Arnoddur Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 12:49 eftir Eyglob (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 12:49 eftir Eyglob (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Arnoddur á Suðurey VE

Arnoddur Gunnlaugsson fæddist 25. júní 1917 og lést 19. október 1995. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Arnodds voru Gunnlaugur (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn, Jón, Aðalsteinn, Elías og Ingvar. Systur Arnodds voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Arnoddur kvæntist Önnu Pálínu Halldórsdóttur frá Þönglabakka í Þorgeirsfirði. Þeirra dóttir er Elísabet, fædd 18. ágúst 1942. Arnoddur bjó á Gjábakka, við Bakkastíg 9 og síðar á Sólhlíð 7.

Arnoddur var skipstjóri og útgerðarmaður megnið af sínum starfsferli og var m.a. eigandi og formaður á mótorbátnum Suðurey í mörg ár.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Arnodd:

Gunnlaugs Addi garpur fær
gerir togið draga,
Suðurey þá sinni rær
sjafnar víða haga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Arnodd ég orða þarna,
annar sá hafið kannar
stinnur á Suðurey sinni,
sanni með fiskinn spannar.
Kann sín við kvikur hranna
kaskur og sjó við naskur.
Stóran greini skipstjóra
sterkan og verinn merkan.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.