Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 21-30

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2017 kl. 16:37 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2017 kl. 16:37 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Bls. 21


fyrir skólann, og var skólastjóra falið að útvega það.
4. Samkvæmt beiðni Ágústar Gíslasonar í Landlyst var veitt undanþága frá því að Matthildur dóttir hans, sem er á skólaskyldualdri, sækti skólann, með því hann sendi nefndinni skriflega sönnun fyrir því að hún yrði aðnjótandi kennslu hjá frú Elínu Einarsson í Hofi.
5. Kennslukaup fyrir þá nemendur skólans, sem ekki eru á skólaskyldualdri, var ákveðið, eins og að undanförnu, 12 kr. fyrir hvern, eða, 2 kr. um mánuðinn. Formanni nefndarinnar var falið að innheimta það gegn 6% innheimtulaunum.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Sveinn P. Scheving Ágúst Árnason St. Sigurðsson Árni Filippusson


Ár 1910, miðvikudaginn 29. september, átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði.
Allir nefndarmenn á fundi þ. e. Sigurður Sigurfinnsson, Steinn Sigurðsson, Sveinn P. Scheving og Árni Filippusson, sem allir höfðu verið endurkosnir í nefndina til þriggja ára og sr. Jes A. Gíslason sem einnig hafði verið kosinn í nefndina í stað Ágústar Árnasonar.

Var þá

1. Lesið upp brjef frá stjórn Ungmennafjelags Vestmannaeyja dags. 26. s. m. þar sem hún fer þess á leit fyrir hönd nefnds fjelags, að skólanefndin ljái því ókeypis húsnæði fyrir unglinga kvöldskóla í skólahúsi hjeraðsins en gefur í skyn að hún muni annast um hitun og lýsing skólastofunnar án kostnaðar fyrir barnaskólann eða sveitarsjóðinn.

Nefndin ályktaði að veita hið umbeðna með greindum skilyrðum.

2. Lagt var fram brjef frá Umsjónarmanni fræðslumálanna dags. 17. s. m. Með því brjefi er nefndinni tilkynnt að stjórnarráðið hafi úthlutað barnaskólanum 600 kr. af því fje sem veitt er til barnaskóla í fjárlögunum.
3. Nefndin ljet í ljósi þá ósk sína að bindindisfræðsla, með stuttum fyrirlestrum við hæfi barnanna, færi fram í barnaskólanum við og við.
4. Áður kosnir formaður og skrifari nefndarinnar voru endurkosnir.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson
Jes A. Gíslason Sveinn P. Scheving St. Sigurðsson


Ár 1911, miðvikudaginn 11. október, átti skólanefndin fund með sjer á skrifstofu Ísfélags Vestmannaeyja. Allir nefndarmenn mættu á fundinn. Var þá: 1. Kosnir voru formaður og skrifari fyrir yfirstandandi skóla-ár. Endurkosningu hlutu Sigurður Sigurfinnsson formaður, Árni Filippusson skrifari. 2. Steinn Sigurðsson (yfirkennari skólans) tjáði nefndinni frá því að skólinn, þ.e. bókasafn hans, ætti nokkrar bækur óinnbundnar og gæti því ekki orðið að almennum notum án þess þær um leið yrðu fyrir stór-skemdum, en ekkert fje væri fyrir hendi til að kosta bókbandið. Yfirkennaranum var því af nefndinni falið að láta binda inn þessar bækur, og senda hreppsnefndinni reikning fyrir kostnað þann, er af því leiðir.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson St. Sigurðsson Sveinn P. Scheving


14. október skrifað Guðna J. Johnsen og Páli Ólafssyni samkvæmt fundargerð 10. s. m. 

Sigurður Sigurfinnsson







Ár 1912, hinn 4. apríl átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði.

4 nefndarmenn mættu á fundinum.

Var þá 1. Lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar hinar fyrirskipuðu skýrslur um skóla hjeraðsins næstl. skólatímabil. Var formanni nefndarinnar falið að afgreiða þessar skýrslur til stjórnarráðsins. 2. Lagður fram reikningur yfir tekjur og gjöld skólans næstl. skólatímabil. Var reikningurinn þessi ásamt fylgiskjölum hans yfirskoðaður og því næst samþykktur og undirritaður af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Steinn Sigurðsson Jes A. Gíslason


  8. apríl ´12 skrifað umsjónarmanni fræðslumálanna og stjórnarráði Íslands með skólaskýrslum og reikningi.







Ár 1912, þriðjudaginn 9. apríl átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði. 4 nefndarmenn mættu á fundinum, en einn þeirra, Sveinn Scheving, var fjarverandi. Var þá 1. Lagt fram brjef frá Steini skólstjóra Sigurðssyni, þar sem hann fer fram á að skólanefndin feli honum á hendur að annast um að til sjeu hjer á staðnum nauðsynleg kennsluáhöld, sem skólabörn þarfnast næstkomandi skólaár. Nefndin áleit þetta vera gott tilboð, ályktaði að ganga að því og fól oddvita sínum að tilkynna viðkomanda skriflega þau málalok. 2. Steini skólastjóra Sigurðssyni var falið að auglýsa fyrir almenningi í skólahjeraðinu hvenær beiðnir um undanþágur frá skólaskyldu skyldi framkoma, og hver þeim veitti móttöku. Fleira ekki gert. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason Steinn Sigurðsson

11. apríl ´12. Svarað bréfi Steins Sigurðssonar samkvæmt fundargerðinni.








    Ár 1912, þriðjudaginn 13. ágúst átti skólanefndin fundi með sjér að Ásgarði.
Allir nefndarmenn mættu á fundinum.
Oddviti lagði fram frjef frá sýslumanninum í Vestmannaeyjasýslu, dags. 27. júlí næstl., þar sem hann biður skólanefndina að láta sjer í tje tillögur hennar um byggingu barnaskóla og unglingaskóla í skólahjeraðinu, helst í samráði við hreppsnefndina.
  Nefndin var í engum vafa um að bygging nýs skólahúss væri óumflýanleg nauðsyn sem allra fyrst, enda hafði það málefni komið til tals á fundi hennar áður og hún þá álitið hentugast skólahússtæði fyrir vestan kirkjuveginn fyrir ofan Reynivelli, og er hún enn þeirrar skoðunar.  En það er álit nefndarinnar þar sem ekki verði komist hjá að byggja skólahús-  algerlega að stofni, hljóti fyrirtækið að verða svo stórvaksið, hvað kostnað snertir, að ekki geti komið til mála að sveitarfjelagið geti staðist kostnaðinn án þess að fá töluvert lán.  Og þar af leiðir - að áliti nefndarinnar – að ekkert verði afráðið um húsbygginguna fyr er vissa fæst fyrir því að lán fáist með aðgengilegum kjörum og löngum borgunarfresti.  Nefndin hvatti þá hreppsnefndarmenn, sem á fundinum mættu, að styðja að því að hreppsnefndin leitaði lags með að fá loforð fyrir slíku láni.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason St. Sigurðsson







Ár 1912, mánudaginn 26. ágúst átti skólanefnd Vestmannaeyja fund með sjer að Ásgarði kl. 7 e. h. Allir nefndarmenn mættir.

  Var þar og þá tekið fyrir

1. Að ráða kvenmann til að ræsta skólahúsið í höndfarandi skólaár. Umsókn lá fyrir frá ekkjunni Jónínu Guðnadóttur í Haga hjer á Eyju, og kom nefndin sjer saman um að fela þeim kvenmanni ræstinguna fyrir sama kaupgjald og síðastliðið skólaár var greitt fyrir þann starfa. 2. Var rætt um söngkennara við skólann fyrir sama skólaár. Tilboð lá ekkert fyrir fundinum, og þeir sem nefnt hafði verið, við að takast þann starfa á hendur, ófáanlegir til að gefa kost á sjer. Nefndinni kom saman um að fela skólanefndarformanni Sveini P. Scheving að semja við Markús Sigurðsson á Sólheimum hjer um að taka kennsluna að sjer fyrir sama kaupgjald og fyrra skólaárið. Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Jes. A. Gíslason St. Sigurðsson Sveinn P. Scheving Árni Filippusson







Ár 1912, fimmtudaginn 12. september, átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði, kl. 7 e. h. Allir nefndarmenn mættu.

  Var þá:

Lagt fram bréf frá Magnúsi Kristjánssyni kennara, dags. 10. september, þar sem hann skorar á skólanefndina „að rýma svo til í leikfimihúsi barnaskólans að hann sjái sér fært að kenna leikfimi þar.

Nefndin kannast við, að eins og nú stendur muni vera torvelt að kenna leikfimi í húsinu og ekki nema fáum börnum í einu, þvi vegna þess að það er jafnframt notað fyrir þinghús og fundahús er þar svo mikið af borðum, stólum og bekkjum auk ofns að gólfrúm er mjög lítið, það því fremur sem töluverður hluti gólfsins er afgirtur með grindum.  En af því að mikið af munum þeim sem órýmindunum valda eru undir umsjón sýslumanns, sá nefndin sér ekki fært að útrýma þeim án hans tilhlutunar.  Formanni nefndarinnar var því falið að æskja sem fyrst tilhlutunar sýslumanns um útrýming þess sem honum við kemur og hann getur verið án.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson St. Sigurðsson Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason Árni Filippusson








Ár 1913, sunnudaginn hinn 5. janúar átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði. 
Fjórir nefndarmenn mættu, en Steinn Sigurðsson mætti ekki.

Tilefni fundarins var að Steinn skólastjóri Sigurðsson hafði með bréfi dags. í gær, sem var lesið upp á fundinum, tilkynnt skólanefndinni að hann hefði orðið að vísa einu af börnum skólans, Ólafi Sigmundssyni úr skólanum til bráðabirgða í gær, vegna þess að hann hegðaði sér illa, óskaði eftir að nefndin léti í ljósi hvað afráða skuli um burtrekstur til fulls.

 Nefndin áleit að eftir 10. grein reglugjörðar skólans komi ekki til skólanefndarinnar aðgjörða í slíkum tilfellum sem hér ræðir um, heldur sé það algjörlega komið undir áliti kennara.  Yrði nefndin því að láta sér nægja að skírskota til téðrar greinar reglugerðarinnar.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sveinn P. Scheving Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason


5/1 1913 Steini skólastjóra Sigurðssyni skrifað samkv. fundargjörðinni.








Ár 1913, sunnudaginn 18. maí, átti skólanefndin fund með sjer að Ásgarði. Steinn Sigurðsson mætti ekki á fundinum, en hinir fjórir nefndarmenn mættu.

  Var þá

1. Lagður fram, yfirskoðaður og samþykktur reikningur yfir tekjur og gjöld skólans næstl. skólatímabil. 2. Lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar hinar fyrirskipuðu skýrslur um skólann næstl. skólatímabil. Var ályktað að fela formanni nefndarinnar að afgreiða skýrslur þessar til stjórnarráðsins. 3. Lesin voru upp 3 brjef til nefndarinnar frá Kristni Benediktssyni frá Völlum sem verið hafði prófdómari skólans við seinasta aðalpróf. Öll eru brjef þessi dagsett 27. marz næstl. Í einu af bréfum þessum lætur prófdómarinn í ljósi skoðun sína um árangur kennslunnar í náttúrufræði, reikningi og réttritun o. fl. og lætur allvel yfir honum. Í öðru bréfi minnist hann á próf í söng, lætur miður yfir því, en ber við mjög stuttum kennslutíma, telur kennslustundirnar allt skólatímabilið aðeins 40 klukkustundir alls. Við það athugaði nefndin það að á reikningi frá söngkennaranum eru kennslustundirnar taldar vera 50, telur hún reikninginn réttan, en skýrslu prófdómarans byggða á skökkum grundvelli. Þriðja bréfið er um próf í leikfimi sem prófdómarinn telur vera ábótavant, en kennir um ónógu húsrými og þá einkanlega vantandi kennsluáhöldum. En þar sem hann getur ekkert um hver kennsluáhöld vanti, getur brjef þetta ekki verið nefndinni til verulegrar leiðbeiningar og tók hún því ekki neina ákvörðun í tilefni af því. 4. Lagt var fram brjef frá kennara Eiríki Hjálmarssyni, dags. 2. þ. m. þar sem hann fer fram á að kennaralaun sín verði hækkuð úr 350 kr. í 400 kr. Nefndin samþykkti í einu hljóði að fallast á þá launahækkun fyrir næstkomandi skólatímabil. 5. Sökum þess að kennari Magnús Kristjánsson hafði tjáð sig ófáanlegan til að kenna framvegis leikfimi við skólann, ályktaði nefndin að ráða til þess starfa Magnús Stefánsson á Hofi, þar sem hún telur hann hæfan til þess og er eftir sögu formanns nefndarinnar einnig fáanlegur til þess.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason




Ár 1913, mánudaginn 1. september átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði kl. 6 e. h. Allir nefndarmenn mættu.

  Var þá tekið fyrir:

1. Jónína Guðnadóttir í Haga sem næstl. skólatímabil hafði á hendi ræstingu skólans, hafði sent nefndinni umsókn um þann starfa um skólatímabilið 1913-1914 með sömu kjörum og næstl. skólatímabil, semsje að borgunin fyrir verkið sé 110 kr., þá að því áskildu að hún væri laus við hreinsun á leikfimishúsinu eftir almenna fundi og ungmennasamkomur, nema fyrir sérstaka borgun. Nefndin ályktaði að ganga að þessum kostum.

            Ýmislegt fleira kom til tals sem ekki þótti ástæða til að bókfæra.

Fundi svo slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason St. Sigurðsson Sveinn P. Scheving.










Ár 1913, mánudaginn hinn 13. október átti skólanefnd Vestmanneyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði. Allir nefndarmenn mættu á fundinum.

  Var þá:

1. Formaður skýrði frá því að Magnús Stefánsson á Hofi sem ráðinn hafði verið til að kenna leikfimi við skólann, hefði brotið loforð sitt í því efni og tjáð sig ófáanlegan til að gefa sig við þeirri kennslu.. Þessvegna var fyrverandi leikfimiskennari Magnús Kristjánsson, sem boðaður var á fundinn og mætti á honum, ráðinn til að kenna leikfimi á yfirstandandi skólatímabili 3 tíma í viku og tjáði hann sig fáanlegan til að takast það á hendur vegna ítrekaðra tilmæla skólanefndarinnar, jafnvel þó honum væri það ógeðfellt eins og hann hefði áður tjáð nefndinni. 2. Lagt var fram brjef frá skólastjóra Steini Sigurðssyni, þar sem hann skýrir frá að beðið hafi verið um skólahúsið til veisluhalds fyrir foringja varðskipsins „ Islands Falk“, og að hann vilji ekki „leysa upp skólann“ í því skyni, þar sem gert sé ráð fyrir að það verði í 2 daga, nema með samþykki skólanefndarinnar og æskir hann svars hennar um það. Nefndin ályktaði að veita samþykki sitt til þess að skólahúsið yrði léð í þessu augnamiði, en leit svo á að ef til þessa veisluhalds þyrfti tveggja daga „frí“ í skólanum, yrði annars dags „fríið“ notað sem venjulegt „mánaðarfrí“. 3. Fyrir yfirstandandi skólatímabil var kosinn formaður skólanefndarinnar Sigurður Sigurfinnsson og skrifari hennar Árni Filippusson.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.

Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason Sveinn P. Scheving Brynj. Sigfússon