Andrés Gíslason (Kokkhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 12:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 12:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Andrés Gíslason (Kokkhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Andrés Gíslason vinnumaður á Ofanleiti fæddist 16. október 1820 og lést 6. september 1842.
Foreldrar hans voru Gísli Andrésson sjómaður í Kokkhúsi og í Görðum við Kirkjubæ, f. 16. maí 1791, d. 23. desember 1855, og fyrsta kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 2. maí 1793, d. 30. október 1833.
Andrés fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1824. Hann var hjá þeim í Kokkhúsi 1835 og í Görðum við Kirkjubæ 1840.
Hann var vinnumaður á Ofanleiti 1842, er hann lést.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók I – Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.