64.236
breytingar
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(33 millibreytingar ekki sýndar frá 9 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Benóný Friðriksson''' | [[Mynd:Binni2.jpg|thumb|300px|Binni í Gröf]] | ||
'''Benóný Friðriksson''' var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem '''Binni í Gröf''' og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í [[Um Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] og var sonur formannsins [[Friðrik Benónýsson (Gröf)|Friðriks Benónýssonar]] og [[Oddný Benediktsdóttir (Gröf)|Oddnýjar Benediktsdóttur]]. Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] og áttu þau saman 7 börn. | |||
== Sjómennska == | |||
Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á [[Vestmannaeyjahöfn|höfn]]. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf að róa. Það var á smáferju hjá [[Jakob Tranberg (Jakobshúsi)|Jakobi Tranberg]] og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna. | |||
Binni | Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni reri fyrstu vertíðir sínar á vélbát á m/b Nansen VE 102, 1920. Vélamaður þar 1921-1924 og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á [[Brekka|Brekku]]. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi sjö vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, Maunt Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar VE 102,(var áður varðskip og hét Þór) og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b [[Gullborg VE|Gullborg]] 1954-1970 (ásamt Einari Sigurðssyni frá Heiði) og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip. | ||
Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið. | |||
[[Mynd:AHOFNGU4.jpg|thumb|300px|Áhöfn Gullborgar Re 38 uppi á dekki | |||
Skipshöfn Benónýs Friðrikssonar á Gullborgu. Sjá nánari uppýsingar með því að smella á myndina]] | |||
Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín. | Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans. | ||
[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Binna: | |||
:''Hræðist aldrei hroða sjá | |||
:''hraustur Grafar Binni. | |||
:''Þundur fiskinn þykir sá, | |||
:''það skal haft í minni. | |||
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann: | |||
:''Binni með sjómanns sinni, | |||
:''svalur frá Gröf er talinn, | |||
:''Friðriks arfi, þó iðan | |||
:''ill vilji þiljur fylla, | |||
:''Gullborgu létt á lullar | |||
:''leiður ei þétt til veiða. | |||
:''Æðstan kóng afla hæstan | |||
:''Ísalands hann ég lýsi. | |||
== Áhugamál og önnur afrek == | |||
Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum [[Knattspyrnufélagið Týr|Knattspyrnufélagsins Týs]] og keppti með þeim en hann var einnig í fremstu röð í fimleikum. Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti á vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga. | |||
Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín. | |||
==Fjölskylda== | |||
Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] (Fædd á Stórólfshvoli í Hvolhreppi, Rang. 26. maí 1909 og látin 28. júní 1979 frá Þinghól í Hvolhreppi) og áttu þau saman 7 börn. | |||
* [[Sævar Benónýsson]] 1931 - 1982 | |||
:Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum. | |||
* [[Jóna Sigríður Benónýsdóttir]] 1935 - 1984 | |||
:Síðast bús. í Keflavík. | |||
* [[Sjöfn Benónýsdóttir|Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir]] 1937 | |||
* [[Oddný Jóhanna Benónýsdóttir]] 1939 - 1995 | |||
:Húsfreyja í Eyvindarmúla, Fljótshlíðarhr., Rang. | |||
* [[Friðrik Benónýsson (yngri)|Friðrik Gissur Benónýsson]] 1941 | |||
* [[Benóný Benónýsson]] 1947 | |||
* [[Sigurður Grétar Benónýsson]] 1950 | |||
* [[Svanhildur Guðrún Benónýsdóttir]] 1951 | |||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:KG-mannamyndir 1418.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 10035.jpg | |||
Mynd:Blik1976 johannes bls195.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E., I., 112ca.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E., I., 128g.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E., II., 64f.jpg | |||
Mynd:Blik 1967 292.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 1408.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 1514.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | |||
* Benóný Friðriksson. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1972, bls. 46. | |||
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950. | |||
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956. | |||
* Íslendingabók. [http://www.islendingabok.is] | |||
* Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum | |||
}} | |||
[[Flokkur:Formenn]] | |||
[[Flokkur:Aflakóngar]] | |||
[[Flokkur:Týrarar]] |