Blik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:37 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:37 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Blik, sem var tímarit málfundafélags gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum, var fyrst gefið út árið 1936 og hélt útgafa þess áfram annað hvert ár þar til árið 1980.

Athafnamaðurinn og skólastjóri Gagnfræðiskólans í Eyjum, Þorsteinn Víglundsson, var stofnandi þess og ritstjóri og urðu árgangarnir alls 34.

Blik samanstóð af greinum um ýmis menningarmál Vestmannaeyinga og í fyrstu tölublöðunum fékk Þorsteinn góða aðstoð frá nemendum sínum með skriftir. Hann lét af störfum sem skólastjóri 1963 og þar eftir tók að mestu við skrifunum í Blik. Greinar

Greinar í Blik voru um menningarmál af fjölbreyttum toga en endurspegluðu þó áhugamál Þorsteins vel. Þær fjölluðu m.a. um einstaklinga, merka atburði, daglegt líf, atvinnumál, sögu, spaug og spé, bindindismál og efnisyfirlit byggðasafnsmuna. Þorsteinn Þ. Víglundsson var kosinn, einróma af bæjastjórninni, heiðursborgari í Vestmannaeyjum 1978 fyrir framlag sitt til menningarmála.