Afapollur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 15:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 15:32 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Afapollur

Afapollur var hraunbolli í urðunum neðan við Þurrkhúsið, talið er að í einhverju austan fárviðri hafi sjórinn skilið eftir stærðar blágrýtisstein í bollanum miðjum. Þetta litla lón náði aldrei að þorna milli flóðs og fjöru og á góðum sumardegi var jafnvel ylur í sjávarpollinum, enda vinsælt að leika sér þarna með eða án leyfis.