Blik 1938, 2. tbl./Vorsöngur.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 16:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 16:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1938


VORSÖNGUR.
Lag: Glad så som Fogeln i Morgenstunden.
Vorið er komið, af vetrardvala
vekur það sóley og fífil á hól,
angandi smáblóm um iðgræna bala
augunum depla mót skínandi sól.
Léttvængjað fiðrildi lynginu í
lifnar á ný.
Vorsólar bjarmi á bylgjunum ljómar.
Bjargfugla kliðurinn glaðlega hljómar
frá skuggblárri skor.
Ó, þú dýrðlega draumfagra vor.
Ó, þú draumfagra vor.
Sigurbjörn Sveinsson.