„Blik“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
1.063 bætum bætt við ,  4. september 2006
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
 
Blik var tímarit málfundafélags [[Gagnfræðaskóli Vestmannaeyja|Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum]]. Það var fyrst gefið út árið 1936 og hélt útgáfa þess áfram annað hvert ár þar til árið 1980.
Athafnamaðurinn og skólastjóri Gagnfræðaskólans, [[Þorsteinn Víglundsson]], var stofnandi þess og ritstjóri og urðu árgangarnir alls 34. Hann lét af störfum sem skólastjóri árið 1963 og þar eftir tók að mestu við skrifunum í Blik. Þorsteinn var kosinn, einróma af [[bæjarstjórn|bæjarstjórninni]], [[heiðursborgarar|heiðursborgari]] í Vestmannaeyjum árið 1978 fyrir framlag sitt til menningarmála.
== Greinar ==
Greinar í Blik voru um menningarmál af fjölbreyttum toga en endurspegluðu þó áhugamál Þorsteins vel og í fyrstu tölublöðunum fékk Þorsteinn góða aðstoð frá nemendum sínum með skriftir. Greinarnar fjölluðu m.a. um einstaklinga, merka atburði, daglegt líf, atvinnumál, sögu, spaug og spé, bindindismál og efnisyfirlit byggðasafnsmuna.
[[Flokkur:Menning]]
11.675

breytingar

Leiðsagnarval