Bárður Auðunsson (skipasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 21:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 21:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bárður Auðunsson

Bárður Auðunsson skipasmíðameistari, Austurvegi 4, fæddist 2. nóvember 1925 og lést 10. desember 1999.
Foreldrar hans voru Auðunn Oddsson skipstjóri f. 24. september 1893, d. 29. desember 1969 og kona hans Steinunn Sigríður Gestsdóttir, f. 29. ágúst 1889, d. 6. október 1965.

Kona Bárðar var Ebba Þorsteinsdóttir, f. 19. maí 1927, d. 14. október 1987.

Börn Bárðar og Ebbu:
1. Steinunn Bárðardóttir, húsfreyja og dagmóðir, lærð hárgreiðslukona, f. 12. september 1949. Maki: Ísak Möller rekstrarstjóri.
2. Herjólfur bátasmíðameistari, f. 29. mars 1953. Kona hans er Ragnhildur Mikaelsdóttir húsfreyja frá Húsavík.
3. Auður Bárðardóttir geðhjúkrunarfræðingur, f. 6. ágúst 1956. Maki: Þröstur Björgvinsson sálfræðingur.
4. Elínborg Bárðardóttir læknir, f. 26. maí 1960. Maki: Ólafur Þór Gunnarsson læknir.
5. Ásta Bárðardóttir kennari, f. 29. október 1961. Maki (skildu): Páll Kolka Ísberg sérfræðingur.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Lífsstarf Bárðar er skipasmíðar og húsa-, vandvirkur, afhaldinn, ötull og traustur. Bárður er hár maður mjög og þrekinn eins og hann á ætt til, ljóshærður og bjartur yfirlitum, brosleitur og kíminn. Hann er sterkur vel, og snöggur og fastfylginn. Hann er skapléttur og skemmtilegur, góðvinur vina sinna og mjög vel látinn af öllum.
Veiðimaður er Bárður prýðilegur, þótt ekki hafi hann mjög langa þjálfun, ósérhlífinn og duglegur til allra verka. Heldur er Bárður tilbaka eða réttara sagt feiminn, þótt ei bagi það hann að nokkru ráði. Hann hefir fundið veiðistað ágætan í Suðurey, sem nefndur er Bárðarbás. Bárður er góður drengur.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir