„Bjarni Magnússon (Stakkagerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Bjarni var með foreldrum sínum, bændum á ýmsum bæjum, til ársins 1837. Hann var  vinnumaður í Mörk 1837-1838, á prestsetrinu í Holti u. Eyjafjöllum 1840, en fór því næst til Eyja.

Bjarni var með foreldrum sínum, bændum á ýmsum bæjum, til ársins 1837. Hann var  vinnumaður í Mörk 1837-1838, á prestsetrinu í Holti u. Eyjafjöllum 1840, en fór því næst til Eyja.

Hann var sjómaður í Ottahúsi 1845 með konu og tengdamóður sinni, tómthúsmaður þar 1850 með konu og tveim dætrum, þriggja og fjögurra ára, og [[Katrín Sigurðardóttir (Ottahúsi)|Katrínu]] tengdamóður sinni.

Þau misstu báðar dættur sínar úr barnsveiki með þriggja daga millibili.

Þau Þóra misstu báðar dættur sínar úr barnsveiki með þriggja daga millibili.

Við manntal 1860 var hann húsbóndi í Stakkagerði með konu sinni, vinnukonu og tökubarni, en dætur hans voru þar ekki.

Við manntal 1860 var hann húsbóndi í Stakkagerði með konu sinni, vinnukonu og tökubarni, en dætur hans voru þar ekki.

Hann bjó á Kirkjubæ við andlát 1869, og þar var Þóra ekkja hans niðursetningur 1870.

Hann bjó á Kirkjubæ við andlát 1869, og þar var Þóra ekkja hans niðursetningur 1870.

Útgáfa síðunnar 13. nóvember 2013 kl. 10:58

Bjarni Magnússon tómthúsmaður og sjómaður í Ottahúsi, Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 13. febrúar 1814 á Geirlandi á Síðu, fórst með Blíð 26. febrúar 1869.
Faðir hans var Magnús bóndi og húsmaður víða, en bóndi síðast á Kárastöðum í Landbroti, f. 1770, d. 23. júlí 1845, Jónsson, bónda í Hrútsstaðahjáleigu í Flóa, Þórarinssonar bónda og hreppstjóra á Hæringsstöðum í Stokkseyrarhreppi, f. 1687, Sigurðssonar, og konu Þórarins, Guðrúnar Björnsdóttur.
Móðir Magnúsar var Þorkatla, f. 1740, d. 1. febrúar 1818 á Heiði á Síðu, Sveinsdóttir.

Móðir Bjarna í Stakkagerði og kona Magnúsar Jónssonar var Rannveig húsfreyja, f. 1780 á Skaftárdal, d. 31. ágúst 1865 á Sléttabóli á Brunasandi í Hörglandshreppi, Sigurðardóttir bónda á Skaftárdal, f. 1737 þar, d. 31. ágúst 1885 þar, Sverrissonar bónda þar, f. 1687, Árnasonar, og konu Sverris, Rannveigar húsfreyju, f. 1700, líklega Jónsdóttur (V-Skaftf.).
Móðir Rannveigar og kona Sigurðar á Skaftárdal var Kolfinna húsfreyja, f. 1743 á Breiðabólsstað á Síðu, d. 18. desember 1819, Björnsdóttir bónda í Skál og Breiðabólsstað á Síðu, f. 1701, Eyjólfssonar, og ókunnrar konu Björns.

Bjarni var með foreldrum sínum, bændum á ýmsum bæjum, til ársins 1837. Hann var vinnumaður í Mörk 1837-1838, á prestsetrinu í Holti u. Eyjafjöllum 1840, en fór því næst til Eyja.
Hann var sjómaður í Ottahúsi 1845 með konu og tengdamóður sinni, tómthúsmaður þar 1850 með konu og tveim dætrum, þriggja og fjögurra ára, og Katrínu tengdamóður sinni.
Þau Þóra misstu báðar dættur sínar úr barnsveiki með þriggja daga millibili.
Við manntal 1860 var hann húsbóndi í Stakkagerði með konu sinni, vinnukonu og tökubarni, en dætur hans voru þar ekki.
Hann bjó á Kirkjubæ við andlát 1869, og þar var Þóra ekkja hans niðursetningur 1870.

Kona Bjarna, (9. nóvember 1843), var Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Ottahúsi, Stakkagerði og Kirkjubæ, f. 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 14. mars 1894.
Börn þeirra hér:
1. Hugborg Bjarnadóttir, f. 29. nóvember 1846, d. 23. apríl 1851 úr barnaveiki.
2. Rannveig Bjarnadóttir, f. 1. febrúar 1848, d. 20. apríl 1851 úr barnaveiki.

Heimildir