„Arnar Sigurmundsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
(Taflfélagið 2015)
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Arnar Sigurmundsson fæddist 19. nóvember 1943 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru [[Sigurmundur Runólfsson]] og [[Ísey Skaftadóttir]].
'''Arnar Sigurmundsson''' fæddist 19. nóvember 1943 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru [[Sigurmundur Runólfsson]] og [[Ísey Skaftadóttir]].

Arnar lauk gagnfræðaprófi árið 1960. Hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdarstjóri [[Viðlagasjóður|Viðlagasjóðs]] og sem framkvæmdarstjóri Samfrosts. Arnar hefur einnig tekið mikinn þátt í félagsstarfi í gegnum tíðina, sat í stjórn [[Eyverjar|Eyverja]] frá 1964-1977 og hefur fjórum sinnum verið Skákmeistari Vestmannaeyja (1964, 69, 70 og 1979) og var formaður [[Taflfélag Vestmannaeyja|Taflfélagsins]] á árunum 1962-1965 og fimm áratugum síðar, eða haustið 2015 tók hann aftur við formennsku í félaginu. Arnar hefur verið aðal- og varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum frá árinu 1978.  Hann hefur einnig starfað með fjölda nefnda og ráða á vegum bæjarins í gegnum tíðina og er formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar.
Arnar lauk gagnfræðaprófi árið 1960. Hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdarstjóri [[Viðlagasjóður|Viðlagasjóðs]] og sem framkvæmdarstjóri Samfrosts. Arnar hefur einnig tekið mikinn þátt í félagsstarfi í gegnum tíðina, sat í stjórn [[Eyverjar|Eyverja]] frá 1964-1977 og hefur fjórum sinnum verið Skákmeistari Vestmannaeyja (1964, 69, 70 og 1979) og var formaður [[Taflfélag Vestmannaeyja|Taflfélagsins]] á árunum 1962-1965 og fimm áratugum síðar, eða haustið 2015 tók hann aftur við formennsku í félaginu. Arnar hefur verið aðal- og varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum frá árinu 1978.  Hann hefur einnig starfað með fjölda nefnda og ráða á vegum bæjarins í gegnum tíðina og er formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Haraldur Guðnason. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár.'' II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.
* Haraldur Guðnason. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár.'' II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.

enn að.
[[Flokkur:Skákmenn]]
[[Flokkur:Skákmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
Lína 14: Lína 11:
[[Flokkur:Formenn Taflfélags Vestmannaeyja]]
[[Flokkur:Formenn Taflfélags Vestmannaeyja]]
[[Flokkur:Bæjarfulltrúar]]
[[Flokkur:Bæjarfulltrúar]]
=Frekari umfjöllun=
[[Mynd:Arnar Sigurmundsson.jpg|thumb|200px|''Arnar Sigurmundsson.]]
'''Arnar Sigurmundsson''' frá [[Mundahús|Mundahúsi við Vestmannabraut 25]], framkvæmdastjóri, bæjarfulltrúi fæddist þar 19. nóvember 1943.

Foreldrar hans voru [[Sigurmundur Runólfsson]] verkamaður, verkstjóri, f. 4. ágúst 1904, d. 16. febrúar 1974 og kona hans [[Ísey Skaftadóttir]] húsfreyja, f. 13. mars 1911, d. 6. júní 1987.
Börn Íseyjar og Sigurmundar:

1. [[Heiðmundur Sigurmundsson]] bakari, heildsali, hótelrekandi, f. 23. febrúar 1935 á Vestmannabraut 25, d. 13. júlí 2010.

2. Sólólfur Sigurmundsson, f. 9. apríl 1936 á Vestmannabraut 25, d. 7. október 1943.

3. [[Ingólfur Sigurmundsson]] húsasmíðameistari, f. 24. desember 1939 á Vestmannabraut 25, d. 20. ágúst 2013.

4. [[Arnar Sigurmundsson]] framkvæmdastjóri, f. 19. nóvember 1943  á Vestmannabraut 25.

5. [[Róbert Sigurmundsson (húsasmíðameistari)|Guðjón ''Róbert'' Sigurmundsson]] húsasmíðameistari, f. 13. september 1948 á Vestmannabraut 25, d. 8. desember 2012.

Arnar lauk 4. bekkjar gagnfræðaprófi í [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólanum]] í Eyjum 1960.

Hann vann  hjá [[Kaupfélag Vestmannaeya|Kaupfélagi Vestmannaeyja]] og [[H. Sigurmundsson hf.]] við verslunar- og skrifstofustörf.  Í eldgosinu á Heimaey 1973 hóf hann störf  hjá [[Viðlagasjóður|Viðlagasjóði]]  og vann ýmis störf, og  tók við starfi framkvæmdastjóra sjóðsins í Eyjum í september 1973 þar til sjóðurinn lauk störfum 1977.  Frá mars 1977-1992 var Arnar  framkvæmdastjóri [[Samfrost]]s, sem var sameiginlegt þjónustufyrirtæki frystihúsanna í Eyjum og vann  áfram að
ákveðnum verkefnum.

Hann sat í bæjarstjórn Vestmannaeyja 1978-1986,  1995-1998 og 2002-2006.  Hann var formaður Framkvæmda- og hafnarráðs Vm.  2006-2014.

Arnar tók sæti í stjórn [[Lífeyrissjóður Vestmannaeyja|Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja]] 1980 og átti þar sæti með nokkrum hléum  til 2017, var formaður Landssamtaka  lífeyrissjóða 2006-2012.

Hann sat í stjórn Vinnuveitendasambands Íslands  og síðar Samtaka atvinnulífsins 1986-2015,  var formaður Samtaka fiskvinnslustöðva 1987-2014.

Arnar sat í stjórn [[Sparisjóður Vestmannaeyja|Sparisjóðs Vestmannaeyja]] um langt árabil,  var formaður Taflfélags Vestmannaeyja 1962-1964 og aftur 2015-2021 og var jafnan virkur í starfsemi félagsins.

Arnar leiddi undirbúning  að stofnun [[Visku- fræðslu- og símenntunarstöðvar Vestmannaeyja|Visku – fræðslu-  og símenntunarmiðstöðvar Vestmannaeyja]]  og var formaður frá stofnun 2003 til 2023.

Hann var  í stjórn og síðar formaður stjórnar  [[Þekkingarsetur Vestmannaeyja|Þekkingarseturs Vestmannaeyja]] 2008 og formaður þess  2018-2023.

Þau María giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn, en skildu.

Þau Guðrún giftu sig 1996, eiga ekki börn saman, en Arnar fóstraði eitt barna hennar. Þau búa við [[Brattagata|Bröttugötu]].
l.  Kona  Arnars, (12. febrúar 1967, skildu 1995), er [[María Vilhjálmsdóttir]] frá Þórshöfn á Langanesi, húsfreyja, bókari, f. 3. febrúar 1943.

Börn þeirra:

1. [[Kristrún Arnarsdóttir]] (ættleidd af Arnari),    tölvunarfræðingur í Kópavogi, f. 12. nóvember 1964. Fyrrum sambúðarmaður hennar Jón Jóhannesson. Fyrrum maður hennar Ævar Einarsson.

2. [[Eiður Arnarsson]] tónlistarmaður, f. 26. september 1966. Kona hans er Íris Bjargmundsdóttir.

3. [[Dagný Arnarsdóttir]], fornleifafræðingur, umhverfis- og auðlindafræðingur,  f. 20. ágúst 1973 . Hún vinnur hjá Umhverfisráðuneytinu. Fyrrum sambúðarkona Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir. Sambúðarkona Austustina Kurlinskaité,
ll. Kona Arnars, (31. desember 1996), er [[Guðrún Stefánsdóttir (kennari)|Guðrún Stefánsdóttir]] kennari f. 17. ágúst 1952 í Eyjum.

Eitt barna hennar og fósturbarn Arnars er

4. [[Bjarni Bragi Jónsson (yngri)|Bjarni Bragi Jónsson]] yngri, eðlisfræðingur, með  B.S.-próf í hugbúnaðarverkfræði, sérfræðingur hjá Data Lab, f. 18. júní 1991. Kona hans [[Hólmfríður Hartmannsdóttir]].
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Arnar.
*Heimaslóð.
*Íslendingabók.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Framkvæmdastjórar]]
[[Flokkur: Bæjarfulltrúar]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Mundahúsi]]
[[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]]
[[Flokkur: Íbúar við Bröttugötu]]

Leiðsagnarval