„Blik 1961/Fyrsti Vestmannaeyjabíllinn og hauskúpan“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 32: Lína 32:
Mér dettur í hug, í sambandi við ferð Lárusar til Reykjavíkur og nám hans þar, að segja frá dvöl hans að nokkru leyti.

Bifreiðafélagið réði hann sem sagt til sín. Þó gaf hann ekki kost á sér til þessarar farar, nema ég færi með honum. Þetta varð úr. Ég fór með og fylgdi honum eftir sem fylgdar- og aðstoðarmaður. Minnir mig, að félagið tæki einhvern þátt í þeim kostnaði, sem af för minni leiddi. Þótti mér þetta sport mikið. Hafði ég aðeins einu sinni komið til Reykjavíkur, þ.e. árið 1915, en Lárus hafði þar aldrei komið, þótt hann væri þá 23 ára gamall.

Suðurferðin gekk vel og tíðindalítið. Fengum við fæði hjá frænku okkar, [[Kristín Gísladóttir frá Stakkagerði|Kristínu Gísladóttur]] frá [[Stakkagerði]] og manni hennar Bjarna Sighvatssyni, er þá bjuggu að Grundarstíg 11. Herbergi fengum við á Hverfisgötu 30—32 hjá Guðmundi Jakobssyni, hafnarverði, föður þeirra bræðra Eggerts Gylfers, Þórarins fiðluleikara Guðmundssonar og Guðmundar Guðmundssonar. Það stóð svo heppilega á, að Guðmundur var einhvers staðar úti á landi og fengum við lesstofu hans. Hann var þá við læknisnám. Foreldrar hans leigðu okkur þessvegna herbergi hans, sem var uppi á lofti í húsinu mót austri.

Suðurferðin gekk vel og tíðindalítið. Fengum við fæði hjá frænku okkar, [[Kristín Gísladóttir (Stakkagerði)|Kristínu Gísladóttur]] frá [[Stakkagerði]] og manni hennar Bjarna Sighvatssyni, er þá bjuggu að Grundarstíg 11. Herbergi fengum við á Hverfisgötu 30—32 hjá Guðmundi Jakobssyni, hafnarverði, föður þeirra bræðra Eggerts Gylfers, Þórarins fiðluleikara Guðmundssonar og Guðmundar Guðmundssonar. Það stóð svo heppilega á, að Guðmundur var einhvers staðar úti á landi og fengum við lesstofu hans. Hann var þá við læknisnám. Foreldrar hans leigðu okkur þessvegna herbergi hans, sem var uppi á lofti í húsinu mót austri.

Fyrir neðan gluggann var hús með flötu þaki. Þar var Jón Hermannsson úrsmiður með verkstæði sitt og sölubúð. Var það hús áfast við hús Guðmundar Jakobssonar, svo að gjarna var hægt að fara þar út á þak út um gluggann hjá okkur. Við fórum svo að skoða herbergið, og sýndi húsmóðirin okkur það. Herbergið var ágætt með tveim legubekkjum og vel búið að öðrum húsgögnum. Stór bókaskápur var þar, sem frúin sagði að við mættum taka lesefni úr eftir vild. Á borðinu í miðju herberginu var hlutur, sem mér var ekkert gefið um. Það var höfuðkúpa manns, stór og mikil, sem starði þarna á okkur galtómum augnatóftunum. Heil var hún að öllu og tennur allar stórar og mjalla hvítar. Mér varð hreint ekki um sel að sjá hauskúpuna þarna á borðinu. Hefir frúin sennilega séð á mér, að mér var ekki sama um kúpuna. Hún spurði mjög sakleysislega, hvort okkur væri annars ekki sama, þótt þessi gamla hauskúpa stæði þarna á borðinu. Sagði hún, að sér væri illa við að hreyfa mikið við dótinu hans Mumma eða fara með það inn í annað herbergi. Ég veit ekki, hvað Lárus hugsaði, en ég varð fyrir svörum og sagði, að okkur væri alveg sama, þótt hauskúpan stæði þarna. Jú, ég var svo sem nógu mannalegur!

Herbergið tókum við á leigu og skyldum borga 15 kr. á mánuði auk morgunkaffis. Ég var feginn, þegar leigusamningar okkar voru gerðir og ég komst út úr herberginu út á Hverfisgötuna. Því olli vafalaust hauskúpan hans Mumma.

Leiðsagnarval