Binni í Gröf

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 08:51 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 08:51 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem Binni í Gröfog var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur.

Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á höfn.

Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni réri fyrstu vertíðar sínar með vélbátnum m/b Nansen og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gullu. Þar var hann starfandi þrjár vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, m/b Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar, m/b Þor og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b Gullborg og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát.

Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir, og fékk titilinn margoft til viðbótar yfir ævina.

Benóný hafði ávallt duglegri skipshöfn að stjórna enda samrýmdist hverskonar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.

Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín. Kona hans var Katrín Sigurðardóttir frá Þinghól í Hvolhreppi og áttu þau saman 8 börn.



Heimildir

  • Benóný Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972. bls. 46.