Atli Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 20:45 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 20:45 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Atli Elíasson, myndin er tekin árið 1984.

Atli Elíasson fæddist í Varmadal í Vestmannaeyjum 15. desember 1939. Hann lést 6. maí 2006. Hann var sonur Elíasar Sveinssonar og Evu L. Þórarinsdóttur. Atli var kvæntur Kristínu Frímannsdóttur. Börn Atla og Kristínar eru Aldís Atladóttir, Elías Atlason og Freyr Atlason.

Atli var eigandi Steypustöðvarinnar í Vestmannaeyjum ásamt Jóni Óskarssyni lögfræðingi frá 1968-2005 Hann var gjarnan kenndur við fyrirtæki sitt, Atli í Steypustöðinni.

Atli var harður Týrari og starfaði mikið fyrir Knattspyrnufélagið Tý. Atli gekk í Kiwanisklúbbinn Helgafell 1971 og sat þar í mörgum stjórnum og nefndum. Hann var forseti klúbbsins 1976-1977 og tók að sér embætti svæðisstjóra 1980-1981. Atli var einnig félagi í Golfklúbbi Vestmannaeyja og sat þar meðal annars í stjórn 1996-1998.