Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 121-130

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 14:00 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 14:00 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: Árið 1927, fimmtud. 29. sept. kl. 5 e. h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru mættir formaður Árni Filippusson, Hallgrímur Jónasson, Jes A. G...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árið 1927, fimmtud. 29. sept. kl. 5 e. h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru mættir formaður Árni Filippusson, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason, sra Sigurjón Árnason fjarverandi, í Reykjavík var bæjarstjóri Kristinn Ólafsson. Auk þess mættu á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason og Unglingaskólakennari Þ. Víglundsson.

Var þar og þá tekið fyrir.

  Lagt var fram brjef frá fræðslumálastjóra dags. 20 sept. þ. á., þar sem hann tilkynnir skólanefndinni, að ráðuneytið hafi veitt til unglingaskólans sem starfaði hjer í Eyjum síðastliðinn vetur: 1000 krónur.
  Var þá rætt um skólaskyld börn þau, sem sótt hefðu og sækja kynnu um inntöku í unglingaskólann næsta kennslutímabil.  Nefndin varð á eitt sátt um það, að fela skólastjóranum að ákveða, hvort börn þessi yrði tekin í unglingaskólann eða ekki.
  Þá var rætt um leikfimiskennslu fyrir pilta í tveim efstu bekkjum skólans og hjelt skólastjóri að þeir mundu verða um 20 að tölu.  Nefndin varð sammála um að fá Friðrik Jesson til þess að kenna piltum þessum 2 tíma á dag frá kl. 12 – 2 einu sinni í viku og skyldi kennslan fara fram í Good Templarahúsinu hjer, sem Jes A. Gíslason sagði nefndinni að væri fáanlegt fyrir sanngjarna borgun, en kennaranum,sem einnig var fáanlegur skyldi fá venjulegt tímakennslukaup fyrir starfan sinn, sem verið hefur 2 kr. 50 um kl. stund.
  Þvi næst var rætt um handavinnu kennslu íuUnglingaskólanum.  Skýrði skólastjóri P. Bjarnason frá því að Katrín Gunnarsdóttir, sem heft hefði á hendi kennslu þessa síðastliðinn vetur, óskaði að mega verða laus við þá kennslu í vetur.  Var formanni skólanefndar falið að leita fyrir sjer um annan kennara til starfa þessa og var í því sambandi minnst á Önnu Konráðsdóttur, sem er nýkomin hingað til bæjarins.
  Því næst var tekið til umræðu bónarbrjef það um leigu á kennslustofu í barnaskólanum sem getur um í síðustu fundargerð frá þeim Þórði Runólfssyni, Gunnari Björnssyni og H. Björnssyni.  Nefndin var sammála um það að leigja umsækjendum 1 kennslustofu í skólahúsinu að kvöldlagi, tvær klukkustundir, frá kl. 7 – 9 e. h.  Skal Þórður Runólfsson vera fyrir hinum og bera ábyrgð alla á hinu leigða herbergi og svara til saka um það er aflaga kann að að fara í skólahúsinu, í sambandi við kennslu þá sem hjer um ræðir, en standa skulu þeir fjelagar undir eptirliti skólastjóra barnaskólans.
  Nefndin ákvað, að þeim fjelögum skuli gert að greiða í mánaðargjald 30 kr. sem komi fyrir ræsting, ljós og hita.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason Þorsteinn Þ. Viglundsson






Árið 1928, föstudaginn 6. janúar var fundur haldinn að Ásgarði kl. 8 e. h. Á fundinum voru mættir: formaður skólanefndarinnar Árni Filippusson og skólanefndarmennirnir Hallgrímur Jónasson og Jes A. Gíslason, og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason, Gunnar konsúll Ólafsson, fyrrverandi skólanefndarmaður og skólakennari Sigurbjörn Sveinsson.

  Tilefni fundarins var það, að kennari Sigurbjörn Sveinsson hafði mælst til þess, að fá að mæta á fundi til þess að ræða um aðfinnslur skólanefndarinnar í hans garð. samkv. fundargerð 25. nóvember 1923.   Var rætt um málið frá ýmslum hliðum en ekki komist að annarri niðurstöðu en fundargerðirnar frá 25. nóv. og 14 des. 1923 bera með sjer.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson J. A. Gíslason

Páll Bjarnason Gunnar Ólafsson Hallgr. Jónasson














Árið 1928, föstudaginn 6. janúar var fundur haldinn að Ásgarði að loknum þeim fundi sem fyrr getur. Á fundinum voru mættir allir skólanefndarmennirnir og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir: 1. Lögð voru fram og lesin upp tvö brjef dags. 20. sept. og 5. okt f. á., frá þeim Viggó Björnssyni og Páli Kolka, þar sem þeir fara fram á það, að þeim verði veitt undanþága frá því að láta börn á skólaskyldualdri ganga í skólann á yfirstandandi vetri. Fundarmenn samþykktu undanþágubeiðnirnar með þeim lögboðnu skilyrðum, að börn þessi tvö: Gísli Gíslason í Tungu og Guðmundur Kolka mæti við hið opinbera próf skólans.

2. Lesið upp og lagt fram brjef dags. 31. okt. f. á. frá tannlækni Leifi Sigfússyni, um meðferð á tönnum barna og varnir til að komast hjá tannskemmdum í kennsluformi. Eptir nokkrar umræður kom fram svohljóðandi tillaga sem var samþykkt:

  Að tannlæknirinn tækist á þessu ári fram rannsókn og ráðlegging við tannskemmdum, sem jafnframt veitti börnunum stutta fræðslu um meðferð tanna, og að honum væri greiddar 5 kr. fyrir kennslustund hverja sem tannlæknirinn vinnur að þessu í skólanum.

3. Lesið upp og lagt fram brjef, dags. 22. des. f. á. frá nokkrum nemendum (9) Unglingaskóla Vestmannaeyja, um að unglingaskólinn verði framlengdur um 1 mánuð eða til marz-loka þ. á. Nefndin var sammála um að verða við ósk nemendanna um framlenging skólans um einn mánuð, án aukins skólagjalds.

4. Þá minntist bæjarstjóri á það, að í ráði væri að fullgera leikfimishúsið við barnaskólann á komanda sumri, og mundi þá verða ráðist í það um leið, að byggja ofan á álmu þá austan við skólann, sem ætluð væri til leikfimishúss. Lagði hann til að þá yrði jafnframt gert þar ráð fyrir húsnæði fyrir bókasafn bæjarins í væntanlegri yfirbyggingu ef húsrúm þar leyfði.

5. Skólastjóri fór fram á það, að hann fengi leigufrían bústað eða herbergi það í skólanum uppi, sem hann hefði til afnota þar fyrir tengdamóður sína, og sem hann hefði greitt 15 krónur í húsaleigu fyrir mánaðarlega undanfarið. Nefndin var sammála um að verða við þessum tilmælum skólastjóra.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Kristinn Ólafsson J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason






Árið 1928, miðvikudaginn 4. apríl, kl. 4 e. h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru mættir formaður Árni Filippusson, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason, en fjarverandi voru þeir bæjarstjóri Kristinn Ólafsson og sra Sigurjón Árnason. Viðstaddur á fundinum var skólastjóri Páll Bjarnason.

Fundarefnið: Að ræða um fyrirhugaða vatnsleiðslu frá skólahúsinu til sjúkrahúss Vestmannaeyja.

  Eptir nokkrar umræður varð nefndin sammála um það, að ekki geti komið til mála að svipta barnaskólanum vatni því, sem honum sje nauðsynlegt til notkunar, en hinsvegar getur nefndin fallist á það, að meðan ekki sje fært að iðka leikfimi eða taka böð í skólanum, geti komið til álita, að miðla af vatni því, sem safnast kynni í brunni þeim, sem gerður hefur verið undir leikfimishússbyggingu þeirri, sem nú er í smíðum.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson J. A. Gíslason

Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason
















Árið 1928, fimmtudaginn 21. júní var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru mættir: formaður Árni Filippusson, sra Sigurjón Árnason, Hallgrímur kennari Jónasson og Jes A. Gíslason. Auk þeirra mættu á fundinum: skólastjóri Páll Bjarnason og trjesmiður Magnús Ísleifsson.

Var þar og þá tekið fyrir: Lagðar fram teikningar af leikfimishúsi barnaskólans og væntanlegri skóla-viðbótarbyggingu til athugunar. Þar eð bæjarstjóri Kristinn Ólafsson mætti ekki á fundinum, var Magnúsi Ísleifssyni afhentar teikningarnar og honum í samráði við bæjarstjóra falið að taka nauðsynlegar ákvarðanir í samræmi við athuganir nefndarinnar við hinar framlögðu teikningar, og skyldi síðan bæjarstjóri, sem ætlaði til Reykjavíkur með fyrstu ferð hjeðan, bera sig saman við húsameistara ríkisins, um hin ýmsu atriði byggingum þessum við skólann viðkomandi.


Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

Páll Bjarnason Magnús Ísleifsson Hallgr. Jónasson













Árið 1928, fimmtudaginn 5. júlí kl. 5 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Allir nefndarmennirnir mættu á fundinum og auk þeir skólastjórarnir Páll Bjarnason og Þorsteinn Viglundsson.

  Var þar og þá tekið fyrir:

Lagt fram brjef dags. 24. maí þ. á. frá fræðslumálastjóra, um að ráðuneytið, hefði með brjefi dags. s. d. skipað Árna Filippusson formann skólanefndarinnar í Vestmannaeyjum.

  Lagðar fram, athugaðar og undirskrifaðar prófskýrslur og  kennsluskýrslur barnaskólans fyrir síðastliðið skólaár 1927/28.
  Lagðar fram, athugaðar og undirskrifaðar kennslu- og prófskýrsla Unglingaskóla Vestmannaeyja fyrir síðastliðið skólaár 1927/ 28.

Skýrslurnar báru með sjer, að nemafjöldinn var 22, en af þeim tók 19 próf. Námstími 25 vikur hjá þeim, sem lengst sóttu skólann. Kennarar 3.

  Ennfremur lagði formaður skólanefndarinnar fram reikning barnaskólans í Vestmannaeyjum ásamt fylgiskjölum fyrir árið 1927.
  Var því næst snúið sjer að því að semja við Þorstein kennara Víglundsson um framhaldskennslu við Unglingaskóla Vestmannaeyja.
  Eptir nokkrar umræður varð að samkomulagi milli skólanefndarinnar og kennara Þorsteins Víglundssonar, að Þorsteinn er ráðinn kennari fyrir Unglingaskóla Vestmannaeyja fyrir næsta skólaár 1928/29 með byrjunarlaunum barnaskólakennara í bæjum, og að kennslutíminn sje miðaður við 6 mánuði.

Fleira tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Hallgr. Jónasson J. A. Gíslason Kristinn Ólafsson

Sigurjón Árnason Páll Bjarnason Þorsteinn. Þ. Víglundsson











Árið 1928, mánudaginn 10 september kl 5 ½ e. h. var skólanefndarfundur settur og haldinn að Ásgarði. Af nefndarmönnum voru mættir: Árni Filippusson, sra Sigurjón Árnason, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason og bæjarstjóri Kristinn Ólafsson.

  Auk nefndarmanna var mættur á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir: Rætt var um niðurfærslu skólaskyldualdurs úr 10 árum niður í 8 ár. Með því að það upplýstist á fundinum, að hin nýja viðaukabygging skólahússins, sem nú er unnið að, yrði ekki fullger eða nothæf fyrr en eptir áramót 1928/29, þá áleit skólanefndin þýðingarlaust að þessu sinni, að taka nokkra ákvörðun um niðurfærslu skólaskyldu-aldursins.

  Þá var rætt um að hve miklu leyti hægt mundi að taka börn í skólann, sem væru innan skólaskyldualdurs, en óskuðu að fá inntöku í skólann.  Skólanefndin áleit sjálfsagt að taka við eins mörgum börnum innan skólaskyldualdurs, sem hægt væri, og skyldi í því vali þau börn verða látin ganga fyrir, sem væru frá þeim heimilum, sem sökum efnaskorts, gætu ekki greitt kennslukaup.  En kennslukaupið fyrir þau börn, sem hjer um ræðir ákvað skólanefnd hið sama og í fyrra eða 20 krónur fyrir allan tímann.
  Þá var rætt um starfsfólk við skólann til ræstingar og annað þess háttar í komanda skólaári, og var formanni skólanefndar falið að ráða það starfsfólk og skyldi að minnsta kosti bætt við einni ræstingarkonu, sem hafa skyldi á  hendi ræstingu í viðbótarbyggingunni.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason Jes A. Gíslason

Hallgr. Jónasson Kristinn Ólafsson Páll Bjarnason












Árið 1928, föstud. 28 sept. kl. 5 e.h. var skólanefndarfundur settur og haldinn í Ásgarði. Allir skólanefndarmennirnir mættu á fundinum. Auk skólanefndarmannanna mættu á fundinum þeir Páll Bjarnason skólastjóri barnaskólans og skólastjóri unglingaskólans ÞorsteinnVíglundsson.

  Var þar og þá tekið fyrir:
  Lagðar voru fram beiðnir um undanþágu frá skólagöngu frá eptirtöldum fyrir eptirgreind börn 10 ára að aldri, Sigurjóni Högnasyni fyrir Garðar, son hans, 10 ára 22. okt. þ. á.,  Viggo Björnssyni, fyrir Gísla Gíslason stjúpson hans, 10 ára, Páli Kolka, fyrir Guðmund son hans, 11 ára í haust, Nikulási Illugasyni fyrir Gísla Magnús Guðmundsson, fósturson hans 11 ára.   Þrjú þau fyrrnefndu eiga að njóta kennslu ungfrúar Önnu Konráðsdóttur, en sá síðasttaldi nýtur kennslu hjá Guðlaugu í Fögruvöllum.

Ennfremur sækir ekkjan Valgerður Sigurðardóttir í Miðey um það, að sonur hennar Egill Símonarson, sem verður 13 ára að aldri í næstkomandi októbermánuði, fái undanþágu frá því að ganga í barnaskólann, en verði leyft að ganga í unglingaskóla bæjarins. Skólanefndin samþykkti að veita fjórum hinum fyrstnefndu undanþágu frá því að ganga í barnaskóla bæjarins á komandi skólaári, að því tilskyldu að börn þau, sem þar um ræðir, komi til vorprófs í skólanum í lok skólaársins.

Ennfremur kom nefndin sjer saman um, að fengnu álitið viðstaddra skólakennara, að veita Valgerði Sigurðardóttur undanþágu þá, sem hún hefur sótt um fyrir son hennar Egil Símonarson.  Þó tekur nefndin það fram, að gætilega verði að fara í því að veita slíkar undanþágur, með því að undanfarin reynsla í þeim efnum hefði gefist illa.
  Þá lagði skólastjóri fram stundaskrá fyrir komandi skólaár.  En gat þess jafnframt, að stundaskránni yrði að breyta, þegar byrjað yrði á leikfimiskennslu í skólanum, sem að líkindum yrði ekki fyrr en um áramót.  Nefndin samþykkti hina framlögðu bráðabirgðarstundaskrá.
  Í sambandi við tannlækningar í skólanum var nefndin því meðmælt, að veitt væri einhver fjárupphæð til þess að kenna börnunum daglega hirðingu tannanna, og skyldi leiðbeining í þeim efnum fengin hjá tannlækni bæjarins og fyrir daglegar fortölur og aðhald kennaranna.
  Hvað handavinnu í barnaskólanum viðkom, var nefndin sammála um það, að hún færi fram í liku sniði og síðastliðið skólaár, þó skyldu börnin ekki vinna í eins stórum flokkum og þá var gert, og skyldi því taka nauðsynlega hjálp aukalega við þá kennslu.  Í unglingaskólanum skyldi varið 6 tímum á viku til handavinnu, þar af 2 tímar til netabætingar.
  Skólanefndarmaður Kristinn Ólafsson bæjarstjóri lagði það til, að kennararnir brýndu fyrir börnunum að fylgja rækilega settum umferðarreglum hjer í bænum, og gæfu þeim leiðbeiningar þar að lútandi.  Nefndin samþykkti þessa tillögu og vænti þess að kennarar skólans brýndu þessar reglur rækilega fyrir nemendunum.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason J. A. Gíslason

Þorsteinn J. Víglundsson Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason Kristinn Ólafsson




Árið 1928, mánud. 22. október kl. 5 e. h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Á fundi þessum mættu allir skólanefndarmennirnir og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason.

Var þar og þá tekið fyrir: Lagðar voru fram beiðnir um undanþágu frá skólagöngu frá eptirtöldum fyrir eptirgreind börn á skólaskyldualdri: Þorbjörn Arnbjörnsson sækir um undanþágu frá skólagöngu fyrir tvær dætur sínar: Elísabet og Sóley. Stefán Vilhjálmsson sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Sigurleif að nafni. Sveinfríður A. Guðmundsdóttir sækir um undanþágu fyrir Sigurveigu M. Gunnarsdóttur, 10 ára að aldri. Stefán Erlendsson sækir um undanþágu fyrir son sinn Inga G. 10 ára að aldri. Þorvarður Valdemar Jónsson í Búrfelli sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Svöfu, 10 ára að aldri. Guðmundur Jónsson Heiðarbæ sækir um undanþágu fyrir Ásþór son sinn, 10 ára að aldri. Sveinbjörn Einarsson sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Fanney, 10 ára að aldri. Kristján Þórðarson, Reykjadal sækir um undanþágu fyrir son sinn, Jóhann að nafni.

  Allir þessir umsækjendur ætla sjer að nota sem kennara fyrir börn þau sem hjer um ræðir, barnakennara Sigfús Hallgrímsson, sem ætlar að hafa á hendi hjer í bæ í vetur barnakennslu innan safnaðar Sunnudags Aðventista (S. D. A.).  Þær upplýsingar fengust á fundinum, að kennari þessi hafi fengið menntun á Eiðaskóla, og ennfremur að ætlast væri til að kennslan færi fram í samkomuhúsi Aðventista hjer í bæ.
  Skólanefndin var sammála um að veita fyrrnefndar undanþágur með því skilyrði, að kennarinn sýni prófskírteini ásamt tilskyldum vottorðum frá hjeraðslækni og lögreglustjóra bæjarins.  
  Þá bar skólastjóri fram tillögu um það, að haldið væri almennt lestrarpróf hér í bæ, sem allra fyrst, fyrir börn 8 og 9 ára að aldri.  Skólanefndin samþykkti tillögu þessa og fól skólastjóra allan undirbúning og framkvæmd prófs þessa.
  Því næst tók nefndin til meðferðar kennslu þá í skólanum, sem Eiríkur Hjálmarsson, barnakennari, hefur haft með höndum, en sem hann sökum heilsubrests, er orðinn, að því er virðist, óhæfur að starfrækja.  Í sambandi við mál þetta kom fram svolátandi tillaga, sem nefndarmenn samþykktu í einu hljóði:
 Þar sem Eiríkur Hjálmarsson kennari hefur fengist við kennslu hjer í bænum yfir 30 ár, en er nú þrotinn að heilsu og þolir ekki lengur að annast kennslustörf sín við barnaskólann, þá leggur skólanefnd það til, að honum verði veittur álitlegur styrkur úr bæjarsjóði, allt að 2000 krónum af hann segir nú þegar lausu kennslustarfi sínu við skólann.
  Skólanefndarmanni Kristni Ólafssyni bæjarstjóra var falið af nefndinni, að koma tillögu þessari á framfæri við bæjarstjórnina.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason Hallgr. Jónasson




Árið 1929, fimmtud. 4. apríl k. 4 ½ e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Á fundinum mættu skólanefndarmennirnir Árni Filippusson, formaður nefndarinnar, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason, sra Sigurjón Árnason. Fjarverandi var Jóhann Þ. Jósefsson alþingismaður. Á fundinum var auk fyrrnefndra nefndarmanna mættur Páll Bjarnason, skólastjóri.

  Var þar og þá tekið fyrir:

að sækja um niðurfærslu skólaskylduraldurs úr 10 árum í 8 ár. Skólastjóri upplýsti að þessi breyting mundi auka tölu barnanna á næsta ári 1929/30 um 143 börn, en nú væru skólaskyld ca 256 börn og yrði þá skólaskyld næsta ár, sem næst 400 börn. Ef tekinn yrði fastur handavinnukennari, þá leiddi af þessari breytingu, að biðja yrði um 3 kennara til viðbótar við kennara þá, sem fyrir eru.

  Nefndin var sammála um það, að óhjákvæmilegt væri, eptir því sem á stendur í þessu skólahjeraði, að fenginni undanfarandi reynslu, að  hallast að breytingu þeirri, sem hjer um ræðir,   hvað niðurfærslu skólaskyldualdurs viðvíkur, þ. e. færa skólaskylduna niður um 2 ár úr 10 árum niður í 8 ár.  Fól nefndin skólastjóra Páli Bjarnasyni, sem kvaðst mundi skreppa til Reykjavíkur bráðlega, að leita hófanna um breytingu þessa og annað í sambandi við hana t. d. kennarafjölgunina við fræðslumálastjóra, og formanni skólanefndarinnar fól nefndin að afgreiða síðan mál þetta, að afloknu vorprófi, til hlutaðeigandi stjórnarvalda.
  Nefndin var sammála um það, að nauðsyn bæri til að auka handavinnukennsluna í skólanum og hallaðist helst að því að ráða fasta handavinnukennara við skólann, ef það yrði úr, að 3 viðbótarkennarar fengjust til skólans.
  Hvað leikfimiskennslu í skólanum viðkemur, var nefndin sammála um það, nauðsyn bæri til að kenna öllum börnum skólans leikfimi, þeim er heilsu hefðu til þess, og var skólastjóra einnig falið að leita hófanna um þetta atriði og annað leikfiminni viðkomandi í Reykjavíkurförinni.
Nefndin minntist á notkun leikfimissals skólans, og hölluðust nefndarmenn eindregið að því, að nota leikfimissalinn ekki til annars en leikfimis-og líkamsiðkana nema þá ef stæði alveg sjerstakleg á, t. d. ef svo bæri undir að safna þyrfti skólanum saman í eina heild.  En hins vegar kæmi ekki til mála að lána salinn til almennra mannfunda eða dansleikja etc.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason Hallgr. Jónasson Páll Bjarnason