Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júlí 2012 kl. 08:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2012 kl. 08:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Johnsen (d.1930), kona Jóhanns J. Johnsen

Anna Sigríður Árnadóttir Johnsenn fæddist 4. júní 1855 og lést 30. ágúst 1930. Hún var dóttir hjónanna Árna Þórarinssonar og Steinunnar Oddsdóttur. Anna var snemma talin góður kvenkostur og hálfþrítug varð hún heitmey Jóhanns J. Johnsen á Vilborgarstöðum, sonar Guðfinnu Jónsdóttur Austmann húsfreyju.

Jóhann og Anna Sigríður hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús M. Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.

Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.


Heimildir