Axel Halldórsson (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2006 kl. 15:51 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2006 kl. 15:51 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Axel Halldórsson fæddist í Vestmannaeyjum 11. júní 1911 og lést 31. maí 1990. Hann var sonur Halldórs Gunnlaugssonar læknor og Önnu Gunnlaugsson sem var fædd og uppalin í Danmörku. Árið 1936 kvæntist Axel Sigurbjörgu Magnúsdóttur, dóttur Jóns á Sólvangi. Börn þeirra voru Anna Dóra, Gunnlaugur, Kristrún, Hildur, Magnús og Halldór.

Árið sem Axel fermdist drukknaði faðir hans. Móðir hans setti þá á laggirnar verslun í Vestmannaeyjum sem hún rak lengi. Árið 1928 fór Axel til verslunarnáms í Danmörku og lauk þar námi 1932. Að námi loknu kom hann heim og hóf störf í verslun móður sinnar en stofnaði árið 1938 heildverslunina Óðinn og seldi fiskiskip, veiðarfæri og fleiri vörutegundir. Þetta fyrirtæki rak Axel í Vestmannaeyjum í meira en þrjá áratugi.

A