„Anna Jónsdóttir (kennari)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Anna Jónsdóttir (kennari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Anna Jónsdóttir kennari.jpg|thumb| | [[Mynd:Anna Jónsdóttir kennari.jpg|thumb|100px|''Anna Jónsdóttir.]] | ||
'''Anna Jónsdóttir''' frá Vopnafirði, húsfreyja, handíðakennari fæddist | '''Anna Jónsdóttir''' frá Vopnafirði, húsfreyja, handíðakennari fæddist | ||
20. apríl 1929 í Sólgarði þar.<br> | 20. apríl 1929 í Sólgarði þar.<br> |
Útgáfa síðunnar 28. október 2020 kl. 17:48
Anna Jónsdóttir frá Vopnafirði, húsfreyja, handíðakennari fæddist
20. apríl 1929 í Sólgarði þar.
Foreldrar hennar voru Jón Höskuldsson frá Blöndugerði í Hróarstungu, N-Múl., símaverkstjóri á Sólgarði í Vopnafirði, f. 2. september 1893, d. 22. júlí 1972, og kona hans Lilja Sveinsdóttir frá Gnýstöðum í Vopnafirði, húsfreyja, f. 10. júní 1895, d. 7. apríl 1970.
Anna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugum í S-Þing. og og Húsmæðraskólanum á Laugum, settist í handavinnukennaradeild Kennaraskóla Íslands 1951 og lauk námi 1953.
Hún kenndi við barnaskólann í Keflavík 1953-1955, Barnaskólann í Eyjum frá 1955 í 40 ár.
Þau Óskar giftu sig 1955 á Seyðisfirði, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu skamma stund á Skaftafelli, síðan í Heiðardal, Hásteinsvegi 2 í tvö ár, byggðu Herjólfsgötu 11 og bjuggu þar í 50 ár, þá á Herjólfsgötu 12 í 7 ár. Þá fluttu þau í íbúð við Vesturveg 13a, þar sem áður stóð Skálanes og búa þar.
I. Maður Önnu, (16. september 1955), er Óskar Guðjónsson frá Skaftafelli, húsasmíðameistari, f. 26. desember 1927.
Börn þeirra:
1. Kristinn Óskarsson húsasmíðameistari, býr í Svíþjóð, f. 20. júlí 1956 á Vopnafirði. Kona hans er Karina Elisabet Brengesjö
2. Lilja Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, hefur unnið við hjálparstörf, f. 30. september 1960, ógift.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Anna.
- Íslendingabók.is.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.