Birna Berg Bernódusdóttir (Nýborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2020 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2020 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Birna Berg''' frá Nýborg, húsfreyja, bankastarfsmaður í Hafnarfirði fæddist 8. september 1938 í Stakkholti.<br> Foreldrar hennar voru Bernódus Þorkelsson vél...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Birna Berg frá Nýborg, húsfreyja, bankastarfsmaður í Hafnarfirði fæddist 8. september 1938 í Stakkholti.
Foreldrar hennar voru Bernódus Þorkelsson vélstjóri, skipstjóri, f. 3. júní 1920 í Sandprýði, d. 11. febrúar 1957, og kona hans Aðalbjörg Jóhanna Bergmundsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 27. desember 1919 á Strönd, d. 8. september 2003.
Fósturforeldrar Birnu Bergs voru móðurforeldrar hennar Bergmundur Arnbjörnsson frá Presthúsum, síðar í Hvíld, sjómaður, bræðslumaður í Nýborg, f. 17. október 1884 í Klöpp, d. 21. nóvember 1952, og kona hans Elín Helga Björnsdóttir frá Miðbæ í Norðfirði, húsfreyja, f. 19. maí 1888 að Tjarnarlandi á Héraði, d. 7. ágúst 1963.

Birna Berg var með móður sinni hjá móðurforeldrum sínum í Stakkholti 1938, fósturbarn þeirra á Faxastíg 8A 1939, í Nýborg frá 1947.
Hún lauk 2. bekkjarprófi í Gagnfræðaskólanum, vann afgreiðslustörf og við fiskiðnað, en var einnig kaupakona í Flóanum og Eyjafirði.
Þau Theodór bjuggu í Nýborg frá 1957, byggðu hæð ofan á húsið og bjuggu þar til 1968, er þau fluttu á Búastaðabraut 16 og bjuggu þar til Goss.
Þau giftu sig 1960, eignuðust 4 börn, en misstu fyrst barnið á fyrsta ári þess.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar og Birna vann hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar frá 1976 til starfsloka 2010.

I. Maður Birnu, (11. júní 1960), er Theodór Þráinn Bogason frá Minni-Þverá í Fljótum, sjómaður, vélstjóri, starfsmaður Skeljungs, lögreglumaður, f. 14. júní 1935.
Börn þeirra:
1. Elín Berg Theodórsdóttir, f. 12. nóvember 1957, d. 28. ágúst 1958.
2. Margrét Berg Theodórsdóttir skrifstofumaður, f. 20. febrúar 1960. Maður hennar Haraldur Stefánsson.
3. Björn Berg Theodórsson vélvirki, f. 8. apríl 1963. Kona hans Karen Bryde.
4. Þráinn Berg Theodórsson trésmiður, f. 6. ágúst 1966. Kona hans Björg Leifsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.