vestmannaeyjum á leið sinni til Reykjavíkur. Svo fór samt, að skipið sigldi til Reykjavíkur án þess að koma við í Eyjum. Á útleið skyldi það þá koma þar við, svo að sýslumaður fór aftur með skipinu, taldi það fljótast fyrir sig til þess að komast heim til embættis síns. En það var póstskipið Diana, sem sigldi rakleitt til Kaupmannahafnar langt fyrir sunnan Eyjar. Varð því sýslumaður af heimkomunni í það sinn.

Lína 22: Lína 31:
Í október fór sýslumaður niður að Krossi í Landeyjum, því að útlit var þá orðið fyrir leiði til Vestmannaeyja. Á Krossi gisti hann í 10 nætur og beið eftir Eyjaleiði. Loks komst hann heim til Eyja 11. nóv. um haustið.  Þá voru liðnar 6 vikur og 3 dagar betur frá því að hann lagði af stað frá Kaupmannahöfn á leið til Eyja, annað sinn sama árið.

Þau ár, sem Aagard sýslumaður var konulaus í Eyjum, bjó hann í Njösomhed. (Sjá grein um Njösomhed í [[Blik 1960|Bliki 1960]]).

[[Mynd:Blik 1967 140.jpg|thumb|250px|''Nöjsomhed, sýslumannssetrið. (Sjá sögu Nöjsomheds í Bliki 1960)''.]]
[[Mynd:Blik 1967 140.jpg|thumb|250px|''Nöjsomhed, sýslumannssetrið. (Sjá sögu Nöjsomheds í [[Blik 1960|Bliki 1960)]]''.]]
Hinn 5. júní 1875 kom hin unga kona Aagaards sýslumanns til Vestmannaeyja með póstskipinu frá Kaupmannahöfn. Og sýslumannshjónin tóku að búa í [[Nöjsomhed]].

Frú [[Agnes Aagaard]] sýslumannsfrú var frá Kolding í Danmörku, bjó þar með móður sinni, sem var ekkja.

Frú Aagaard hreifst strax af fegurð Eyjanna. Meðan ástargleðin og sæla hveitibrauðsdaganna gagntók sál og sinni, fann hún ekki til neinna leiðinda í Eyjum, þó að breytingin væri mikil frá svo að segja allsnægtunum og fjölmenninu í Kaupmannahöfn með menningu á flestum sviðum til umhverfis, þar sem fátæktin, umkomuleysið og menningarleysið á öllum sviðum blasti hvarvetna við auga og einangrunin lokaði flestum leiðum.

En svo tóku áhrif hinnar miklu breytingar að gera vart við sig. Einmanaleikinn og innilokunarkenndin gagntók sálarlífið. Frúin fór einförum. Langar stundir úr deginum, er maður hennar var í embættisönnum, sat hún austur á klöppum austan við [[Skansinn]], þar sem báran blíða í sól og kyrrð gjálfraði við klapparsnös. Frúnni fannst hún færa sér kveðjur frá fjarlægum sundum. Stundum sat frúin vestur á Eiði og hafði þá gjarnan hana [[María Bjarnasen|Maríu litlu Bjarnasen]] hjá sér. Stúlkan litla undi sér við að kasta steinum út í sjóinn, meðan frúin hugleiddi tilveruna og þessi sérkennilegu örlög sín. Og svo varð hún tvisvar fegin eins og jafnan sá, sem á steininn sezt. Á heimleiðinni flaug henni í hug, hvort hún ætti það ekki eftir, að gefast upp, hverfa heim frá maka sínum. Nei, aldrei skyldi hún hverfa heim frá Maríusi sínum, sem hún unni hugástum, - heldur þola og þrauka.

En svo tóku áhrif hinnar miklu breytingar að gera vart við sig. Einmanaleikinn og innilokunarkenndin gagntók sálarlífið. Frúin fór einförum. Langar stundir úr deginum, er maður hennar var í embættisönnum, sat hún austur á klöppum austan við [[Skansinn]], þar sem báran blíða í sól og kyrrð gjálfraði við klapparsnös. Frúnni fannst hún færa sér kveðjur frá fjarlægum sundum. Stundum sat frúin vestur á Eiði og hafði þá gjarnan hana [[María Bjarnasen|''Maríu litlu Bjarnasen'']] hjá sér. Stúlkan litla undi sér við að kasta steinum út í sjóinn, meðan frúin hugleiddi tilveruna og þessi sérkennilegu örlög sín. Og svo varð hún tvisvar fegin eins og jafnan sá, sem á steininn sezt. Á heimleiðinni flaug henni í hug, hvort hún ætti það ekki eftir, að gefast upp, hverfa heim frá maka sínum. Nei, aldrei skyldi hún hverfa heim frá Maríusi sínum, sem hún unni hugástum, - heldur þola og þrauka.

Hinn 20. júní 1876 fæddi frú Agnes Aagaard fyrsta barn sitt. Það var sveinbarn. [[Séra Brynjólfur Jónsson]] skírði brátt drenginn. Hann skyldi bera þrjú nöfn eins og faðirinn og var skírður [[Christen Anton Sophus Aagaard|Christen Anton Sophus]].

Leiðindin hurfu um sinn, því að barnið tók allan hug móðurinnar og fullnægði að einhverju eða mestu leyti heimþrá, -- fyllti tóm sálarlífsins.

Leiðindin hurfu um sinn, því að barnið tók allan hug móðurinnar og fullnægði að einhverju eða mestu leyti heimþrá, fyllti tóm sálarlífsins.

Næsta ár flutti til sýslumannshjónanna dönsk stúlka að nafni [[Signe Schumacher]]. Hún kom frá Danmörku, var 17 ára að aldri (fædd 1860), lífsglöð og lífgandi. Hún heillaðist af sýslumannsfrúnni og þær hvor af annarri, svo að heill og ánægja þróuðust með þeim, og frú Aagaard gleymdi umhverfinu og einangruninni.

Signe Schumacher var vinnukona hjá sýslumannshjónunum fram undir 1890. Þá hvarf hún til Reykjavíkur og fékk sér atvinnu þar. Eftir að sýslumannshjónin fluttu til Danmerkur (1891), hvarf Signe Schumacher líka heim til ættlands síns og stofnaði til verzlunarreksturs í Herning. Seinna varð hún meðeigandi í verzlun frænku sinnar. Hún stundaði þannig verzlunarstörf meginhluta ævi sinnar. Hún lézt 1933, - vönduð kona til orðs og æðis, lífsglöð og góð, segja þeir, sem bezt þekktu hana.

[[Mynd:Blik 1967 142.jpg|thumb|250px|''Uppsalir, sýslumannssetrið''.]]
[[Mynd: 1967 b 142 A.jpg|thumb|250px|''Uppsalir, sýslumannssetrið''.]]
Stuttu eftir fæðingu fyrsta barns síns, Sophusar, fluttust sýslumannshjónin að [[Uppsalir|Uppsölum]] „vestur í heiðinni, suðvestur af Nýjatúni“, eins og stendur í merkum heimildum. Uppsalir voru timburhús, sem [[Gísli Bjarnasen|Gísli verzlunarstjóri Bjarnasen]] hafði byggt og leigði nú sýslumannshjónunum. Það var lélegt hús, byggt af miklum vanefnum. Á aðalhæð voru tvær stofur og eldhús ásamt gangi. Uppi voru þrjú herbergi. Uppsölum fylgdi útihús. - Í Uppsölum brakaði og hrikkti í austan stórviðrum, - húsið skalf og nötraði, svo að sýslumannsfrúin var skelkuð og flýði stundum heimilið með börnin. Sönn saga er af því t.d., að einu sinni í hvassviðri lét frú [[Ásdís Jónsdóttir|Ásdís]] í [[Stakkagerði]], kona [[Árni Diðriksson|Árna hreppstjóra Diðrikssonar]], vinnumenn sína sækja frú Aagaard og börnin og færa sér heim í Stakkgerði.

Í Uppsölum fæddist sýslumannshjónunum tveir drengir: [[Gunnar Aagaard|Gunnar]], f. 7. jan. 1878 og [[Otto Grandjean Aagaard|Otto Grandjean]], f. 21. okt. 1881.

Oft var glatt á hjalla í Uppsölum á þeim árum, er sýslumannshjónin bjuggu þar. Sýslumannsfrúin hafði yndi af að gleðja aðra og hressa svolítið upp á yngri kynslóðina í Eyjum alveg sérstaklega. Hún stuðlaði að því með skemtunum heima í Uppsölum, að unga fólkið í Eyjum gæti skemmt sér, kynnzt og kveikt eilítið hvað í öðru. Ekki var danska vinnukonan, hún ungfrú Signe Schumacher, utan við þær skemmtanir. Nei, alveg hið gagnstæða. Hún var einmitt hrókur alls fagnaðarins, hló og dansaði og var hvers manns hugljúfi, svo að Eyjastrákar hrifust af. Allir vildu þeir með henni vera. En engum gaf hún kost á meiru en dansi. Og orðstír hennar lifði lengi í Eyjum, eftir að hún fluttist þaðan sökum þess, hversu hún var lagin að draga af unga fólkinu drungann og feimnina, rétta það dálítið úr andlega kútnum og kenna því að dansa. - Já, yndisleg var hún Schmacher, sagði eitt sinn aldraður Eyjabúi við mig fyrir 30-40 árum. Þegar hann var strákur, fékk hann að horfa á dansinn í „stóru stofunni“ í Uppsölum.

Oft var glatt á hjalla í Uppsölum á þeim árum, er sýslumannshjónin bjuggu þar. Sýslumannsfrúin hafði yndi af að gleðja aðra og hressa svolítið upp á yngri kynslóðina í Eyjum alveg sérstaklega. Hún stuðlaði að því með skemtunum heima í Uppsölum, að unga fólkið í Eyjum gæti skemmt sér, kynnzt og kveikt eilítið hvað í öðru. Ekki var danska vinnukonan, hún ungfrú Signe Schumacher, utan við þær skemmtanir. Nei, alveg hið gagnstæða. Hún var einmitt hrókur alls fagnaðarins, hló og dansaði og var hvers manns hugljúfi, svo að Eyjastrákar hrifust af. Allir vildu þeir með henni vera. En engum gaf hún kost á meiru en dansi. Og orðstír hennar lifði lengi í Eyjum, eftir að hún fluttist þaðan sökum þess, hversu hún var lagin að draga af unga fólkinu drungann og feimnina, rétta það dálítið úr andlega kútnum og kenna því að dansa. - Já, yndisleg var hún Scuhmacher, sagði eitt sinn aldraður Eyjabúi við mig fyrir 30-40 árum. Þegar hann var strákur, fékk hann að horfa á dansinn í „stóru stofunni“ í Uppsölum.

Á 40 ára afmæli sýslumanns 30. jan. 1879 var glatt á hjalla í Uppsölum eins og oftar. Þá var boðið til skemmtisamkomu um 40 manns. Veitt var súkkulaði og kaffi með „dönsku bakkelsi“ og brauði. Og þá var dansað þar til kl. hálf þrjú um nóttina. Og auðvitað var dansað í „stóru stofunni“!

Frá Uppsölum fluttust sýslumannshjónin að [[Hlíðarhús]]i til hjónanna [[Gísli Stefánsson (kaupmaður)|Gísla útgerðarmanns Stefánssonar]] og [[Soffía Andersdóttir|Soffíu Andersdóttur]]. Gísli hafði þá látið byggja við íbúðarhús sitt og hækkað það um aðra hæðina til þess að geta leigt þar sýslumannshjónunum. Þau fluttu að Hlíðarhúsi 1883. Þaðan fluttu svo sýslumannshjónin að [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]] árið eftir. Þar fengu þau inni í Norðurbænum, en [[Sigurður Sigurfinnsson]] skipstjóri hafði byggingu fyrir þeirri jörð. Hann bjó sjálfur í [[Boston]], í þéttbýlinu nálægt höfninni. Í Norðurbænum á Vilborgarstöðum bjuggu síðan sýslumannshjónin, þar til þau fluttust burt úr Eyjum.

Norðurbærinn á Vilborgarstöðum var byggður úr grjóti, torfi og timbri. Bærinn var byggður í tveim lengjum. Tvær burstir sneru fram á hlaðið, og skyldi timburveggur húslengjur þessar að. Suður- og Norðurveggur voru hlaðnir upp úr grjóti og torfi. Á þökunum var timburklæðning lögð tjörupappa. Í suðurhúsinu (Suðurbænum) voru tvær stofur, en í norðurbænum ein stofa, eldhús og lítið herbergi.

Á Vilborgarstöðum fæddist þeim hjónum tvö börn, sveinarnir [[Kjartan Aagaard|Kjartan]], f. 26. sept. 1884 og [[Kristian Aagaard|Kristian]], f. 28. sept. 1887. Hinn síðari lézt hvítvoðungur.

[[Mynd:Blik 1967 143.jpg|thumb|250px|''Synir Aagaardshjónanna.''

[[Mynd: 1967 b 143 A.jpg|thumb|250px|''Synir Aagaardshjónanna.''

''Aftari röð frá v.: Christen Anton Sophus og Otto Grandjean. - Fremri frá  v.:

Gunnar og Kjartan''.

''Gunnar og Kjartan''.

''Gunnar Aagaard''

''Gunnar Aagaard.''

''Hann fæddist að Uppsölum í Eyjum 7.jan. 1878. Hann var lyfjafræðingur að

menntun og starfi''.

''menntun og starfi''.

''Otto Aagaard''

''Otto Aagaard.''

''Hann fæddist að Uppsölum í Eyjum 21. okt, 1881. Hann var tannlæknir að menntun og starfi''.

''Kjartan Aagaard''

''Kjartan Aagaard.''

''Hann fæddist í Norðurbænum á Vilborgarstöðum 26. sept. 1884. Lauk stúdentsprófi við Efterslægtselskabets Skole í Kaupmannahöfn 1903, cand. phil. 1904, cand. jur. 1909. Og gerðist bæjarfógetafulltrúi í Horsens 1910. Varð fulltrúi í Rigsadvokaturen 1919 og sakadómari í Vejle 1. maí 1925''.]]

Lína 56: Lína 65:
Um miðjan ágúst 1890 fluttist síðan frú Aaagaard til Reykjavíkur með drengina þeirra fjóra, Sophus 14 ára, Gunnar 12 ára, Ottó 9 ára og Kjartan 6 ára. Þau fengu inni hjá Birni múrara, sem bjó á horni Skólavörðustígs og Bankastrætis. Aagaard sýslumaður keypti sér fæði og þjónustu hjá hjónunum á [[Lönd-vestri|Vestri-Löndum]], [[Sigfús Árnason|Sigfúsi]] og [[Jónína K. Brynjólfsdóttir|Jónínu]], veturinn þennan, sem frúin bjó í Reykjavík með drengjunum þeirra. Sýslumannshjónin og hjónin á Vestri-Löndum voru mikið vinafólk.

Aagaard sýslumaður hafði sótt um betur launað sýslumannsembætti, en ekki fengið áheyrn ennþá. Þó hafði hann von.

Þegar nú danska dómsmálaráðuneytið frétti það, að sýslumannshjónin í Vestmannaeyjum hefðu unnið til „að skilja“ til þess að geta veitt sonum sínum æskilega skólagöngu eða menntun, snart það valdhafana dönsku. Hér var það þó landsmaður þeirra, sem átti hlut að máli! -

Þegar nú danska dómsmálaráðuneytið frétti það, að sýslumannshjónin í Vestmannaeyjum hefðu unnið til „að skilja“ til þess að geta veitt sonum sínum æskilega skólagöngu eða menntun, snart það valdhafana dönsku. Hér var það þó landsmaður þeirra, sem átti hlut að máli!

Og Aagaard sýslumanni buðust tvær stöður, sem hann gat valið um. Önnur var sýslumannsstaðan í Árnessýslu. Sú staða var mun betur launuð en sýslumannsstaðan í Vestmannaeyjum. Hin staðan var birkidómaraembættið á Fanö í Danmörku. Það embætti kaus hann sér fremur en Árnessýsluna, því að bæði hjónin þráðu að setjast að á ættlandi sínu. Hinn 14. jan. 1891 var M.M.L. Aagard sýslumaður skipaður birkidómari í Fanö.

Hinn 14. maí 1891 sigldi Asgaards-fjölskyldan frá Reykjavík með eimskipinu Lauru á leið til Kaupmannahafnar.

Eitt örnefni í Eyjum er kennt við sýslumanninn M.M.L. Aagaard. Það er [[Sýslumannskór]] framan í [[Há]]nni norðan við [[Hásteinn|Hástein]]. Sagan segir, að sýslumaður og þau hjónin hafi á stundum í blíðskaparveðri haft yndi af að ganga vestur að bergopi þessu, sitja þar og virða fyrir sér fegurðina til austurs, [[Heimaklettur|Heimaklett]], [[Bjarnarey]], [[Höfnin]]a og austurhluta Heimaeyjar, - [[Helgafell]] í suðaustri og svo hina heillandi landsýn til norðurs.

Um 1890 rak hér hval á fjörur Eyjabúa. Þá hélt sýslumaður uppboð á hvalkjöti og margir buðu í. Gunna Pála ([[Guðrún Pálsdóttir]] yngri) var stödd á uppboði þessu. Hún var jafnan kerskin og kvað stundum vísur, sem særðu og egndu til reiði.

Um 1890 rak hér hval á fjörur Eyjabúa. Þá hélt sýslumaður uppboð á hvalkjöti og margir buðu í. Gunna Pála ([[Guðrún Pálsdóttir yngri|Guðrún Pálsdóttir yngri)]] var stödd á uppboði þessu. Hún var jafnan kerskin og kvað stundum vísur, sem særðu og egndu til reiði.

Ekki veit ég, hvernig Aagaard sýslumaður gaf tilefni til þess, að Gunna orti eftirfarandi vísu til háðungar hinum danska sýslumanni, sem var hið mesta ljúfmenni og hafði vissulega ekkert til hennar lagt, því að sízt sýndi hann alþýðu manna hér valdsmannsrembing eða stærilæti.

En vísa þessi er þannig:
En vísa þessi er þannig:
Lína 85: Lína 94:

=== ''[[Christen Anton Sophus Aagaard|Sophus Aagaard]], lögreglustjóri í Odense.'' ===
''[[Christen Anton Sophus Aagaard|Sophus Aagaard]], lögreglustjóri í Odense.''
[[Mynd:Blik 1967 146.jpg|thumb|200px|''Sophus Aagaard lögreglustjóri í Odense'']]

[[Mynd: 1967 b 146 A.jpg|thumb|200px|''Sophus Aagaard lögreglustjóri í Odense.'']]
''Hann fæddist í Nöjsomhed í Eyjum (sjá Blik 1960) 20. jún 1876. Ólst upp í Vestmannaeyjum til fermingaraldurs.''

''Gekk í Latínuskólann (Menntaskólann) í Reykjavík veturinn 1890-1891. Lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Ripum í Danmörku 1896, cand. phil. 1897 og cand. jur. 14. febr. 1903. Sama ár var Sophus settur bæjarfógetafulltrúi í Skive.''

Lína 97: Lína 108:
''Í júlí-mánuði árið 1931 steig hér á land í Eyjum dönsk stúlka. Ellen Aagaard kvaðst hún heita og var dóttir Aagaards lögreglustjóra í Odense. Hún var að vitja bernsku- og æskuslóða föður síns. Ellen Aagaard dvaldist hér um skeið og heimsótti ýmsar fjölskyldur, sem Aagaards-fjölskyldan hafði verið kunnug og handgengin, þegar sýslumannshjónin áttu hér heima. Meðal þeirra fjölskyldna voru hjónin í Ásgarði Árni Filippusson og [[Gíslína Jónsdóttir]].''

''Hinn 13. marz árið eftir (1932) skrifaði Sophus Aagaard lögreglustjóri Árna Filippussyni hlýlegt og vinsamlegt bréf. Hann ávarpaði Árna:

„Min kære gamle Lærer“. Síðan þakkar hann Árna og fjölskyldu hans fyrir hlýlegar móttökur veittar dótturinni. Svo segir lögreglustjórinn: „Næst hinni dugmiklu móður minni, sem lézt 1929, á ég yður mest að þakka þá undirstöðuþekkingu, sem mér var nauðsynleg til framhaldsnáms, embættisprófs og  frama.“''

''„Min kære gamle Lærer“. Síðan þakkar hann Árna og fjölskyldu hans fyrir hlýlegar móttökur veittar dótturinni. Svo segir lögreglustjórinn: „Næst hinni dugmiklu móður minni, sem lézt 1929, á ég yður mest að þakka þá undirstöðuþekkingu, sem mér var nauðsynleg til framhaldsnáms, embættisprófs og  frama.“''

''Á öðrum stað (í grein um byggð og líf í Eyjum á uppvaxtarárum hans) segir þessi íslenzki Dani: „Danmörk er land feðra minna, en Ísland er fæðingarland mitt, og römm er sú taug, sem tengir mig bernskulandinu, þar sem ég lifði hamingjusömu lífi. Mér er það ánægja og gleði að vera þannig bundinn þessum löndum. Bæði þjóðernin eiga tök í mér og hafa mótað mig og markað, svo að ég er hvorki hreinræktaður Dani né Íslendingur. Þess vegna kalla Danir mig Íslending og hið gagnstæða mundi ég vera álitinn þar heima. Þannig telur hvorug þjóðin sig eiga mig.''

''Það gladdi mig stórlega að Ísland fékk sjálfstæði og ég óska og vona, að þróunin verði sú, að íslenzka þjóðin verði þátttakandi í samvinnu bræðraþjóðanna á Norðurlöndum og þar jafnrétthár aðili hverra hinna.''“

:::''Sophus Aagaard.''
:::::::::::::::::''Sophus Aagaard.''

:::::::::::::::::::[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|''Þ.Þ.V.'']]
[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|Þ.Þ.V.]]

{{Blik}}
{{Blik}}

Leiðsagnarval