„Aðalsteinn Gunnlaugsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 2: Lína 2:
'''Aðalsteinn Gunnlaugsson''' fæddist 14. júlí 1910 og lést 27. febrúar 1991. Faðir hans hét [[Gunnlaugur Sigurðsson (Gjábakka)|Gunnlaugur Sigurðsson]] og móðir hans [[Elísabet Arnoddsdóttir frá Gjábakka|Elísabet Arnoddsdóttir]]. Bræður Aðalsteins voru [[Arnoddur Gunnlaugsson|Arnoddur]], Gunnlaugur (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn, Jón, [[Elías Gunnlaugsson|Elías]] og Ingvar. Systur Aðalsteins voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við [[Gjábakki-vestri|Gjábakka]] þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Aðalsteinn var lengi skipstjóri og útgerðarmaður í Eyjum en síðustu árin vann hann sem húsvörður og eftirlitsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.  

Hann kvæntist [[Tómasína Elín Olsen|Tómasínu Elínu Ólsen]], f. 25. desember 1916. Hún lést 20. febrúar 2006. Þau eignuðust þrjú börn: Guðmund Hrein fæddan 7. mars 1936, Eddu fædda 25. nóvember 1939 og Atla fæddan 26. júní 1944. Þau bjuggu á [[Vesturvegur|Vesturvegi]] 3b og [[Hólagata|Hólagötu]] 15.  
Hann kvæntist [[Tómasína Elín Olsen|Tómasínu Elínu Ólsen]], f. 25. desember 1916. Hún lést 20. febrúar 2006. Þau eignuðust þrjú börn: Guðmund Hrein fæddan 7. mars 1936, Eddu fædda 25. nóvember 1939 og Atla fæddan 26. júní 1944. Þau bjuggu við [[Fífilgata|Fífilgötu 2]], á [[Framnes|Framnesi við Vesturveg 3b]] og á [[Hólagata|Hólagötu 15]].  

Aðalsteinn var formaður á mótorbátnum [[Lagarfoss|Lagarfossi]] 1946-1953 og Atla 1954-1965 sem hann átti helmingin í og síðan allan.
Aðalsteinn var formaður á mótorbátnum [[Lagarfoss|Lagarfossi]] 1946-1953 og Atla 1954-1965 sem hann átti helmingin í og síðan allan.

Núverandi breyting frá og með 2. desember 2023 kl. 17:08

Aðalsteinn

Aðalsteinn Gunnlaugsson fæddist 14. júlí 1910 og lést 27. febrúar 1991. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Aðalsteins voru Arnoddur, Gunnlaugur (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn, Jón, Elías og Ingvar. Systur Aðalsteins voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Aðalsteinn var lengi skipstjóri og útgerðarmaður í Eyjum en síðustu árin vann hann sem húsvörður og eftirlitsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.

Hann kvæntist Tómasínu Elínu Ólsen, f. 25. desember 1916. Hún lést 20. febrúar 2006. Þau eignuðust þrjú börn: Guðmund Hrein fæddan 7. mars 1936, Eddu fædda 25. nóvember 1939 og Atla fæddan 26. júní 1944. Þau bjuggu við Fífilgötu 2, á Framnesi við Vesturveg 3b og á Hólagötu 15.

Aðalsteinn var formaður á mótorbátnum Lagarfossi 1946-1953 og Atla 1954-1965 sem hann átti helmingin í og síðan allan.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Aðalstein:

Heppinn sækir hafs á reit
hann Gjábakka Alli,
gætinn vel á gýmis sveit,
gjöll þótt Lagga skralli.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Bræðra nú þáttskal þræða,
þrjár má ég vísur pára.
Elztur er Aðalsteinn helztur,
yggurinn Gunnlaugs dyggur.
Veiðir sá garpur greiður,
græðis þó hamist flæður.
Stýrir Atla órýrum
ágætis drengurinn mætur.

Myndir

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Viðbætur við heimildir: Eygló Björnsdóttir
  • Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum