Blik 1939, 6. tbl./Félagslíf í Gagnfræðaskólanum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. október 2009 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. október 2009 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1939, 6. tbl./Félagslíf í Gagnfræðaskólanum“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Félagslíf í Gagnfrœðaskólanum.


Í Gagnfræðaskólanum starfa nú sem að undanförnu Málfundafélagið og Menningarmálafélagið. Deild úr því síðara er bindindisfélag skólans og taflfélagið m.m.
Formaður Málfundafélagsins er Gísli G. Guðlaugsson og formaður Menningarmálafélagsins Borgþór Jónsson.
Fjör og líf er í félagsstarfinu. Allir nemendur skólans og fastir kennarar eru í bindindisfélaginu eins og undanfarin ár.
Sú regla hefir verið tekin upp í Gagnfræðaskólanum, að nemendur, piltar og stúlkur, sitja á púðum í kennslustundum. Einnig nota stúlkurnar hlífðarermar. Þessi ráðstöfun dregur úr fatasliti nemenda og er því hagkvæm.