Björgvin Guðmundsson (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 14:06 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 14:06 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björgvin Guðmundsson fæddist 15. maí 1915 og lést 9. mars 1999. Hann bjó í húsinu Viðey við Vestmannabraut 30. Seinni ár ævi sinnar bjó hann í Reykjavík en var jarðsettur í Vestmannaeyjum.

Björgvin var formaður.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Björgvin:

Björgvin þétt fiski fargar
fírinn Guðmunds órýri,
baðar Ársæl í æði
öldunnar hríðar köldu.
Sterklegur áfram arkar
aldrei með mála skvaldur,
geðugur grérinn téði
gætir að formanns sæti.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.