Benedikt Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:36 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:36 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Benedikt Jónsson, 1748 til 1781. Fæddur 1704. Sonur séra Jóns Vigfússonar í Sólheimaþingum og konu hans Gróu Jónsdóttur í Flögu í Skaftártungu, Fabianssonar. Stúdent frá Skálholtsskóla 1726 og vígðist sem aðstoðarprestur til föðursíns 1727, fékk Sólheimaþing 1731, en missti prestskap 1744 vegna barneigna með bústýru sinni, en fékk uppreisn 1747 og var þá veitt Ofanleiti, sem hann þjónaði til dauðadags. Hann stóð að stofnun barnaskóla í Vestmannaeyjum 1757 ásamt séra Guðmundi Högnasyni, sóknarpresti að kirkjubæ. Séra Benedikt var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Hólmfríður Sigurðardóttir að Sólheimum, Jónssonar og áttu þau tvo syni. Síðari kona hans var Þuríður Magnúsdóttir lögréttumanns að Rauðafelli, Brandssonar og áttu þau einnig tvö börn, Theodór er bjó að Gjábakka í Vestmannaeyjum og Hólmfríði, er giftist Jóni Eyjólfssyni, verslunarmanni í Vestmannaeyjum.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.