„Bjarni Bjarnason (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Bjarni Bjarnason''' vinnumaður á Vilborgarstöðum fæddist 14. júní 1838 í Arnardrangi í Landbroti og lést 1. október 1864.<br> Foreldrar hans voru Bj...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 12: Lína 12:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Vinnumenn]]
[[Flokkur: Vinnumenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]  
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]  
[[Flokkur: Íbúar á Vilborgarstöðum]]
[[Flokkur: Íbúar á Vilborgarstöðum]]

Núverandi breyting frá og með 8. júní 2015 kl. 11:35

Bjarni Bjarnason vinnumaður á Vilborgarstöðum fæddist 14. júní 1838 í Arnardrangi í Landbroti og lést 1. október 1864.
Foreldrar hans voru Bjarni Gíslason bóndi, síðast í Hæðargarði í Landbroti, f. 1810 á Maríubakka í Fljótshverfi, d. 1. mars 1853 í Hæðargarði, og barnsmóðir hans Ragnhildur Pálsdóttir, síðar húsfreyja í Hofsnesi í Öræfum, f. 1815 á Blómsturvöllum í Fljótshverfi, d. 15. janúar 1853 í Hofsnesi.

Afabróðir Bjarna í móðurætt var sr. Jón Austmann prestur á Ofanleiti.

Bjarni var með foreldrum sínum í Syðri-Vík í Mýrdal til 1839, hjá föður sínum á Lækjarbakka í Landbroti 1839-1841, í Syðri-Vík 1841-1846, í Hæðargarði 1846-1853, vinnumaður á Fossi á Síðu 1853-1860, í Mörtungu þar 1860-1862 og aftur 1863-1864.
Hann fluttist til Eyja 1864, var vinnumaður á Vilborgarstöðum, er hann hvarf. Lík hans fannst rekið, og samkvæmt kirkjureglum var hann jarðsettur án yfirsöngs.
Bjarni var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.