Blik 1951/Sjómannaminnismerkið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. febrúar 2010 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. febrúar 2010 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: Efnisyfirlit 1951 =''Sjómannaminnismerkið''= <br> ctr|500px Vestmannaeyingar!<br> Nú hefur verið tekin endanleg ákvörðun um form og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1951



Sjómannaminnismerkið


 

Vestmannaeyingar!
Nú hefur verið tekin endanleg ákvörðun um form og staðsetningu Minnismerkis drukknaðra sjómanna við Vestmannaeyjar og hrapaðra í björgum. Hr. myndhöggvari Guðmundur Einarsson, frá Miðdal, hefur tekið verkið að sér.
Eins og myndin ber með sér, verður þetta stytta af glæsilegum sjómanni.
Sjálf styttan verður af kopar, 2,55 mtr. á hæð. Fótstallur, sem gerður verður af blágrýti með skreytingu af kopar, verður 2,10 mtr. á hæð, svo hæðin samanlögð verður 4,65 metrar.
Enn einu sinni skorar stjórn sjóðsins á Eyjabúa að ljá þessu máli lið með fjárframlögum, svo tryggt verði, að merkið verði uppsett og afhjúpað í sumar.

SJÓÐSTJÓRNIN