Austurbúðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 14:57 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 14:57 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Austurbúðin

Húsið Austurbúðin stóð við Strandveg 6. Það var reist árið 1880 úr höggnu móbergi undir Heimaklett og stóð austan við Hraðfrystistöðina. Lengi vel var nafn danska kaupmannsins, J.P.T. Bryde, sem var letrað stórum stöfum á gafl hússins, hið fyrsta sem blasti við þegar siglt var inn höfnina. Verslun Brydes, Brydebúð, var í húsinu.Síðar var í húsinu Netagerð Vestmannaeyja og skrifstofuhúsnæði e.h.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.


Heimildir

  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.