Björn Ívar Karlsson (yngri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2012 kl. 15:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2012 kl. 15:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá Björn Ívar Karlsson (eldri) fyrir föðurafa Björns Ívars yngri


Björn Ívar teflir á Reykjavik Open 2012.

Björn Ívar Karlsson fæddist 23. febrúar 1985. Björn Ívar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur Karls Björnssonar læknis og Ásta Garðarsdóttir. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klukkustundum á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í Grunnskóla Vestmannaeyja auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda í Vestmannaeyja. Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Grunnskólasveita og hefur Björn m.a. fylgt liðinu á Norðurlandamót.

Björn Ívar hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í mörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands.

Björn Ívar hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur sjö sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri.


Heimildir

  • Skákakademía Reykjavíkur [1]