Bókabúðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 09:18 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 09:18 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Bókabúðin er við Kirkjuveg 12. Var áður kallað Gata og var tómthús. Áður fyrr geymdi hreppurinn þurfalinga sína þar. Nafngiftin Bókabúðin er tilkomin vegna þess að Þorsteinn Johnson var með bókabúð í húsinu um árabil og síðar tók sonur hans, Óskar, við þeim rekstri. Nú er í húsinu listaverkaverslunin Prýði og trésmíðaverkstæðið Börkur í eigu hjónanna Róberts Sigmundssonar og Svanhildar Gísladóttur.

Bókabúðin