Bifreiðastöð Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 11:34 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 11:34 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bifreiðastöð Vestmannaeyja var stofnuð 20. nóvember 1929. Eftirtaldir bifreiðastjórar voru stofnendur:

Fyrsti formaður félagsins var Helgi Benónýsson. Hans fyrsta verk var að fara til Reykjavíkur þar sem hann samdi við forstjóra Skeljungs hf. Skeljungur lánaði bifreiðafélaginu bráðabirgðarhúsnæði en einnig var settur upp bensíntankur.

Fyrsti stöðvarstjórinn var Bjarni Jónsson og gegndi hann því starfi í þrjú ár. Hann varð síðar skrifstofustjóri Lifrarsamlags Vestmannaeyja. Eftir að Bjarni lét af störfum var Gísli Wium ráðinn stöðvarstjóri og gegndi hann því starfi þar til hann hóf eigin verslunarrekstur árið 1942. Það sama ár fluttust bifreiðastjórar í eigið húsnæpði. Þá gerðist Oddgeir Kristjánsson tónskáld stöðvarstjóri og gegndi því starfi til 1957. Meðal annarra stöðvarstjóra eru bróðir Oddgeirs, Ólafur Kristjánsson, og Magnús Jónasson frá Grundarbrekku.


Heimildir

  • Magnús Guðjónsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1985.