Arnoddur Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 12:31 eftir Eyglob (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 12:31 eftir Eyglob (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Arnoddur á Suðurey VE

Arnoddur Gunnlaugsson fæddist 25. júní 1917 og lést 19. október 1995. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Arnodds voru Gunnlaugur (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn, Jón, Aðalsteinn, Elías og Ingvar. Systur Arnodds voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Arnoddur bjó á Gjábakka við Bakkastíg 9 og síðar á Sólhlíð 7.

Arnoddur var formaður á mótorbátnum Suðurey.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Arnodd:

Gunnlaugs Addi garpur fær
gerir togið draga,
Suðurey þá sinni rær
sjafnar víða haga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Arnodd ég orða þarna,
annar sá hafið kannar
stinnur á Suðurey sinni,
sanni með fiskinn spannar.
Kann sín við kvikur hranna
kaskur og sjó við naskur.
Stóran greini skipstjóra
sterkan og verinn merkan.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.