Atli Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 15:13 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 15:13 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Atli Elíasson fæddist í Varmadal í Vestmannaeyjum 15. desember 1939. Hann lést 6. maí 2006. Hann var sonur Elíasar Sveinssonar og Evu L. Þórarinsdóttur. Atli var kvæntur Kristínu Frímannsdóttur. Börn Atla og Kristínar eru Aldís Atladóttir, Elías Atlason og Freyr Atlason.

Atli starfaði um áraraðir í Steypustöðinni og var gjarnan kallaður af Eyjamönnum Atli í Steypustöðinni.

Atli gekk í Kiwanisklúbbinn Helgafell 1971 og sat þar í mörgum stjórnum og nefndum. Hann var forseti klúbbsins 1976-1977 og tók að sér embætti svæðisstjóra 1980-1981. Atli var einnig félagi í Golfklúbbi Vestmannaeyja og sat þar meðal annars í stjórn 1996-1998.