Blik 1947/Eyjatíðindi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. nóvember 2009 kl. 17:57 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. nóvember 2009 kl. 17:57 eftir Saerun (spjall | framlög) (Ný síða: '''EYJATÍÐINDI''' 1. febr. þ. á. minntust nemendur bindindisstarfsins í skólum landsins. Skólinn hafði boðið stúkunum Báru og Sunnu að senda ræðumenn í skólann þennan...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

EYJATÍÐINDI


1. febr. þ. á. minntust nemendur bindindisstarfsins í skólum landsins. Skólinn hafði boðið stúkunum Báru og Sunnu að senda ræðumenn í skólann þennan dag kl. 11 f. h., því að tíminn 11 – 12 skyldi helgaður bindindisstarfi skólaæskunnar.

Þessir gestir heimsóttu skólann frá st. Báru nr. 2: Síra Halldór Kolbeins, frú Lára Ólafsdóttir og Óskar Jónsson kennari. Frá st. Sunnu nr. 204 þessir gestir: Árni Johnsen kaupm., Stefán Árnason yfirlögregluþjónn og Páll Eyjólfsson forstj. Allir gestirnir fluttu stuttar en góðar ræður, sem var vel fagnað af nemendum. Þá töluðu þessir nemendur: Páll Steingrímsson III. b., Anna Tómasdóttir, II. b. og Haraldur Baldursson I. b.

Síðast talaði skólastjórinn.

Um kvöldið héldu nemendur ársfagnað Menningarfélags skólans og sáu kennararnir um öll skemmtiatriði. Til skemmtunar var upplestur, kvikmyndir og samlestur á leikþætti. Síðast var svo dansað til kl. 3 um nóttina. Umsjónarmenn skólans eru þessir: Óskar Ketilsson, III. b., Einar Valur Bjarnason, II. b. og Guðmundur Helgason, I. b.

Hringjari skólans er Óskar Þór Sigurðsson.

Kennarar skólans hafa fest kaup á kvikmyndavél handa skólanum. Hún kostar nær 5 þúsundir króna. Þessa vél ætla þeir að láta skólann eignast án fjárframlaga frá bæjarsjóði eða ríki með því að afla sjálfir fjár til þess að greiða vélina.
21. febr. s.l. hófu nemendur skólans að grafa fyrir veggjum hins nýja skólahúss. Nemendur III. bekkjar hófu starfið, stúlkur og piltar, og unnu frá kl. 9.30, f. h. til kl. 3 e. h. Næsta dag unnu þar nemendur I. b. og þriðja daginn nemendur II. b. Skólastjóri stjórnaði verkinu og vann með nemendum. Vinnugleði ríkti í starfinu og mikill áhugi.

Góð gjöf.

Á s.l. hausti gaf Stefán Helgason Gagnfræðaskólanum smásjá. Skólinn þakkar þá velvild og hugulsemi.